30. janúar 2007

Ahhhhhh

Það á eftir að taka dágóðan tíma að ná niður hjartaslættinum og skjálftanum úr útlimunum eftir þenna blessaðan handboltaleik. Svakalegt!
En svona er lífið og við því er lítið að gera.

Ég er að reyna að keyra mig niður úr vinnugírnum, var tilbúin til að fara og vinna í allt kvöld en fannst skynsamlegt að sleppa því. Í svona törnum hættir maður stundum að geta hætt að vinna, vinnan verður svona eins og ósjálfráð líkamsstarfsemi.

Langar í sund og heitan pott eða heitan pott einhverstaðar úti í sveit þar sem maður sér til himins. Ætli ég láti ekki heitt bað og sjónvarpsgláp nægja í kvöld.
Á morgun er það Esjan og sjódraugarnir.

29. janúar 2007

Grasið hinu megin

Skyldi ég nokkurntíma vaxa upp úr því að halda að grasið sé grænna hinu megin við lækinn? Ætli ég rækist á tröll undir brúnni ef ég labbaði yfir, eða er bara engin brú?

Sem sagt mig langar til að vera að gera eitthvað allt annað í dag en það sem ég er að gera. Enda ekki skemmtilegustu verkefnin í minni vinnu þessa dagana.

Ný ferðaáætlun FÍ komin út og ef ég væri ekki þrælskipulögð í ferð í vor væri ég komin á kaf í hana.

28. janúar 2007

Mtskheta

Mtskheta er ein elsta borg Georgiu, Frá fjórðu öld fyrir krist allt fram til fimmtu aldar eftir krist var Mtskheta höfuðborg Íberíu, Upp úr miðri fimmtu öld var höfuðstaðurinn færður til Tbilis.
Borgin er meira og minna á heimsminjaskrá UNESCO.


Georgía

Og hér koma myndirnar sem ég kom ekki fyrir í fyrri færslunni. Þetta hlýtur að vera stillingaratriði en ég gef ekki grænan grun um hvernig á að laga þetta svo ég geti sett tíu síðan pistla hér inn.







Georgía er í vesturhluta Kákasus og liggur við austurströnd Svartahafs, á landamæri að Armeníu, Tyrklandi, Azerbaidjan og Rússlandi. Íbúar Georgíu eru um 4,7 milljónir og meirihlutinn aðhyllist kristna trú. Þetta land er eitt af lýðveldum Sovétríkjanna fyrrverandi og þar kom Stalín í heiminn.
Langstærsti hluti íbúanna eru Georgíumenn en þauk þess armenar, rússar, aserar auk nokkura annara þjóðarbrota.
Georgíska er opinbert tungumál í Georgíu. Málið tilheyrir suðurkákasískum málum eða kartvelískum málum. Uppruni georgísku er óljós en málið er ekki skylt neinum af helstu tungumálum heims.
Saga og menning svæðisins nær aftur til fjórðu eða fimmtu aldar fyrir krist og lesmál um söguna of mikið til að ég leggi í að komast í gegnum það á ensku. Það er lítið af bókum á íslensku um málið. Kannski plægi ég í gegnum eitthvað af þessu seinna. Læt mér nægja í bili að setja inn hérna klausu eftir Jóhönnu Kristjóns um Kákasuslöndin.
Kákasuslöndin þrjú hafa um allar tíðir verið einstakt svæði. Öldum og jafnvel árþúsundum saman hafa þau verið brú milli heima, skjól þjóða á flótta og eldgamalla ættbálka. Þar hafa dafnað og hnigið veldi keisara sem hirðingjahópa. Það er ekki lengra en nokkrir áratugir síðan karlar í ýmsum héruðum Georgíu klæddust búningum fornmanna og sveifluðu sverðum.




(Heimildir: Vísindavefur HÍ, internetið og fl.)

Vinnusvik

Ég á að vera að sinna aukavinnunni en gat ekki stillt mig um að svíkjast um og flakka aðeins á netinu.
Kíkti á síðuna hjá Ferli, sem ég geri sjaldan orðið því ég pirra mig ekki á því á meðan að komast ekki með í grúskferðirnar þar. En þessi síða er gullnáma og ég þarf að muna að prenta út af henni áður en ég labba niður að Lónakoti næst. Nýtt útlit á síðunni er mun aðgengilegra en á þeirri fyrri og leitarmöguleikinn sem er kominn inn er bráðnauðsynlegur þarna.

Las lýsinguna af göngu Ferlis yfir Leggjarbrjót 1.1. (og ég þóttist góða að labba í Hraununum 1.1.) og er sannfærð um að mér hentar að ganga með þeim sem fylgja gömlum leiðum og rifja upp örnefni og söguna frekar en þeim sem hlaupa beint af augum og hafa það helsta markmið að hreyfa sig og helst að komast á einhvern toppinn. Verst hvað forustusauðurinn í Ferli fer hratt yfir, ég legg ekki í að ganga með þeim.

Myndavélar

Ég er ekki frá því að mig langi í myndavél sem býður upp á svona myndatökur. Það er alveg sama hvað ég smelli af á svona náttúrufyrirbæri, litirnir nást aldrei.




27. janúar 2007

Fáfræði og fordómar

Ég þarf ljóslega að lesa Moggann í gær og frá því 18. janúar til viðbótar við grein JK.
Eru vesturlandabúar blindaðir af fordómum gagnvart menningarheimum sem samrímast ekki þeirra viðhorfum?
Er okkar menning virkilega svo góð og siðmenntuð að við getum sett okkur á háann hest, tínt til allt það sem miður fer annarstaðar og snúið blinda auganu að því sem menning okkur framandi hefur kannski fram yfir okkar?
Er nekt, klám, unglingakynlíf og launamismunur kynjanna eitthvað sem er eftirsóknarvert? Þetta og ótalmargt annað eru skuggahliðar vestæns lífsstíls, er ekki hroki að hampa honum fram yfir annan og eru þeir sem fordæma ekki allir undir sama hattinum, hvort sem þeir fordæma vestræna sið, austræna, arabíska, eða trú annara.

En ég þarf greinilega að lesa mér til svo ég nái áttum og geti ákveðið hvað og hverja ég eigi að fordæma.

26. janúar 2007

Á miðvikudag verð ég þarna.

,,Strandminjar og sjóskrímsli í Sjóminjasafni Reykjavíkur



Fortíðarvandi og framtíðarmöguleikar. Minjar um útgerð og lífið við strendur landsins frá sjónarhóli fornleifaverndar, kynning á lögum um verndun minja og þeim stofnunum sem framfylgja þeim.

Staða verndun og rannsóknir á strandminjum.

Þetta er meðal þess sem Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins fjallar um á fyrirlestrakvöldi Íslenska vitafélagisins miðvikudagskvöldið 31. janúar í Sjóminjasafninu – Víkin í Reykjavík.

Einnig mun Þorvaldur Friðriksson, fréttamaður á rúv segja frá sjó- og vatnaskrímslum á Íslandi. Þorvaldur hefur um áratugaskeið safnað frásögnum, bæði rituðum og munnlegum af sjó og vatnaskrímslum við strendur Íslands og vinnur nú að útgáfu fræðirits um þetta efni.

Staður og stund: Sjóminjasafnið – Víkin, Grandagarði 8 Reykjavík kl. 20:30
"

Skyldi einhver sem ég þekki vilja koma með?

Vitar

PS.
Þetta var ritskoðað og leiðrétt.

25. janúar 2007

ég sé að það eru ótal innsláttarvillur hérna fyrir neðan en ég er of syfjuð til að leiðrétta þær í bili.

Göngumál

Fór í Esjugöngu í kvöld. Það hefur birt helling síðan ég fór fyrir uþb. 20 dögum síðan á svipuðum tíma dags, þá var svo dimmt að ég sá ekki að það eru komin upplýsingaskilti meðfram göngustígnum.
Við löbbuðum upp að skilti 3 í dag, það er í 240 metra hæð og kannski, en bara kannski, kemst ég upp að skilti 4 í næstu viku.
Ég ætla að hafa þetta eins og Evrestfararnir, upp í aðrar búðir (skilti) og niður aftur og svo upp í þriðju búðir nokkrum sinnum og svo í aðrar og fjórðu og ...
Annars vona ég að mér takist að halda þessum dampi, ég labbaði smá á laugardag, aðeins meira á sunnudag, og upp í móti í dag.
Gönguklúbbur Hafrúnar og Ellu stefnir á að vera við Esjuna á hverjum miðvikudegi klukkan 17:30 og labba bæði á laugardag og sunnudag um næstu helgi líka. Þó það verði ekki nema Búrfellsgjáin!

Textar

Í framhaldi af fyrri pistli um textagerð langar mig til að copera brot úr texta hérna inn. Það sendur hvergi á netinu að eftirprentun sé bönnuð svo...

Gengur til náða nákaldur sefur óvært.
Napurlegir draumar sækja hann heim.
Þramma óraveg yfir sjö fjöll og sjö höf.
Í sífelldri leitinni að furðudýrum tveim.


Og

Kvöldar, haustar, dagar dimmra nátta.
--------------

Og þetta er bara sýnishorn úr mergjuðum texta.
Mér fannst í gamla daga dapurlegt hvað höfundurinn er illskiljanlegur þegar hann syngur lögin sín sjálfur, ég náði aldrei náð textunum almennilega.
Er núna með hann á playlistanum í vinnutölvunni, næ textunum betur þar en í útvarpinu hérna áður og verð oft og iðulega að stoppa í verki til að hlutsta á hann.
Orðaforðinn og samsetning orðanna er heillandi.
Einhverntíma og einhverstaðar tók sonurinn viðtal við þennan höfund og lýsingarnar á viðræðum þeirra í þessu viðtali og í kringum það voru óboganlegar, mér finnst að hann ætti að skrifa það hjá sér sem minjagrip. Reynar er upptakan til en þeir áttu bara klukkutíma spólu og maðurinn var óstöðvandi í tvo klukkutíma.

------------------------------

23. janúar 2007

Boltinn

Ég kveikti á útvarpinu í gærkvöld og heyrið um leið ,,fjörutíu sekúntur til eftir af fyrri hálfleik og enn tækifæri til að auka muninn í 11 mörk" Ég tók andköf og hugsaði með mér hvort það væri fræðilegur möguleiki að staðan á leiknum Ísland - Frakkland væri sú að íslendingar væru 10 mörkum yfir.

Auðvitað kemst ég varla hjá því að frétta af sigrum og ósigrum landsliðanna þó ég forðist boltagláp og umræður um boltann eins og heitan eldinn nú orðið, ég horfði stöku sinnum á handblotann í den. Ósigurinn í fyrradag var í öllum fjölmiðlum og ekki komist hjá því að heyra ekkastunur handboltaáhugamanna í hverju horni.
Ég gat nú auðvitað vorkennt strákagreyjunum þarna úti en fannst fjöldinn taka þessu full persónulega.
Nú kveður við annan tón, eftir stórsigurinn í gær og allar fyrri misgjörðir fyrirgefnar.
Ég verð nú að viðurkenna að mér hlýnar töluvert innvortis við að lesa og hlusta á fjölmiðla þessa dagana þrátt fyrir áhugaleysi mitt á boltanum og strákunum ,,okkar".
Það er ósköp notaleg tilfinning.

22. janúar 2007

Að láta ganga fram af sér.

Ég gefst ekki upp á að láta ganga fram af mér. Þennan morgun er ég með kveikt á Ríksiútvarpinu, rás2 og þar er verið að spila lögin sem völdust í söngvakeppni sjónvarpsins.
Einn texti sem ég hlustaði á var með þessu eða álíka viðlagi.

,,það er dásamleg raun
að þrá þig á laun
ég skil ekki baun"


Eða eitthvað þessi líkt.
Ég man eftir einum, EINUM þokkalegum texta úr þeim lögum sem ég hef heyrt. Og hann var meira að segja rímaður. Flestir texahöfundar keppast við að ríma bullið, ríma skal það hvað sem það kostar þó orðaröðin verði afkáraleg og stirðbusa leg sbr. Ásbjörn Morthens.´
Skýtt með innihaldið, eru engir textahöfundar sem eru færir um aðkoma saman þokkalegum texta.
Hvernig dettur mönnum í huga að segja ,,þá myrkrið ég þekki" í stað þess að segja einfaldlega ég þekki myrkrið. Jú þekki rímar á móti ekki og þess vegna verður textinn hrákasmíði.
Annars er þetta efni í aðra grein og framhaldsgrein og framhaldsframhaldsgrein ef ég hefði bara tíma til að stúdera betur textagerð í staðin fyrir að að hrista af mér hrollinn þegar ég heyri bullið og reyna svo að gleyma öllu saman.

21. janúar 2007

Söngvakeppni sjónvarpsins

Tengdadóttirin bauð mér að fara og vera áhorfandi í Loftkastalanum meðan söngvakeppni sjónvarpsins væri send út. Tengdadóttirin er nú svo sem ekki alltaf að bjóða tengdamömmu með sér eitthvað svo ég sagði auðvitað já. Ég sá svo sem ekki eftir því. Það er heilmikil stemming að sitja svona og klappa eftir skipun og merki. Svo er söngurinn eitthvað öðruvísi ,,live".
Ég man svo sem ekki neitt sérstaklega eftir neinu lagi þarna nema það verður að segjast eins og er að einn af þessum höfundum átti frambærilegasta texta sem ég hef lengi heyrt við Eurovison popp. Það var Óskar Guðna en góður texti við frambærilegt lag dugði honum ekki til að komast áfram. Synd og skömm.

19. janúar 2007

Vetrarmorgun

Klukkan er 10:23 og það er hérumbil orðið bjart. Móskarðshnjúkarnir bláhvítir með bláum skuggum og bak við þá er himininn laxableikur með fjólubláum blæ. Litur sem er að breiða úr sér yfir Esjuna og Úlfarsfellið og teygir sig yfir í fölgulan lit áður en sá blái tekur við ofar á himninum.
Fyrir þetta útsýni skal ég snúa baki við allri umferð á vinnusvæðinu.

Heimur á heljarþrön.

,,Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur lagt drög að nýjum reglum sem gætu orðið til þess að fólk, sem er grunað um hryðjuverk, verði fangelsað á grundvelli sögusagna eða vegna vitnisburðar sem hefur verið þvingaður fram."
Við lestur þessarar fréttar í Morgunblaðinu rifjaðist upp fyrir mér saga galdrabrenna á íslandi og ýmislegt sem ég hef lesið um Rannskóknarréttinn spænska.
Það fer um mig hrollur.

15. janúar 2007

Markmiðssetningar

Á hverju ári held ég að góð dagbók bjargi öllu sem ég þarf að gera. Að ég skipuleggi mig og komi hlutunum í verk bara ef ég á eitthvað til að segja mér hvaða dagur er og hafi línur til að skrifa í allt það sem ég ætla að framkvæma hvern dag.
Ég eignaðist dagbók í dag því núna, eins og í fyrra sendi Landsbankinn mér virðulega dagbók með tímastjórnunar ábendingum á hverri síðu. Hún byrjar á hvatningu um markmiðssetningu að setja sér markmið bæði í vinnunni og í einkalífinu! Meira að segja ein síða fyrir hvort og línur til að skrifa það á.
Ég þorði ekki að lesa meira og þó ég leiði aðeins hugann að því hvort og hvaða markmið ég geti sett mér á þessu ári koma bara engar brilljant hugmyndir í kollinn á mér. Skrítið, stundum er hugurinn á mér uppfullur af allskonar misgáfulegum hugmyndum, núna blanko!
Ég á ekki von á að þessi dagbók bjargi mér frá tímaskorti, hálf og ókláruðum verkum, en hún er nú samt flott með fyrirtækis nafninu á (ekki mínu), svört og gyllt. Gyllt er tískuliturinn í ár.

Blogg lestur og skrif er óttalegur tímaþjófur en ég ætla semt ekki að setja mér það markmið að blogga minna í ár en á síðasta ári. Blogglesturinn ferst að mestu leiti fyrir orðið. Kíki þó á einstaka mann einstaka sinnum.

14. janúar 2007

Heilkenni

Ég er ekki frá því að ég sé með þynkutengd vandamál. Ætli það megi kalla það heilkenni?
Hvað um það, ég eignaðist leðurjakka á útsölu, stílistinn komst ekki með mér í yfirhafnakaup svo ég veit ekki hvort passar inn í fataínuna! Henni finnst ég yfirleitt velja of kellingarleg föt ef ég fæ að leika lausum hala i fatabúðum og af því ég tek stundum of mikið mark á afkvæminu verð ég sjálfstagt til fara eins og gelgja fram á níræðisaldur.
Fór á Argentínu og borðaði hörpuskel og nautalund og iðraðist þess eins að hafa ekki snúið þessu við og haft nautakjöt í forrétt og fisk í eftirrétt. Maturinn var samt auðvitað meiriháttar þó hann slægi ekki út veisluna í Barcelona í haust.
Kíkti á lífið og þegar ég var að sofna ofan í öskubakkann eftir þessi tvö léttvínsglös og lítinn bjór sagði heilbrigðisstarfsmaður mér að bjór ofan rauðvín gæti valdið heilsufarsvandamálum. Þetta var eins og að fara í svæfingu! Mér tókst nú samt að vakna aftur og entist á djammi fram til hálf þrjú. Þetta er svakalegt úthald!

Heilkenni frh.

Við vinkonurnar vorum svo sammála um að svona líf sé best að stunda á sumrin þegar við getum rölt um miðbæinn með okkar bjór í bakpoka og setið á Arnarhólnum milli þess sem við skoðum innréttingar skemmtistaðanna. Leigubílstjórinn okkar var held ég sammála þessu enda búin að kvarta mikið undan fótkulda allt kvöldið.

Moggastelpan er farin í fýlu við moggann og ætlar að hætta og fara að skúra, ég þarf þá einhverntima fljótlega að gerast helgaráskrifandi.

Þrátt fyrir þessi alkóhólheilkenni mín held ég að ég sé að hrista af mér pestina sem olli þreytu, sljóleika, slappleika og geðvonsku í síðustu viku og ég ætla að vera ofur skipulögð næstu daga.
(ég veit, ég veit. Það hefur enginn trú á að það takist en ég má láta mig dreyma)

13. janúar 2007

Gírinn

Renndi bílnum mínum inn í húsið til að þýða hann meðan ég væri í vinnunni en finn ekki vinnugírinn. Og ég sem ætlaði að vera svo dulgeg í eina 2-3 tíma og fara svo að leika mér. Ég hefði þurft að finna í mig sjálfskiptingu.
---------
Ég verð eiginlega að fara á útsölu og finna mér jakka, úlpu eða kápu sem hægt er að nota í vetrarveðri við önnur tækifæri en fjall- og fjörugöngur.
Ég á ekkert nema þunna jakka og svo tveggja og þriggjalaga goritex. Það er nú eiginlega ekki hægt.

Seint eða snemma

Ég ætlaði að fara snemma að sofa en er ekki viss hvort þetta er snemma á laugardagsmorgni eða seint á föstudagskvöldi.
Ég ætla allavega að gera mitt besta til að sofa fram eftir í fyrramálið svo ég verði ekki sofnuð um miðnætti annað kvöld. Það átti og á nefnilega að fara út að borða og í bæinn að skoða næturlífið.
Kannski ég slái svo bara upp partýi á Hótel Centrum. Ég ætla að nota jólagjöfina 2005 og gista þar næstu nótt. Óþarfi að láta vinnuveitandann eyða peningum í gjafakort sem ekki eru notuð. Verst að hafa ekki náð i fleiri, ég veit að þó nokkur verða ekki notuð. Þá hefði ég getað haft partý út um allt hótel.

Svo var mér aldrei þessu vant boðið í partý annað kvöld en þá er ég bara bókuð á Argentínu. Það er lítið réttlæti í þessum heimi að það skuli allt þurfa að hlaðast á sömu dagana loksins þegar eitthvað gerist.

Svo er búið að ákveða Þórsmerkurferð aðra helgi í febrúar. Ég ætla að fara ef ekki rignir eldi og brennisteini!

8. janúar 2007

Lasleiki og hakkabuff

Eftir hitavellu, svima og slappleika helgarinnar ákvað ég að vera heima í dag og safna kröftum fyrir vinnuvikuna og djammið um næstu helgi. Ég er líka orðin sannfærð um að vinnuvikur eigi ekki að vera nema fjórir dagar og kannski ég vinni bara samkvæmt því framvegis. Verst að ég þjáist af afskaplegri ómennsku og leti í þessu veikindafríi og nenni ekki einusinni að elda mér mat.
En þrátt fyrir það eða kannski einmitt þess vegna ætla ég að setja hér inn uppskriftina handa konunni sem á fulla frystikistu af hakki.

Ítalskt kakkabuff með sveppa og tómatsósu
170 gr. hakk
25 gr. hakkaður laukur
30 gr. brauðrasp
10 gr. undanrennuduft
salt og sítrónupipar
1/2 tsk. olía
Allt hrært saman og mótað í buff. sem eru léttsteikt eru upp úr olíunni.

Tómatsveppasósa

50 gr. laukur
100 gr. flysjaðir tómatar, má vera úr dós.
100 gr. sveppir í sneiðum, mega lika vera úr dós
uþb. 1 matsk. tómatmauk(purre)
1 stk pressað hvítlauksrif (ath að 1 teningur af frosnum hvítlauk samsvarar 3 hvítlauskrifjum)
1 tsk oregon
salt og sítrónupipar

1/2 tsk olía

Hakkið laukinn og hitið í olíunni,bætið tómötum, sveppum tómatmauki, hvítlauk, oregon, salti og sítrónupipar í.
Eldið sósuna í uþb. 5 mín.
Leggið buffin í sósuna og látið sjóða. Þetta á að bera fram vel heitt.

ath.
prófið að hakka steinselju í farsið.

---------------------
Þannig var nú það og nú er hægt að elda úr fullri frystikistu af hakki. Og frysta aftur tilbúið í örbylgjuofninn.

7. janúar 2007

?

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi en meðan ég er svo máttlaus að ég kemst ekki upp stigann heima hjá mér öðruvísi en á fjórum fótum á ég lítið erindi í óvissuborgargöngu.
Ætli ég verði ekki lárétt heima við á morgun.

5. janúar 2007

Lestur og kvikmyndir

Ég las meira síðustu 5 daga ársins en alla hina dagana. Kláraði heilar þrjár bækur og fór þar að auki 2 sinnum í bíó á þessum tíma.
Ég ætlaði að skrifa eitthvað voðalega viskulegt um þetta allt en er orðin of sifjuð og löt til þess.
Vinna og ráp á morgun. Borgarganga og félagsmálapakki á sunnudag.
Mér finnst það ætti að lengja öll helgarfrí í þrjá daga.

Slagveðursganga

Ég gekk upp í neðstu hlíðar Esjunnar í gær, það var slagveðurs rigning og varla hundi út sigandi enda vorum við bara tvær þarna á labbi ég og sjúkraliðinn. Einn vinnufélagi minn missti kjarkinn á síðustu stundu og sagðist verða að mæta annarstaðar á sama tíma, það ,,kom upp á" og það sást ekki nokkur hræða frá FÍ á svæðinu.

Þetta var hressandi ganga þó utanyfirflíkurnar okkar væru ekki fullkomlega vatnsheldar, sumar minna en aðrar en það ofkælist enginn á hálftíma þegar gengið er upp í móti.

Útsýnið var lítið eins og sjá má.


Og göngufólkið hundvott.


3. janúar 2007

Esjan

Esjan er á sínum stað og ég er búin að spila upp í vinnufélögunum að taka þátt í Esjugöngu FÍ og SPRON á morgun. Ætli ég verði þá ekki að mæta sjálf og sjá hvort þau hin standa við sitt.
Vinna, partý hjá HugAX og Esjan, þetta er dagskrá morgundagsins.

Hver ætli eldi handa mér!

Ég þyngdist um 1,6 kg. um jól og áramót, ég er sko farin í megrun!

1. janúar 2007

Gobustan - the memory of stones


Klukkutilraun

Gleðilegt ár!