31. október 2006

Flutt

Ég er flutt í vinnunni og nú þarf ég bara að líta upp frá skjánum til að horfa á yfir Grafarvoginn, yfir á Esjuna, Móskarðshnjúkana og Úlfarsfellið. Það er grænt svæði í kringum Keldur en byggingargammarnir bíða í ofvæni eftir að rannsóknarstofan þar verði flutt í Vatnsmýrina svo hægt sé að klessa niður litlum og stórum kössum á túnið og í móann.
Svona útsýni fékk ég ekki að hafa fyrir framan mig á gamla vinnustaðnum en þar var mér boðiðn vinna aftur en nú fullu starfi. Ég sagði nei takk en af því mér finnst alltaf ég eiga svolítið í fyrirtækinu fann ég , með góðri aðstoð, umsækjanda um starfið og hún var ráðinn á staðnum í atvinnuviðtali áðan.

Ég þarf að fara í húsgagnaflutninga á eftir, Tövunarfræðingurinn er orðin húsgagnakaupóður og sjónvarpið sem ég var að semja um geymslu á verður sennilega selt og nær þá næstum því að duga fyrir sumarbústaðaleigunni um helgina. Sorry Sjúkraliði, ekkert sjónvarp í stofuna til þín!

30. október 2006

Heima

Veik heima!
Og það er alltaf jafn hundleiðinlegt.

Upptekin í vetur

Ég kíkti á gamalt póstfang sem ég nota lítið og sá að ég hafði fengið bréf. Í því stóð:

Spegill fortíðar - silfur framtíðarÍslensk strandmenning - staða hennar og framtíð

Íslenska vitafélagið stendur fyrir röð fyrirlestra veturinn 2006-2007, í samvinnu við Víkina–Sjóminjasafnið í Reykjavík.

Tilgangurinn er að efla vitund fólks um þann menningararf og auð sem við eigum við strendur landsins. Arf sem okkur ber að virða og getum verndað með því að nota hann til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar.

Til liðs við okkur höfum við fengið sérfróða einstaklinga, sem ýmist eru fræðimenn á sínu sviði og/eða eru frumkvöðlar í verndun og nýtingu strandmenningar. Einstaklingar sem eru öðrum fyrirmynd og til eftirbreytni.

Miðvikudagur 25. október
20:30 Minjar Baska við Íslandsstrendur: Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur.
21:00 Kaffihlé.
21:30 Að syngja með sjónum: Valgeir Guðjónsson, tónlistarmaður.

Miðvikudagur 29. nóvember
20:30 Kolkuós : höfn biskupsstólsins á Hólum í Hjaltadal: Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur
21:00 Kaffihlé.
21:30 Hornbjargsviti - við ystu nöf: Ævar Sigdórsson, Óvissuferðum.


(framhald hér fyrir neðan)

Upptekin frh

(frammhald)

Miðvikudagur 31.janúar
20:30 Strandmenning á Íslandi – staða og tækifæri: Agnes Stefánsdóttir,fornleifafræðingur.
21:00 Kaffihlé.
21:30 Sjó- og vatnaskrímsli á Íslandi: Þorvaldur Friðrksson, fréttamaður.

Miðvikudagur 28. febrúar
20:30 Lífið er harðfiskur : Laufey Steingrímsdóttir, formaður félagsins Maður, matur, menning.
21:00 Kaffihlé.
21:30 Maður, matur og haf: Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður.

Miðvikudagur 28. mars
20:30 – trébátar á Íslandi: Emil Ragnarsson, lektor við Háskólann á Akureyri.
21:00 Kaffihlé.
21:30 Verndun,nýting og nýsköpun: Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norður Siglingar á Húsavík.

Miðvikudagur 18. apríl
20:30 Áhrif síldveiða á íslenskan efnahag: Hreinn Ragnarsson, kennari á Laugarvatni.
21:00 Kaffihlé.
21:30 Síldarminjasafnið og áhrif þess á ímynd staðarins. Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síldarminjasafnsins á Siglufirði.

Aðgangseyrir: Ókeypis fyrir félagsmenn Íslenska vitafélagsins og námsmenn, 500 kr. fyrir aðra. Innifalið: fyrirlestrar og kaffi í hléi. (Ath! Árgjaldið í Íslenska vitafélaginu er aðeins 1.500 kr, svo gerist meðlimir og sparið ykkur aðgangseyrinn.)


Ég er að hugsa um að vera upptekin á fyrirlestrum þessa daga- ef ég mögulega get komð því við!

29. október 2006









Bara að prufa

28. október 2006

Fyrir nærri tveimur áratugum heyrðist nokkuð oft í eldra afkvæminu mínu ,,Megum við Magga baka jógúrtbollur" og mig minnir að svarið hafi oftast ef ekki alltaf verið jákvætt- en með skilyrðum um að frágangur í eldhúsinu væri hluti af bakstrinum. Þær stóðu samviskusamlega við að ganga frá eftir sig og nú er ég skömmuð fyrir að ganga ekki frá eftir mig!
En þessi jógúrtbollubakstur hér á árum áður varð sennilega til þess að nú bakar Tölvunarfræðingurinn í tíma og ótíma, finnst það lítið mál og mjög afslappandi handverk. Ég nýt þess í speltbrauðinu hennar í kvöld.

Annars vaknaði ég í morgun með einhvern krankleika og þreytuverki í öllum liðamótum og ákvað þess vegna að vera heima í staðin fyrir að sinna aukavinnunni. Sofnaði aftur í morgun og svaf til hádegis. Sofnaði aftur klukkan fjögur, dúðuð í lopapeysu, lopateppi og undir dúnsæng og svaf í tvo tíma í viðbót. Ég er dauðsyfjuð og er að hugsa um að sofa í sólahring í viðbót.

Það er nú annars bannað að vera lasin um helgar, til þess á að nýta virku dagana!

27. október 2006

27. okt

Það rignir eins og helt sé úr fötu, í bókstaflegri merkingu.
Ég sleppti göngtúrnum, ekki endilega vegna veðurs, ég hef svipaðann veðursmekk og endurnar og finnst gaman að labba úti í rigningu. Aftur á móti vaknaði ég korteri of seint og langaði að að mæta í vinnuna fyrr en seinna. Því fyrr sem ég mæti því fyrr er ég búin.

Fór á handverkssýninguna í Ráðhúsinu í gær og það er ansi margt sem mig langar í þar. Ég er að hugsa um að fara aftur um helgina og láta það eftir mér að kaupa eitthvað, verst að ég get sennilega ekki ákveðið mig.

Ætli ég myndi eftir að taka símann með mér heim úr vinnunni ef ég keypti mér tösku úr geitaskinni undir hann?
Hreindýraskinnið að austan er líka flott en full mikið fyrir efnahaginn.


Afi minn hefði orðið 102 ára í dag og lítill langferðalangur sem ég þekki á fjögura ára afmæli.
Hún les þetta ekki svo það er til lítils að óska henni til hamingu með daginn hérna, ég kíki á síðuna hennar.

25. október 2006

Montserrat








Sjúkraliðinn neitar að lesa ferðasöguna mína, það er hennar mál hún veit þá bara ekki hvers vegna ég var lofthrædd.

24. október 2006

Ferðafélagi minn fullyrti að besti bílstjórinn væir á minnsta bílnum.

http://www.dlc.fi/~marianna/gourmet/multi_ve.htm

Ég fann snilldar síðu á netinu og hún segir mér hvað svartrótin sem ég keypt meða haug af mold og sandi í Hagkaup í gær heitir á hinum ýmsu tungumálum. Þá er bara að finn uppskrift til að nota þetta í.

black salsify, scorzonera mustajuuri svartrot skorsonerrot skorzonerrod svartrót чёрный корень, скорцонера


Og þá höfum við það.

22. október 2006

Barcelona


Það var fyrir viku.









En ég lofaði Sjúkraliðanum að færa henni annað hvort listaverkamynd eða mynd af sætum spánverja.
Hér er mynd af tveimur sætum spænskum.

20. október 2006

Emstrur - Þórsmörk

Brottför í dag klukkan sex!
Ég þarf að skipta út vinum og vandamönnum fyrir aðra sem nenna að ferðast með mér.

15. október 2006

online

Eg komst online og se ad island er enn a kortinu og eg fae enn jafn mikid af ruslaposti.
Tad er solskin a spani og eg tarf ad kaupa mer sko adur en eg kem heim.
Eg var lofthraedd i dag. Nanar um tad sidar!

12. október 2006

Farin

Ég er næstum því farin, ég ætla að leggja mig í klukkutíma áður en ég fer út á völl.
Kem heim á þriðjudagsmorgun.

10. október 2006

Haust

Eldlitt lauf trjánna
undir blýgráum himni,
hver kveður í haust?

Teljarinn

Ætli ég hafi nokkuð gleymt að minnast á það hér að ég er að fara til Barcelona og ætla að kaupa mér skó þar.

Allavega er teljari á síðu úti í bæ þar sem talið er niður til flugtaks, ég kíkti á teljarann áðan og náði þessari tölu. Mér finnst hún flott og ákvað að deila því með ykkur.



1
Days
33
Hours
2000
Minutes
120000
Seconds

8. október 2006

Vinnan

Vinkona mín mælir með því að ég flytji í vinnuna til að halda útsýninu alla daga. Ég eiginlega flutt þangað en hafði ekki mikinn tíma til að njóta útsýnisins í gær og þar sem það er þoka og rigning í dag er ég að hugsa um að fara í aukavinnuna og eyða nokkrum klukkutímum þar.
Er nú samt búin að ganga aðeins fram af mér þessa viku en ég stefni á frí frá fimmtudegi fram á þriðjudag svo mér er óhætt að halda áfram að vinna af mér.

Afmæli

Yngra afkvæmið á afmæli í dag, ég reiknaði það út í gær að hann yrði tuttugu og þriggja ára.
Nú er svo komið að ég þarf ekki bara að reikna út hvað ég er gömu sjálf í hvert skipti sem ég þarf að vita það heldur þarf ég líka að reikna út aldur barnanna. Þegar að því kemur að ég verð hætt að muna hvaða ár þau eru fædd segi ég bara ,,þau eru fædd á síðustu öld" ef ég verð spurð um aldur þeirra.

Í gær var annað afmæli. Afmæli sem var síðast haldi upp á fyrir 28 árum.
Kannski hefði verið bærilegra að halda þann dag hátíðlegan áfram.

Ef og kannski eru stundum stór orð.

6. október 2006

Hauststillur, Esjan og Úlfarsfellið böðuð í sólskini. Ég vildi hafa þetta útsýni út um stofugluggann hjá mér.

2. október 2006

Heimkoma

Ég var mætt í vinnuna klukkan ellefu í morgun og vann þá auðvitað til sjö til að vinna fullan vinnudag. Ég er eiginlega búin að fá nóg í dag og held ég skríði í rúmið á skikkanlegum tíma, þe. núna strax.
Það var annars frábært veður og útsýni austur á landi í morgun, bæði á landi og í lofti. Alveg þangað til flugstjóranum datt í hug að fljúga með okkur yfir slysstaðinn. Ég dróg fyrir gluggann.