23. apríl 2008

Blóm og menn

Ég velti því fyrir mér hvort fólk þrífist á vinnustöðum þar sem blóm eru ekki velkomin.

21. apríl 2008

Hjólið

Ég náði í hjólið á laugardaginn og ætla að telja í mig hug og dug og hjóla í vinnuna í dag. Verst að þá þarf ég að hafa með mér bakpoka með farangrinum. Ég þarf að fara að koma grindinni sem ég keypt síðastliðið sumar á sinn stað á hjólinu.
Ég gleymdi líka að hlusta á ,,Vorhretið" hans Jóns Björnssonar. Ég bæti úr því í dag.

20. apríl 2008

Í gær og í dag

Í gær vaknaði ég með vormaníuna, dreif mig út að labba og þegar ég kom heim var ég til í að finna mér einn eða tvo garða til að taka til í eða taka til heima hjá mér og halda svo áfram að ganga úti í vorinu en- ég fór að vinna og vann allan daginn.
Í gærkveldi sofnaði ég með þá sælu hugsun í kollinum að ég þyrfti ekki að fara að vinna þegar ég vaknaði heldur gæti ég farið út að labba, tekið svo til hjá mér, skipt á blómunum og tekið til í garðinum.
Í morgun fór ég út að ganga, kom heim og langar mest undir sæng, líka með höfuðið. Hvert fór vormanían og er ekki maðurinn skrítin skepna.

Hávamál

8
Ærna mælir,
sá er æva þegir
staðlausu stafi;
hraðmælt tunga,
nema halendur eigi,
oft sér ógott um gelur.

9
Afhvarf mikið
er til ills vinar,
þótt á brautu búi,
en til góðs vinar
liggja gangvegir
þótt hann sé firr farinn.

10
Ganga skal,
skala gstur vera
ey í einums tað
Ljúfur verður leiður,
ef lengi situr
annars fletjum á.

19. apríl 2008

Og svo

,,Hleðslutækið mitt er uppi í vinnu" sagði drengurinn þegar hann var að fara. ,,Taktu þá mitt" sagði móðir hans. Og það gerði hann.
,,Kemurðu út í kvöld" sagði vinkonan þegar móðirin kvaddi hana á laugardaginn. ,,Sendu mér sms og ég sé til" sagði móðirin. ,,Pííppp" sagði síminn þegar rafmagnið kláraðist af honum á laugardagskvöldið.
Köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri, smjörið rann, roðið brann, sagan upp á hvern mann sem trúa kann.

Og svo fékk Flubbinn tiltektaræði, reif og sleit og og togaði í kassana með gullunum sínum í og ákvað að sum gullin væru rusl en önnur skyldi fægja og raða aftur og betur í hirslur og geymslur. Það vantar inn í sum púslin, á að geyma þau lengur eða henda?
Hún fann bók, bók úr annari og eldri gullakistu. ,,Í föðurgaði fyrrum", gulnuð, rifin og Lithoprent ljósprentaði 1956. Það var áður en eigandinn fæddist. Umm, það gerðist eitthvað fyrir þann tíma líka. Fyrir gömlu daga!
Þetta er listaverk, þulur eftir Guðrúnu Auðunsdóttur, myndskreytt af Halldóri Péturssyni og litskreytt af eiganda.

Nú er svalt um byggð og ból

Nú er svalt um byggð og ból,
byrgir snærinn laut og hól,
úti græna grasið kól,
sem greri um tún og engi.
Vorsins draumar vara sjaldan lengi.
Sauðir renna heim í hús,
í holu þröngri sveltur mús,
nú er hrafninn heimafús,
því hvergi er æti að finna.
Allir mega aflaföngum sinna.

Flóamet við fossinn gljá,
fönnin lykur dyr og skjá.
Vefur Norðri ygglda á
armi jökulköldum.
Drynur þá frá dökkum úthafsöldum.
Bárugarðar berja sand,
brimið æðir hátt á land,
klofna viðir, bilar band,
bátar á skeri strand.
Hollur er sá, sem hlifir í nauð og vanda.

Loksins endar strit og stríði,
stormar lægja um höfin víð,
bráðum kemur betri tíð,
blása vindar þyðir.
Allar þrautir enda vel um síðir.
Inni brennur aringlóð,
úti styttist rökkurslóð,
glóey sendir geislaflóð
gegnum skýjatröfin.
Svífa vorsins vindar yfir höfin.

Brotna ísar, blánar mar,
bátar klúfa öldurnar,
hlýir geislar Guðsólar
græða vetrarsárin.
Huggarinn eini harma þerrar tárin.
Allt þá verður oss í vil
enginn vetur framar til.
Vorsins glæsta gígjuspil
gleði hjartans vekur.
Allt, semlifir undir við það tekur.

17. apríl 2008

Lasin eða með svefnsýki


Ég gafst upp í vinnunni í dag og lagði af stað heim til að skríða undir sæng. Ég gat ekki stillt mig um að koma aðeins við hjá Sjúkraliðanum til að sjá þessa frábæru bók sem hún þóttist vera að teikna upp úr. Ég fletti bókinni, borðaði hrökkbrauð, fann út hvert jeppaleiðirnar okkar lægju í sumar, fékk svo teppi og annað teppi og svaf í sófanum í tvo tíma eða svo.

Ég lág svo áfram undir teppunum langt fram á kvöld og góndi á sjónvarp þangað til síðustu heilafrumurnar voru lagstar í dvala. Til að koma þeim í gang aftur prófaði ég að teikna nokkra hausa úr þessari frábæru Cartoon bók áður en ég fór heim til að aðstða við kosningaræðu.

Ég er að hugsa um að sofa í alla nótt og allan morgundaginn til að sjá hvort ég hressist ekki.

Ég þarf að vera útsofin annað kvöld þegar ég fer að taka út vinninginn í selagetrauninni.

12. apríl 2008

Góða drauma

Ég hef ekki fært margar færslur hér inn undnfarið og fékk líka að heyra það frá fyrrum vinnufélaga. Ekki það að hún var löngu hætt að fara hér inn og hafði ekki séð myndirnar sem ég var að monnta mig af við hana. Ekki veit ég hvað fólk er að kvarta sem ekki kíkir við svona á viku fresti.
En kvöldið er hæfilega ungt til að fara að leggja sig og ég hæfilega þreytt. Það leynist að mér grunur um að ég sé með einvhverja óláns pest, ég er svo drusluleg. Ég er nú samt búin að leika mér að þvi að læra á vefumsjónarkefi vinnustaðasíðunnar og setja þar inn mikla speki um sumardaginn fyrsta. Kannski ég koperi það bara hér inn lika.

Góðar stundir þig sem hafið enn þolinmæði til að lita hér við.

Ps.
Heilinn i mér tók kipp eftir að ég kom við hjá Kínaförunum og talið barst að urtubörnum. Þar situr ung dama með Vísnabókina og á í henni uppháhaldskvæði sem byrjar svona ,,Sofa urtu börn á útskerjum, urra og íla og veltur sjór yfir" Þetta kom í ljós þegar ég var að velta mér upp úr því hvaðan kæmi urtunafnið á einum ,,lesandanum" mínum.
Já og ég er ekki að skilja hvað ég gat verið seinfær að átta mig ekki á að urtur eru selir og í sumum tjörnum á sumum nesjum búa selir.

Vorhret í sólskinskistunni

1
2
Sá þriðji verður svo á dagskránni í dag en því miður dettur fyrsti þátturinn líka út í dag.

Laugardagur 12. apríl

Ég er ekki farin að hjóla en ég fór í göngu á miðvikudaginn. Er að stilla mig um að ganga meira fram á næsta miðvikudag eða fara og ná í hjólið. Fæturnir minna mig á það á nóttunni að það sé betra að fara hægt í sakirnar.
Meðan ég fer hægt í sakirnar í hreyfingarmálum hlusta ég á ,,Vorhret í sólskinskistunni" á rás1 Rúv. Mig blóðlangar til að eiga þessa þætti á tölvunni og geta hlutstað á þá í annan tíma en finn enga leið til að afrita þá enda er það sjálfsagt ólöglegt.
Ætli ég verði ekki bara að dunda mér í tiltekt og hlusta á þáttinn í dag, það er erfitt að einbeita sér að því að hlusta á ferðasögur þegar vinnan krefst athygli minnar.
En fyrst er víst prófarkalestur

4. apríl 2008

Ekki að standa sig

Ég er ekki að standa mig í dagbókarfærslum hér og annarstaðar vantar töluvert upp á að ég afkasti öllu sem ég áætla.
Eftir mánudaginn lofa ég mér að fara að hjóla.