Mætti í bæinn klukkan að ganga fjögur aðfaranótt mánudags og ákvað að sofa fram að hádegi. Fyrst vaknaði ég við hurðaskelli og köll þegar Sjúkraliðinn sem kom til að fóðra kettina kom og sá að ferðataskan mín var á miðju gólfi. Mér finnst rétt að taka það fram að þegar ég kom heim voru ÞRÍR matardallar kúfullir af mat fyrir framan kettina svo það leynir sér ekki að hún hefur sinnt kattapössuninni af mikilli samviskusemi.
Næst vaknaði ég við að Píparinn hringdi í símann minn klukkan hálf níu til að ráðgast um flugbókun fyrir starfsmennina og eftir það ákvað ég að koma mér í vinnu. Það eru stress dagar framundan og ég ákvað að róa mig niður með matargerð í gærkveldi svo ég eyddi góðum tíma í að elda mér súpu sem var svo góð að ég hlakka til að borða hana bæði í hádeginu í dag og í kvöld líka. Þegar ég kíkti á uppskriftina áðan komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri kannski bara ekki súpu, hledur pottréttsuppskrift en hún er jafngóð fyrir það.
Til að klára svo daginn á rólegu nótunum bjó ég til músli frá sama uppskriftarhöfundi, hollt og gott.
Svo er bara að rumpa vinnunni frá svo helgin liggi ekki öll undir og hlakka til jeppaferðarinnar um miðjan ágúst.
29. júlí 2008
21. júlí 2008
Kapall
Ég tengdi myndavélina ekki við tölvuna í gærkveldi en uppgötvaði þennan snilldar kapal í henni.
Það er þoka og súld en á veðurkorti fyrir morgundaginn er teikuð sól. Þá nenni ég ekki að vinna.
Annars kemur liðið á fimmtudag og eftir það nenni ég heldur ekki að vinna.
Tómstundafulltrúinn hefur setið og barið saman auglýsingu undanfarna daga og merkilegt nokk þá þarf hann stundum að fá mitt álit. Mitt álit á þeim sem fékk hann til að vinna þetta er að viðkomandi sé töluvert skrýtinn og er ég þó ýmsu vön.
Ég hef þó lagt upp í allar umræður um verkefnið á þeim nótunum að öll reynsla sé einhvers virði og hafi maður ekkert annað við tímann að gera sé ágætt að verða sér út um reynslu.
Ég fór annars á sýningu í einni félagsmiðstöðinni á höfuðborgarsvæðinu um daginn. Sá þar verk
sem hópur krakka á sumarnámskeiði í margmiðlun var að vinna undanfarnar vikur. Þau eru ung og þurftu að hafa fyrir þvi að læara að túlka ýmsa hluti með eða segir maður á margmiðlunarformi. Hver og einn þarf að hafa fyrir því sjálfur að læra að tjá sig og túlka hlutina og það tekur tíma.
Eitt verkið á sýningunni þeirra var stuttmynd. Það tekur uþb. 1 mínútu að sýna myndina en það tók 3-4 vikur að vinna hana. Þau sömdu handrit, æfðu, léku, kvikmynduðu og klipptu.
Hópurinn samanstóð af 6-8 krökkum sem væntanlega á hvert um sig föður og/eða móður. Það gerir 6-16 manns. Á sýninguna hjá þeim mættu 3 foreldrar.
Mér finnst lífið stundum allt að því grátlegt.
Þau eru mér alveg óviðkomandi en ég er stolt af því hvað þau stóðu sig vel og vona að þau viti sjálf að þau gerðu góða hluti.

20. júlí 2008
Hefndist fyrir
Þann 13. júlí hefndist mér fyrir kæruleysið og sat þess vegna lengi, lengi með gólffötuna í seilingar færi og stálband um heilann. Það leið hjá eins og það gerir alltaf og ég sneri mér að því að klára allt sem ég þurfti að gera áður en ég færi að heiman.
Mér tókst ekki að klára nema brot af því og nú er ég komin að heiman og kæruleysið allsráðandi í því sem ég tek mér fyrir hendur.
Vinnan bíður í afdrepinu sem er í netsambandi og þegar ég kem þangað fer ég að taka til í póstinum mínum, skrifa og senda bráðnauðsynleg bréf og sinna hinu og þessu sem ég hef trassað. Skrifa niður hummusuppskriftir og annað smálegt.
Sólin hefur látið sjá sig undanfarna daga og í gær fékk ég mér langan göngtúr á eftir túnarollu. Við röltum yfir næstu landamerki þar sem ég skildi við hana. Svarti og hvíti smalahundurinn sá lítinn tilgang í því að reka fé að heiman, hún vill smala því heim í girðingar en hún rölti þetta nú samt með mér til að hafa mig góða. Fann sér kalda polla annað slagið til að kæla sig niður. Það er erfitt að vera svartur hundur í sólskini.
Heiti potturinn var svo formlega vígður með freyðivíni, tungilið var fullt og fölt og fjörðurinn spegilsléttur og lillablár um miðnættið.
Þokan læddist inn með landinu í dag og á morgun er spáð rigningu.
Ég er að hugsa um að pakka vinnutölvu og gögnum saman og athuga hvort ég get ekki fært inn í excel og lesið hann svo inn í viðeigandi forrit. Ég nenni ekki að hanga í netsambandi lengur.
Á morgun segir sá lati en á morgun prófa ég að setja myndirnar inn.

12. júlí 2008
Hráfæði
Ég kom við í Heilsuhúsinu í dag og keypti mér krydd. Við kassann rakst ég svo á uppskriftir að hráfæði og nýjungagirnin lét alvarlega á sér kræla og síðustu tímana hef ég verið mjög upptekin við að skoða uppskriftir á netinu. Hráfæði, grænmetisfæði og allt mugligt fæði. Meðal annars datt ég inn á liknkinn að CafeSigrun og ef klukkan væri ekki farin að ganga tíu á laugardagskvöldi væri ég byrjuð að elda. Eiginlega bara af því hún skrifar þann skemmtilegasta formála að uppskriftum sem ég hef lesið.
Svo sé ég að tvíburarnir eru í Sevilla og ég vildi gjarnan vera þar líka þrátt fyrir 37 stiga hita.
Ég veit að ég má ekki sitja með fartölvuna í fanginu heldur sitja við borð með alvöru lyklaborð en ég gleymdi mér og kannski hefnist mér fyrir það á morgun.

Þögn
Ef maður hefur ekkert að segja er þá ekki best að þegja?
Annars ætla ég að vinna í dag og svo á ég flugmiða sem gildir innanlands á þriðjudagskvöld.

3. júlí 2008
Færeyjar
Ég á vinkonu sem fór til Færeyja og heimkomin fræddi hún mig á þeim töfræðiupplýsingum, að þar séu mun fleiri karlar á aldrinum 38-50 en konur og hún orðið fyrir þeirri ,nú orðið, sjaldgæfu lífsreynslu að tugur karlmanna sneri sér við til að horfa á eftir þeim vinkonunum þegar þær gengu um götur eyjanna.
Mér varð hugsað til annarar vinkonu minnar, kannski hún ætti að drífa sig til Færeyja og hætta að skrá sig á undarlegar netsíður.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)