31. desember 2006

Jæja


Ég má ekki vera að því að laga þetta núna. Dótið virkar allt eðlilega þrátt fyrir stafbrenglið og svona til að halda upp á það stal ég einni mynd af Kínaförunum sem ég hef verið að fylgjast með á netinu undanfarna daga.

Ó jú!

Ég sá breytingu!
Djöf........!

Google

Google er búið að benda mér á undanfarna tvo mánuði að færa mig og mitt blogg í nýja útgáfu.
Ég hef verið tortryggnin uppmáluð og neitað að hreyfa mig. Eins og ég er nú yfirleitt nýjungagjörn nennti ég ekki að lenda í neinu tjóni með bloggið mitt. En í dag skipti ég loksins yfir áður en hótanirnar yrðu alvarlegri og viti menn, ennþá sé ég enga breytingu.
Kannski þetta virki bara.

29. desember 2006

Í öllum hornum

Í einu horninu á stofunni er uppstilling sem ég var byrjuð að teikna, í öðru horni er strammi sem ég var byrjuð að sauma í, í kjallaranum er púsla sem ég var byrjuð að púsla og í eldhúsinu liggur bók sem ég ætla að lesa. Í kollinum er ég með einhverjar hugmyndir um að ég þurfi aðeins að sinna félagsmálapakkanum.
Ég er að hugsa um að halda áfram að læra á trévatnslitina sem ég fékk í jólagjöf. Svo er víst ekki bíó fyrr en 22:50. Litla langa barnið mitt ætlar að fara í bíó með mér, það hefur hann ekki gert síðan við fórum á þrefalda Hringadróttinssögu hérna um árið.

Árið

Það hefur verið venja á Íslandi á aðventu að kveðja fólk með ósk um gleðileg jól þegar maður á ekki von á að hitta viðkomandi aftur fyrr en eftir jólin.
Aftur á móti hefur aldrei verið venja að óska fólki gleðilegs árs fyrr en nýja árið er gengið í garð. Það er eðlilegur hlutur að reikna með að sjá flesta sem maður þekkir aftur áður en næsta ár er liðið og því engin ástæða til að koma með þessar óskir fyrr en þá.
Þessum venjum er fólk að rugla saman í gríð og erg og núna kveðja mig allir vinnufélagarnir sem yfirgefa svæðið með ávarpinu ,,Bless og gleðilegt ár" Ég kann bara ekki við að leiðrétta þessa villu hjá þeim, þetta er svo fallega meint, en jafn vitlaust fyrir það!
Þið þrjú og þessi tvö í viðbót sem lesa þetta stundum- ekki óska mér gleðilegs árs fyrr en nýja árið er runnið upp!
Megi helgin vera ykkur ljúf.

Þreytt

Ég ætlaið að láta þetta eina orð í fyrirsögninni nægja þegar ég sá tilboð um að rölta á Hvannadalshnjúkinn í vor og það læddist smá orka í mig. Það væri auddað verðugt áramóta heit að koma sér í Hvannadalshnjúksgönguform en ég held það væri frekar óraunhæft og þar að auki verð ég sennilega í ferðinni ,,miklu" þegar fólk fer að skokka þangað upp. Takk fyrir samt Bjarney.
Kannski þar næsta ár!

Eitthvað verður nú samt að gera á næsta ári, þetta gengur ekki svona. Ég nenni ekki að vakna þreyttari að morgni en ég var þegar ég fór að sofa kvöldið áður.
Ég held að ég verði að stefna á að vera bara í einni vinnu næsta vetur, hvernig sem ég á að fara að því að borga niður það sem þarf til að losna út úr aukavinnunni.

26. desember 2006

Ágætt

Þetta er orðið ágætt og ég er fegin því að á morgun er hversdagslegur vinnudagur og ég þarf að fara að leggja niður fyrir mér hvernig ég á að skipta mér á milli vinnustaða fyrir mánaðamótavinnslurnar.
Úti í Kína ætti að hafa bæst við langþráð jólagjöf hjá fyrrum Tilvonandi Endurskoðandanum og hennar fólki. Ég á eftir að athuga hvort síðan þeirra er komin í lag.
Ég er búin með nýju Eragon bókina og ætla að stilla mig um að byrja á ,,13 sögunni" strax, fara frekar í göngutúr í dag, drekka tvo lítra af vatni til að skola út einhverju af saltinu og sykrinum frá síðustu tveimur dögum og kannski kíkja á einhverja vini og ættingja undir kvöldið.
Ég hafði vit á að bjóða systurinni og systkynabörnunum í kaffi í gær, tók reyndar fram að þau yrðu að hafa með sér kökur ef þau langaði í eitthvað með kaffinu og þau tóku mig á orðinu og komu með meðlætið með sér, ef ég hefði ekki haft vit þessu hefði ég ekki farið úr náttfötunum í gær heldur legið og lesið hvíldarlaust frá morgni til kvölds.

Á morgun er svo sjötugsafmæli þar sem óskað er eftir að andvirði afmælisblóma, konfekts og gjafa renni í styrktarsjóð BUGL og á staðnum verður baukur til að taka við framlögum.

24. desember 2006

Gleðileg jól

23. desember 2006

Ljóð

Ég keypti ljóðabók í gær og ætla að gefa hana í jólagjöf. Kannski tími ég því ekki og sting henni bara í mína eigin bókahillu!
Ég ætla að leyfa mér að birta eitt sýnishorn úr bókinni.

A
Abbadísirnar aðframkomnar, aðgætnar, aðstoðuðu afmynduðu afríkubúana. Afríkumennirnir afskaplega afskræmdir, afsprengi afturhaldssemi, afvegaleiddrar afþreyingar. Agalegt AIDS-ið akkilesarhæll albræðranna. Aleyðing algeng, algjör. Alheimsviðbrögð alhvítingjanna - alljafnan allfárra - allsekki alltaf almennileg. Alnæmisssmitin alvarlegt alþjóðamál, alþjóðastaðlarnir amalegir.

Þessi snilld er eftir Óttar M Norðfjörð.




Og til að viðhalda klígjunni frá því í gær ætla ég að henda hérna inn því sem er kallað ljóð og fólki boðið upp á að skreyta vefkortin sín með.

Frá bróður til systurElsku engillinn minn
Ég sakna þín svo mikið
Þú veist ekki hve mikils virði þú ert mérog hvað ég elska þig út af lífinu
- - - - - - - -
Ég veit að við erum ekki mikið saman en við bætum úr því
Það er sama hvað það er sem þarf að takast á viðhvort sem er gleði eða sorg
Ég mun alltaf vera til staðar til að gleðjast með þérog tilbúinn til að styðja við bakið á þér
Þú getur alltaf leitað til mínað nóttu sem degi
Ég mun ávallt vera til staðar fyrir þig
Þú ert mér allt
Ég elska þig út af lífinu
ÁstarkveðjaÞinn bróðir

Vá!
Mínir bræður færu sko beint á stofnun Sjúkraliðans ef ég sæi svona þvælu fá þeim og þar að auki er ekkert í þessu sem er ljóðrænt.

22. desember 2006

Í dag og í gær

Í gær sá ég fölgulan flekk í Esjunni, það var eins og opinberun, ég var búin að gleyma gula fíflinu eftir alla þessa þoku undanfarna daga.

Í dag sé ég Esjuna í grárri móðu handan við Grafarvoginn, það er gott að vita af henni þegar verður gönguveður á næsta ári.

Ég ætlaði að senda eitt eða tvö vefkort af því eg er of löt til að skrifa á þau en þegar ég fór að skoða ljóðin sem hægt var að bæta inn á kortin á vefkort.is fékk ég klígju og hætti snarlega við.
Mér blöskrar alveg þessi yfirdrifna og velgjulega væmni.

21. desember 2006

Skötulyktin

Mér er boðið í árlega skötuveislu á gamla vinnustaðnum á morgun.
Umm.

20. desember 2006

Ætlaði að skreppa í Garðabæinn áðan en sem betur fer með viðkomu í Kópavoginum, ég slapp naumlega frá því að lenda niður á Hafnarfarðarveginn þegar mér tóks með snarræði og náttlega snildarakstri að beygja til hægri og koma niður við Sunnuhlíð. Annars væri ég ennþá í röðinni yfir Kópavogslækinn.
Þessu svigi fylgdi akstur fram hjá Kvennafangelsinu og ég velti þvi fyrir mér hvort jólaljósaloftbelgurinn yfir útidyrunum væri á einhvern hátt táknrænn og þá hver hjá Fangelsismálastofnun hafi þennan húmor.

Ég þarf að taka til og ég er að spá í að spila playlista sonarins undir verkunum. Núna hljómar í tölvunni St Anger með Metalica. Ætli Brave New World Iron Maden fari inn á Media Playerinn næst.
Svo upp með tiltektarhúmorinn.

Siðferðisbrestir

Ég nenni ekki að eyða tíma í að tjá mig um allt bullið sem er í gangi en tek undir með sumum ræðumönnum.

Getum við réttlætt okkar eigin hegðun með því að einhver sé perri, glæpamaður eða aumingi. Réttlæta siðferðisbrestir annara okkar eigin siðferðisbresti.
Myndum við vilja sitja undir dómi götunnar og þeirra sem ekki þora að koma með ásakanir undir fullu nafni heldur velja þann kostinn að skjóta menn í bakið eða skjóta fyrst og spyrja svo, ef okkur yrði eitthvað á eða erum við öll svo fullkomin að það sé ekki hætta á að við eða okkar lentu í aðstæðum þar sem einhverjum þætti ástæða til að dreifa um okkur sögum.
Er engin hætta á mistökum dómstóla götunnar og eru þeir dómarar tilbúnir til að axla ábyrgð?

Bara nokkrar spurningar sem koma upp í hugann í fjölmiðlafárinu þessa dagana. Þetta eru ekki hugleiðingar um sekt eða sakleysi einstakra manna.

Snillingurinn ég


Ég er snillingur! Ég er með það staðfest bæði í tölvupósti og sms, ég er að hugsa um að forwarda því á börnin mín svo þau séu með þetta á hreinu.

Á næsta ári er ég að hugsa um að teikna jólakort sjálf.

Þetta eru jólakort Sjúkraliðans og þetta til hægri er af skreytingunni minni.

17. desember 2006

Jólaföndur og grannar

Búin að föndra eina og hálfa pottaskreyting, klára köflóttann sokk, þann fyrri kláraði ég fyrir einu og hálfu ári, plasta bók sem ég var með í láni hjá Sjúkraliðanum, leggja grunn að föndri í glerkúlur og drekka slatta af kaffi.
Sjúkraliðinn stimplaði jólakort og byrjaði að teikna pottaskreytingu á kort líka. Ég vona að hún klári það.
Grannkona mín og vinkonur hennar eru í Sing Star áður en þær leggja leið sína í miðbæinn. Ein og ein þurfa þær að fara og ræða prívat við kærasta eða vinkonur í gsm símana og þeim finnst besti staðurinn til þess vera undir stofuglugganum mínum.
Gaman að þessu en sem betur fer á ég eyrnatappa og þá ætla ég að nota þegar ég fer að sofa.

Ég á frí á morgun!
Ég ætla að pakka inn tveimur jólagjöfum og kannski kaupa eina.

16. desember 2006

Gæsir, endur og tiltektarandi.

Jæja búin að vinna klukkutíma lengur en ég ætlaði og búin að afkasta helling. Þá er ekki annað en fara heim og athuga hvort tiltektarandinn finnst á leiðinni.
Ég leyfi mér að fullyrða að það leynist ýmislegt í hrúgunni inni hjá mér sem ekki tilheyrir mér og sumir noti mitt svæði sem alsherjar ruslasvæði.
Svo ætlaði Sjúkraliðinn að fara í jólakortagerð í dag eða kvöld, ég veit ekki hvernig þessi kortafluga komst í kollinn á henni, ég talaði bara um föndur.

----------------------
Fékk upphringingu áðan og boðin önd í jólamatinn, hún er ekki á fæti en allt að því og ég sé fram á að þurfa að rifja upp handtökin við reytingum sem ég fékk nú aldrei háa einkun fyrir sem krakki.
Hvað sem því líður er fiðurfé í jólamatinn væntanlegt, bæði gæs og önd og í staðinn fyrir þann þjóðlega sið að safnast saman yfir laufabrauðsgerð er ég að hugsa um að safna fjölskyldunni saman yfir fiðurkút þar sem við getum æft reytingar í samhljómi jólanna.

Enn vinna.

Ég er á vinnustað. Langar ekkert til að vinna en ég ætla ekki að láta það mér að fara að gera eitthvað annað. Ég veit að það kallar bara á vandræði seinna.
Svo útvarpið á og forritið upp á skjáinn!
Ég er ákveðin í að vinna ekki á morgun.

15. desember 2006

Sjaldséð heimsókn

Ég kem sjaldan við hér orðið. Gef mér tíma fyrir sníkjublogg á annara manna síðum en ekki til að þenja mig á minni.
Ég sé ekki að á því verði nein breyting á næstunni.
Þarf að laga tengla og læt það nægja í bili.

10. desember 2006

Leti

Ég er ekki að nenna þessu en-
Ég er búin að ráðstafa tekjunum af aukavinnunni næstu mánuðu svo ég verð. Hvernig fór ég að því í fyrra að vera í þremur vinnum frá því í ágúst fram að áramótum? Núna er ég ekki að nenna að vera í tveimur.
Best að fá sér kaffi og koma sér að verki.

7. desember 2006

Skipulögð!

Það er sko ekki ofsögum sagt að ég sé skipulögð kona, ég til dæmis stakk símanum mínum ofan í veskið í fyrrakvöld og ákvað að setja hann í hleðslu morguninn eftir í vinnunni.
Og það var ekki skortur á skipulegningu sem olli því að ég leitaði að símanum í gærkvöldi og í morgun!
Ætli það sé hægt að fá minnisstækkun í fólk.
Píparinn spyr mig annað slagið frétta þegar hann hringir frá útlandinu og ég svara alltaf ,,Nei, ég man ekki eftir neinum fréttum" og honum finnst þetta bráðfyndið því eins og hann segir ,, þá er ábyggilega ekkert að gerast því þú ert nú með endæmum minnisgóð." og þar hefur hann auðvitað hárrétt fyrir sér. Það er ekkert að marka þetta með blöðin og nestið sem standa á stól í forstofunni heima núna!

6. desember 2006

Skreytingarnar

Mér var falið að skreyta sófaborðið. Ég er ekki alveg að höndla það í kvöld, er að hugsa um að sjá til annað kvöld.
Svo hlakka ég til jólanna. Það verða margir frídagar og ég er að hugsa um að sofa þá alla. Kannski vakna til að lesa annað slagið.