30. nóvember 2007

Mikið djöfull er ég þreytt!

29. nóvember 2007

60.60

Fór á Ladda sextugann í kvöld og skemmti mér ágættlega, grét stundum af hlátri en það ber að taka fram að ég er með stórlega ofvirka tárkirtla sem þurfa lítið til að framleiða tárafossa svo það er ekki alveg að marka þó ég þurfi að þurka mér ótt og títt um augun á svona sýningum. Elsa mín Lund er alltaf góð sem og Magnús og fleiri og fleiri af karakterunum hans Ladda, mis skemmtilegir þó en það er líka frábært að rifja upp hvað hann hefur ótrúlega mikið safn af karakterum og að sjá hvað hann skiptir auðveldlega um þá. Hann leikur Bubba betur en Bubbi sjálfur.
Ekki veitti mér af að sjá eitthvað hlægilegt í vikunni, ég var og er enn í léttu áfalli yfir að hafa hlustað á dagfarsprútt fólk sem ég á samskipti við daglega slúðra, rægja og tala niðrandi um einstakling sem ekki hefur neitt til saka unnið annað en vera ekki alltaf á sömu skoðun og fjöldinn, vera óhrædd við að viðra skoðanir sínar og hafa ekki nægan kynþokka til að bera til að hafa rétt á að koma fram í fjölmiðlum að þeirra mati. Ég dróg allaveg þá ályktun af því sem sagt var og ég vona að þau hafi ekki sagt neitt um þessa tilteknu konu sem þau ekki vildu að sagt væri um þau sjálf.
Ég vildi gjarnan geta sagt að ég hefði kveðið niður þennan slúðurdraug en ég var orðlaus og ráðalaus og veit ekki hvernig á að benda fólki á að því sæmi ekki svona hegðun.

Ég gaf ættingja mínum einum kveikjara fyrir mörgum árum og lét grafa í hann, kveikjarann sko, þetta:

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.
Kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli.

Ég held að ég skrifi þetta á blað og hafi fyrir framan mig næstu daga.

28. nóvember 2007

Orðaheimur

Ég eignaðist bók í dag, rándýra íslenska hugtakaorðabók sem heitir Orðaheimur. Mér finnst það frábært og á næsta ári þegar ég þarf að hjálpa Kennaranum að eyða vísindasjóðnum kaupi ég Orðastað, svo les ég orðabækur fyrir svefninn.

Ég rótaði í öllum hillum í Eymudsson og langaði í hinar og þessar bækur sem höfðu orðið drawing í titlinum og ég var líka búin að finna bók sem mig dauðlangaði í og hafði orðið photo einhverstaðar innan borðs. Ég er að vísu með þá góðu bók í láni á bókasafninu en kemst hægt yfir að lesa hana enda búin að setja myndavélakaupin í saltpækil í einhvern tíma. Ég hafði þó það upp úr krafsinu í digitalphoto hillunni að sjá þá fullyrðingu að það væri ekki dýr útbúnaður sem gerði ljósmynd að góðri mynd.

Með þá fullyrðingu í huga fer ég og kaupi mér myndavél sem er ekki með hundruðum sjálfvirkra stillinga og leiðarvísi á stærð við biblíuna. Einhverntíma bráðum.

Ég hefði getað eytt mun lengri tíma í bókaskoðun en bæði tími og fjárlög þrutu allt of fljótt.



------------------------

hrífa

hrífa -> AÐFRÁTTARAFL. HRIFNING/AÐDÁUN

<þetta; meðalið, þett bragð> hrífur/hreif -> ÁHRIFAMÁTTUR

<þetta; þetta tal> hrífur á -> ÁHRIFAMÁTTUR

<ÞETTA; þetta bragð, þetta ráð> hrífur/hreif ekki -> GAGNSLEYSI

--------------------------

Og þetta var smá sýnishorn úr nýfenginni bók Hafrúnar. Það er spurning hvort megi nota orðið ,,áhrifamáttur" þar sem sumt fólk vill ekki nota orðið ,,hrífur"

,,Hver er áhrifamáttur Abcdefg-"

27. nóvember 2007

Skemmtilegt

Við erum hættar að gera eitthvað skemmtilegt, segir sjúkraliðinn og aldrei þessu vant hefur hún nokkuð rétt fyrir sér. Ekki það að þessi kona sem er búin að kvarta og kveina opinberlega yfir þvi undnfarna daga að hún sé búin að eyða svo miklum tíma í að gera eitthvað skemtilegt í haust að hún sé að falla í öllum fögum.

Ég talaði við konu í gær sem kláraði að skila 13 verkefnum á 9 dögum, aðra talaði ég við í dag sem þarf að fara í 4 próf á næstu dögum, þar af er eitt í áfanga sem hún náði aldrei að mæta í vegna alvarlegra veikinda í fjölskyldunni, í annan náði hún að mæta í helming tímanna og einhver verkefni eru ókláruð áður en að prófum kemur.

Ég sat á skólabekk fyrir 3 árum eina önn. Brjálæðisleg seta á slæmum bekkjum, önnur hver helgi og nokkur kvöld í viku í skólanum. Hin helgin og hin kvöldin í verkefnavinnu og heimanám.

Mig langar ekki í meira af svoleiðis og ég vorkenni öllum þessum konum sem ég þekki sem eru að eyða öllum kröftum sínum í nám með fullri vinnu og heimili og þegar upp er staðið er eins og það vanti nokkra mánuði í lífshlaupið. Ein önn er sök sér en mörg ár. Kræst.

En aftur að gamninu, ég keyrði í gærkveldi um bæinn þveran og endilangan til að prófa nýju myndavélina sem Flubbinn minn keypti í staðin fyrir þá sem ég tíndi. Tunglið glotti yfir ljósadýrðinni í borginni, það merlaði á Faxaflóann í tunglskinsrákinni og út við Gróttu var svo bjart að ég sá öldufaldana á grynningunum.

Það var kalt og ég of skjálfhent til að taka myndir á þeim stillingum sem þurfti. Það var gaman samt.

25. nóvember 2007

Tiltekt

Ég ætlaði að vera að gera allt annað í dag en ég hef verið að gera en ég ól upp harðstjóra og verð að hlýða.
_____________________
Fór á frænkukvöld í gærkveld, það var að vonum rólegt þar sem meirihlutinn var að jafna sig eftir partýin kvöldið áður.
Ég kann best við róleg frænkukvöld.
---------------------------------------

22. nóvember 2007

Hér er orðið hægt að setja inn slideshow en ég er bara ekki að finna út hvernig eða hvort ég get sett inn myndir sem ekki eru á ,,flickr".
Hálffútl og ég er hætt þessu í bili.

Sonarfæðing

Ég fæddi son í nótt sem leið, smáan, bláann og skorpinn hálf kafnaðann í fæðingu en með góð lífsmörk í restina.
Skyldi það ekki vera fyrir góðu.
Mig dreymdi fyrir peningum líka, ég er bara ekki alveg viss nema svona peningdraumar merki að mínir peningar streymi áfram burt frá mér eins og verið hefur.

Raun vísinda

Raun vísinda
stofnun háskólans


-------------------------

Hver veit eftir hvern þetta snilldar ljóð er?

og að lokum

Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju.
Ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.

Jónas enn.

21. nóvember 2007

frh.

Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
Í öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.


----------------------------------------

Mér tekst að læra þær allar fyrir rest.

20. nóvember 2007

Jónas

Mér er þetta mátulegt.
Mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.

19. nóvember 2007

Jónas

Í tilefni dags íslenskrar tungu, Jónasar, Megasar, Sigurbjörns og allra þeirra sem hafa verið lofaðir og vegsamaðir daginn þann dróg ég snjáð appelsínugult hefti af íslenskum úrvalsritum út úr bókahillunni hjá mér. Ég keypti þetta einhverntima einhverstaðar á fimmtíu krónur og í því stendur m.a.:

Enginn grætur Íslending,
einan sér og dáinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.

Jónas Hallgrímsson 21. desembermán. 1844

Ég er að hugsa um að henda einni og einni stöku eftir kallinn hérna inn þegar ég hef bara ekki neitt að segja en á erfitt með að þegja.
Enda á maður að þegja eftir lestur á svona. Samt- þetta er bráðum 163 ára gamalt!

Tómlegt

Það er frekar tómlegt um að litast á heimasíðu sjúkraliðans.

Warning: mysql_fetch_assoc(): supplied argument is not a valid MySQL result resource in /srv/www/blog-central/library/eblog_v2/include/EblogNews.php on line 118

Þetta eru einu skilaboðin sem maður fær upp þar og ég velti því fyrir mér hvort hún hafi verið svo orðljót að síðan hafi veri slegin af.
Ég skil reynar ekki þessa meðvirkni hennar með centrla blogginu.

18. nóvember 2007

Feitar konur

Þetta er ekki tilvitnun í texta heldur dreymir mig trekk í trekk þessa dagana feitar konur, í nótt dreymdi mig ofurfeita konu sem ég kannast við og skilnaðarpappírana hennar. Ótal margt rugl og bull kom þar við sögu líka en af þvi mig dreymdi fyrir nokkrum dögum síðan aðra feita konu held ég að ég verði að fletta þessu upp í draumráðningarbók.
Fita: ,,Dreymi menn sig mjög feita kemur heilsa þeirra til með að verða mjög góð"
Mig dreymdi mig ekki feita heldur einhvern annan svo.... Skoðum þetta frekar.
Stóra draumráðningabókin segir þar um að dreyma konu- ,,....öryggi, velgengni og þægindum...." allt fer það þó eftir aldri konunnar hvað maður þarf að hafa mikið fyrir velsældinni.
Að dreyma bert kvenfólk er hvorki gott né slæmt nema fyrir sjómenn en fyrir þá getur það í allra versta falli verið feigðarboði. Einhvern grun renni ég nú í að sjómenn allra landa dreymi oft konur og í besta falli naktar. Mér finnst það liggja svolitið í hlutarins og mannlegu eðli svo ég held að ég leggi frá mér draumráðningbókina í bili meðan ég átta mig á þessum feitu draumakonum mínum, fótboltaleikjum, verslunarferðum og ég veit ekki hvað og hvað.

Svo er ég búin að finna hlut sem mig vantar nauðsynlega, ég er þó eftir að finna út úr fjármögnuninni.

Armenía

Mig dreymdi í vikunni að ég kæmi út á stéttina framan við Tufenkian hótelið. Ég stóð úti í og horfði yfir spegilslétt Sevanvatnið og tók efti rþví að rósarunnarnir sem ég tíndi af gamla fræbelgi í vor í þeirri von að eitt eða tvö fræ leyndust í þeim ennþá, voru farnir að blómstra. Rósirnar voru hvítar með rauðum blómbotni, það var hlýtt og sólskin og ég var glöð með að vera komin aftur og hafa fengið tækfari til að sjá rósarunnana í blóma.

Ég hélt áfram að vera glöð eftir að ég vaknaði.


14. nóvember 2007

Spenna

Ég get ekki að því gert að ég þrífst ágættlega í spennuástandi. Bara að það vari ekki of lengi.

12. nóvember 2007

Ókindin og önnur mál



Ég sá að síðan mín kemur upp í ótrúlegust leitarskilyrðum t.d. það var barn í dalnum, málshættir og nástaða en braselískt og vax eru þau orð sem flestir virðast leita að af öllu því sem ég hef bullað undan farin ár.



Þegar ég sjáfl gúúgla Ókindarkvæðið fæ ég upp allt mögulegt annað en þuluna sjálfa og af því hér eru hæg heimatökin að fá hana ,,rétta" og setja inn, skrifaði ég hana upp eftir mömmu og linkaði inn á færsluna.



Kannski ætti ég að skrifa upp eftir henni fleiri þulur sem ég kann hrafl úr síðan ég var krakki. Það kemur varla að sök að hafa þær hér ef einhverjir eru að leita að þeim og þær tínast þá ekki alveg.






Annars er ég búin að eyða lunganum úr kvöldinu við að hanna vinakort og gjafir fyrir Kennarann sem er að taka þátt í vinaviku á vinnustaðnum. Ég er að bæta mér upp ódugnaðinn í minni eigin vinaviku frá því um daginn.



Ég fékk fyrir löngu síðan sms sem ég notaði í vinakort. Hefði auðvitað átt að prenta út nokkur og búa til þrívíddarkort en þetta tók sko nógu langan tíma án þess.

Mér finnst Sjúkraliðinn ætti að huga að því að teikna þrívíddarjólakorti handa ættingjunum í ár.






Svo fékk ég föndurkast í gær og er hálfnuð með eina jólagjöf, ég er hæstánægð með sjálfa mig og gjöfina líka.




Gaman að þannig dögum.



Símalaus hundur

Því miður ganga gulir hundar ekki um með gsm svo ég fór bara með Sjúkraliðann í viðringu í rigningu í gær.
Við gegnum stutt gegnum hraun og yfir gjótur og undruðumst þessa gengdarlausu grjóthrúguáráttu göngufólks. Hver gönguleið er vörðuð misstórum hrúgum af smásteinum, sem gera tilraun til að teygja sig upp yfir þúfurnar í landslaginu og minna á vörtur á andliti Fjallkonunnar, enda sú góða kona orðin rígfullorðin og farin að þjást af vörtum og elliblettum, eða á ræfilsleg reðurtákn gerð af þeim sem þurfa að helga sér land af sömu þörf og hundurinn sprænir í hverja þúfu.
Við lækkuðum aðeins rostann í þeim hrúgum sem við sáum.

Hundaþúfa hreykti kamb,
hróðug mjög með þurradram
Skamma tók hún fremdarfjall.
,,Farðu burt þú ljóti kall."
Fjallið þagði það ég skil,
það þekki ei að hún var til.


Hér væri svo Sjúkraliði, gott að fá umsögn um aðalsetningu, aukasetningu, innskotssetningu, frumlag, andlag, áhrifa sagnir og áhrifalausar sagnir svo ég geti gert betur næst.

11. nóvember 2007

Sunnudagur 11.nóv.

Skýin liggja ofan á Bláfjöllunum í dag og það grillir í Keili í þokunni úti á Reykjanesskaganum. Ég er að hugsa um að drífa mig út í göngutúr, eins lítinn og léttann og heilsan leyfir.
Ég þarf að ná í Sjúkraliða með verk í baki og gulan hund sem er af kominn af fótum fram vegna aldurs og með þetta fylgdarlið held ég að það sé engin hætt á að ég ofgeri mér.

10. nóvember 2007

Af aðalfundum og ókláruðum verkum

Ég fór á aðalfund í gær, var reynar á námskeiði fyrir fundinn og á því varð mér ljóst að ef ég ætti að taka próf í faginu í dag félli ég með glans.
Ég reyndi af veikum mætti að láta leiðrétta það sem mér fannst vera óbermileg íslenska í lögum félagsins sem voru borin upp til samþykktar eftir breytingar, en því miður voru ekki nógu margir sammála mér í því að orðinu ,,um" þurfi að fylgja annað orð sem tjáir oss hvað eigi að birta á vefsíðu félagsins.
Til að jafna mig á þessum vonbrigðum með íslenskutilfinningu félagsmanna sturtaði ég í mig nokkrum hvítvínsglösum, rauðvínssopum og rósavíni í lokin og furðaði mig á hvað léttvín getur ruglað mann í kollinum, yfirgaf samkvæmið fyrir miðnætti eins og öskubuska enda búin að styrkja tengslanetið töluvert og fór að sofa.
Í dag er veður til að ganga en ég ákvað að vinna og taka til og fara svo og kaupa kattamat þegar sjúkraliðinn er búinn í sínum kynningarstörfum. Ég er auðvitað ekkert byrjuð á vinnunni svo ég fæ sennilega ekki nema eitt dekk undir bilinn á morgun en ég var að ákveða að vinna aðeins meira heima fyrr Píparann og láta hann bara borga mér í dekkjum.
Heimlistölvan hrundi í vikunni þegar ég sló rafmagninu út í rafmagnstöflunni sem var byrjuð að bráðna og það er ekki komið í ljós hvort harði diskurinn er ónýtur eða ei. Ég nenni ekki að hafa áhyggjur af því í dag. Hann verður hvorki svo sem hvorki né, meira eða minna ónýtur við það að velta vöngum. Þetta er kallað æðruleysi ef þið hafið ekki vitað það en það væru nú svo sem eftir öllu að myndirnar mínar væru horfnar að eilífu.
Kettirnir mala, sólin skín og ég er að hugsa um að kaupa vélarlausan jeppa af móðir minni af því mig langar í bíl á 35".

2. nóvember 2007

Engin Þórsmerkurferð

Ég treysti mér ekki í Þórsmerkurferð, ætla bara að sitja heima og vorkenna mér. Er búin að hamast við það í allan dag og það var ekki fyrr en ég neyddist til að fara í blómabúð til að kaupa blóm á pakkann handa Flubbanum að ég tók eftir því að það er til fullt af skemmtilegum hlutum í tilverunni. Ég var farin að kenna krökkunum sem voru að afgreiða hvernig þau ættu að velja saman liti í blómvendi áður en þau losnuðu við mig út og ef eigandinn hefði verið á staðnum hefði ég örugglega sótt um vinnu.
Svo fór ég með teikniblokkina mína og litina til Sjúkraliðans til að teikna afmæliskortið.
Ég er búin að uppgötva hvers vegna ég fékk hópstjórahlutverkið á vinnustaðnum, mér ferst mjög vel úr hendi að sitja og segja öðrum hvernig ég vilji að þeir vinni og Sjúkraliðinn lét vel að stjórn og teiknaði allt það sem ég sagði henni eins auðveldlega og að drekka vatn.
Hún er alltaf svolítið sein í gang en þegar hún er komin á stað er hún óstöðvandi.
Þetta var örugglega flottasta kort sem Flubbinn hefur fengið hingað til.