26. febrúar 2008

Sofa urtu börn á útskerjum


Hvaðan kom þetta Urtunafn eiginlega?

En maður kann kanski ekki við að banka upp á hjá fólki með aukafólk í fararteskinu. Þó það væri skrítið að keyra fram hjá.

Hvernig væri að bjóða upp á kaffi eitthvert kvöldið í vikunni? Kexlaust.

24. febrúar 2008

Olympus


Suður um höfin.

að sólgylltri strönd

sigli ég fleyi mínu....
Nú eða bara velti fyrir mér kennsluáætlunum.

17. febrúar 2008

Sund

Ég dreif mig loksins í ræktina og sundlaugina í dag. Tíminn kostaði mig 25990 krónur.
Ég ætla ekki aftur á morgun, nú ríður á að hafa vit fyrir sér, sem ég hef því miður ekki oft, og fara svoooooo hæææææææægt að ég þurfi ekki að taka 4 vikur í að jafna mig eftir ofreynslu.
Það er helv.. skítt að þurfa að sætta sig við að það sem áður var 1 til 2 daga harðsperrur kostar núna margra vikna verki í vöðvafestum. En ætli ég eigi annara kosta völ.
Háhælaðir skór eru ekki inni í myndinni núna en vonandi lagast það þegar kuldinn minnkar með vorinu.

Ég heyrði í konu í dag sem er að taka til, henda og gefa eigur sínar til að opna líf sitt fyrir nýjum tækifærum. Hún bauð mér trönur og viti menn ég fann samstundis fyrir mikilli teiknilöngun. Sá ekki fram að henni fengist fullnægt á þessum fáu klukkutímum sem ég átti eftir fyrir mig í dag og hristi hana af mér. Þáði samt trönurnar.
Mig langar í meira frí og teikniaðstöðu.
Svo langar mig til að læra að taka myndir, læra á photoshop, læra að klippa vídeótökurnar mínar, læra ítölsku, læra íslensku, klára að prjóna það sem er á prjónunum mínum, prjóna mér tösku og sauma á hana roð, sauma laxaroð á kragann á jakkanum mínum, orkera, þrífa bílinn minn, keyra inn á fjöll, fara í sveitina og lesa þar 50 bækur, ganga í fjörunni, hlusta á æðarfuglinn syngja og ölduna gljáfra í föruborðinu. Mig langar í hund til að ganga með mér í fjörunni, móanum og fjöllunum.
Tengdadóttirin er orðin að fyrrverandi tengdadóttur og guli göngufélaginn minn einhvernveginn ekki eins aðgengilegur fyrir vikið. Ég hef að vísu lítið gengið við þau tækifæri sakna ég hans óneitanlega.

En á morgun er vinnudagur og ég er svo heppin að geta unnið fyrir mér.

15. febrúar 2008

aaafaffeffafhdefeca

Ekki mikð vit í því fyrr en það er komið á í bollur sem flakka upp og niður á línum en illmögulegt að læra að setja fingurna á rétta staði.
A A A H A F(#)F(#) E F(#)F(#)A F(#) H D E F(#) E C A
Hvert ör-stutt spor var auðn-u spor með þér,hvert and-ar tak er tafið-ir þú hjá mér.


Flubbinn minn æfir söng, klassískann og uppeldið af gömlu gufunni veldur því að ég kann vel að meta hin og þessi klassísk innlend og erlend lög sem hún raular heima við.

Mér til ánægju skrifað hún bókstafi á nóturnar á hljómborðinu semm hún notar til að gefa sér tóninn og ná laglínu í þeim lögum sem hún þekkir ekki svo nú get ég bara lamið á GAGA CD afaffe eða eitthvað og þó hún sé eitthvað að mælast til þess að ég læri að lesa nótur læt ég mér nægja að rétta henni bók og segja henni að skrifa DCEFGAH á rétta staði.

Skemmtilegt leikfang þetta.

Námskeið

Ég fór á námskeið í gær. Gerði tilraun til að læra allt um bókunarsíður fyrir áhugaflakkara. Alveg gæti ég hugsað mér að hafa íbúðaskipti við einvhern Parísarbúann- ef ég ætti íbúð.

14. febrúar 2008

Googluð

Mér finnst alltaf svolítið gaman að sjá í hvaða leitarorð vísa í síðuna mína á Google.
Þetta er nýjasti listinn.
05 Feb, Tue, 14:26:48 Google: "snjómulla"
05 Feb, Tue, 14:57:36 Google: nástaða
05 Feb, Tue, 16:19:17 Google: mynd úr stöfum
06 Feb, Wed, 00:00:14 Google: ljóðagreining
06 Feb, Wed, 02:22:41 Google: raun vísinda
06 Feb, Wed, 16:10:42 Google: dellur
07 Feb, Thu, 10:55:32 Google: veðrið í london
07 Feb, Thu, 17:51:59 Google: hækkanlegt skrifborð
08 Feb, Fri, 05:45:33 Google: porno
08 Feb, Fri, 15:23:20 Google: smíða fiskabúr
08 Feb, Fri, 23:19:57 Google: langisjór
08 Feb, Fri, 23:27:26 Google: ofurkonur
08 Feb, Fri, 23:29:10 Google: kornflexkokur
09 Feb, Sat, 00:27:54 Google: ókindarkvæði
10 Feb, Sun, 13:17:45 Google: lopapeysumunstur
10 Feb, Sun, 23:28:43 Google: Félagsliðinn
11 Feb, Mon, 00:19:09 Google: þar sem fjöllin sökkva sjálfsagt enn
11 Feb, Mon, 15:57:16 Google: uppskrift jógúrtbollur
12 Feb, Tue, 10:15:18 Google: staðlausir stafir
12 Feb, Tue, 15:34:55 Google: lífsmörk

Og þegar ég les hann fer ég að velta því fyrir mér hvenar ég hafi skrifað um porno, snjómullu, Félagsliða og smíði á fiskabúrum.
Ég reyndar hef svar við sumu af því sem mér dettur í hug að fólk sé að leita að, í fyrrverandi aukavinnunni minni er hægt að láta smíða fiskabúr, það er einhverstaðar merki á skrifborðinu mínu sem sýnir hvar það er keypt en ekkert af þessu er í pistlunum enda bulla ég staðlausa stafi út og suður.

Tíminn og vatnið

,,Tíminn er eins og vatnið" sagði maðurinn. Ef það er rétt hjá honum er tíminn eins og beljandi vatnsflaumur i leysingum og æðir stjórnlaus áfram.

9. febrúar 2008

London

Feðgarnir fóru til London í gær, horfðu á hundlélegan bolta í dag og fóru svo að skoða borgina, báðir jafn áttavilltir og ólæsir á kort. Þeir sögðust hafa saknað mín, ég býst við að það hafi eitthvað með fyrrnefnd vandamál að gera.
Ég fékk svo sms frá syninum í kvöld þar sem hann bað mig að finna nafnið á götunni sem hótelið hans stendur við og jafnframt að hann væri að verða rafmagnslaus!
Það er hressandi að fá þær fréttir að litla barnið mitt sé eitt á þvælingi í stórborg, leitandi að hóteli sem hann veit ekki hvar er og með rafmagnslausann síma.
Ég reddaði þessu auðvitað áður en síminn hans ,,dó" og hann er kominn heim á hótel heilu og höldnu.

Himininn hefur hrist yfir okkur ógrynni af snjó undanfarið og mér líkar það ekkert illa, myndi samt þiggja að fara til London í 13 stiga hita og sólskin í tvo eða þrjá daga.

Brrrrrrr

Ananas úr dós og frosin jarðaber í blandara verða að ágætis desert en mikið andsk.. getur sá desert kælt í manni beinin.
Ég er að velta því fyrir mér hvort ég á að baka smávegis eða sinna vinnutengdum málum.

2. febrúar 2008

2.febrúar

Ef ég fer úr lopapeysunni og set græjurnar í botn er von til þess að ég nái að leiða hjá mér borvélahljóðið af efri hæðinni, rafvirkjana sem hanga eins og flugur á veggjum á minni hæð og afkasti svo miklu að ég þurfi ekki að vinna á morgun?