31. júlí 2006

Ættarmót með óskyldum.

Komin heim af ættarmóti á norðurlandi. Búin að fá nóg af akstri og gallsteinum í bili.
Hvíldartími framundan.
Góða nótt.

27. júlí 2006

Helgafell

Ég skrapp á annað Helgafell í dag. Í þetta skiptið á Helgafell í Mosfellssveit, það er lítið og lágt en með því að ganga hring upp á því tókst mér að teygja gönguna í einn og hálfan tíma. Þetta smáfell er reyndar nokkuð víðáttumikið að ofanverðu.
Sá eina rjúpu með tvo smáhnoðra með sér og sá fullt af mögulegum gönguleiðum þarna í kring.
Austur á morgun og ég nenni ekki að pakka. Ég er að spá i að vaka lengur og horfa á Rock Star Supernova! Maður verður að vera samræðuhæfur í vinnunni á morgun.

25. júlí 2006

Helgafell og Helguhóll

Samkvæmt minni kortabók eru 8 Helgafell á landinu, þar af tvö á blaðsíðu 2 í Atlasnum, Helgafell á Reykjanesi 338 m hátt og Helgafell í Mosfellssveit 215 m.
Helgafell við sunnanverðan Dýrafjörð er 579 metra hátt flatt að ofan en hæðarlínurnar ansi þéttar fyrstu 500 metrana. Helgafell norður við Hrútafjörð er 301 m hátt, Helgafell í Vestmannaeyjum er ekki merkt með hæðartölu á kortin mínu, Helgafell í Vatnsdalsfjalli norðan við Fljótshlíð, eða tilheyrir það Fljótshliðinni? er 367 m yfir sjávarmáli og eitt Helgafellið í viðbót er á austanverðir Öxarfjarðarheiði eða austan við hana það er ekki heldur með hæðartölu en þjóðvegurinn um Helgafellsbrekku liggur ansi hátt þarna svo það er kannski stutt af honum á toppinn á því. Ef ég fer norður í Reykjahverfi, suðurfyrir ætli ég ætti að skreppa þangað og röltu upp.
Helgufell eru tvö á landinu en 10 Helguhólar eru til.
Hvað ætli valdi þessum kynjamun á örnefnunum. Ég þarf eiginelga að fletta upp þessum Helguhólum og fellum og sjá hvar þeir eru staðsettir.
Ég geri það eitthvert annað kvöld.

24. júlí 2006

Fell á fell ofan

Fór á Helgafellið sunnan við Hafnarfjörð í dag og á Úlfarsfellið á föstudag (ekki á hæsta punkt samt)
Ég er buin að komast að því að það er Helgafell í Mosó líka og ég er svona að spá i að drífa vinnugengið á það næst.
Mig vantar svo fleiri Helgafell til að ganga á í framhaldi af því.

22. júlí 2006

Bívak





Bívak " er að segja má vatnsheldur poki utan um svefnpokann sem líka andar út . Það að sofa úti í svefnpoka innan í bívak er kallað að bívaka . ...
(þessari klausu er stolið af netinu og myndinni frá Tölvunarfræðingnum, allt ófalsað samt en þá sögu er ekki hægt að segja af öllum peningunum sem voru boðnir fyrir stóra bílinn minn)

20. júlí 2006

Veðurfréttir

Í gær hætti veðurvælið í vinnunni og vonandi á höfuðborgarsvæðinu öllu. Sólskin og blíða um allan bæ og allir hættir að kvarta (í bili)
Ég á að vera að vinna fram á kvöldin til að klára fyrir sumarfrí en nenni því ekki. fór í smá moldarrót þaðan í sund og tímdi svo ekki að fara að sofa á svona fallegu kvöldi svo ég rölti um Heiðmörkina fram að sólarlagi. Það var fallegt í gær sólarlagið.
Lagið inn beiðni fyrir fartölvu að láni í morgun svo ég geti unnið annarstaðar en á skrifstofunni í aukavinnunni í kvöld og annað kvöld ef veðrið verður svona áfram.
Langar í langa göngu um helgina. Tölvunarfræðingurinn stefnir á bívakferð á Snæfellsnesið og ég er öfundsjúk.

17. júlí 2006

Sunnudagur til sigurs

Sunnudagar geta verið góðir dagar, ekki síst þegar maður hysjar upp um sig göngubuxurnar og gerir eitthvað af viti.
Ég labbaði Leggjarbrjót í gær með tveimur Flubbum og einum hundi. Flubbarnir fóru þetta á rólegu nótunum til að gera ekki útaf við mig og öll komumst við niður í Botnsdal heil á húfi óhölt. Hundurinn og ég vorum að vísu orðin framlág, bæði komin úr allri gönguæfingu og ég þar að auki með hálfsnúinn fót ásamt öðru en þetta var góð ganga á góðum degi og ég fann eitthvað af sjálfri mér aftur.
Næst væri ég til í að ganga Grindarskörðin eða Síldarmannagötur nú eða upp að Hvalvatni.

16. júlí 2006

Austur

Mig langar austur á land.
Kannski ég ætti að gerast bóndi og búa með endur, geitur og einn hund. Ætli það væri hægt að lifa af því?
Sennilega ekki.

Þegar

,,Þegar spilið", Sjúkraliði er spil sem samanstendur af ótilgreindum fjölda spjalda sem skiptist í tvo bunka. Á öðrum bunkanum er fyrri hluti setningar en á hinum er seinni hluti hennar. Hugmyndinni stal Eilífðarneminn minn einhverstaðar og útfærið hana fyrir rúmlega tvítugar ,,gelgjur"
Hann bjó til slatta af fullyrðingum bæði lókal í klíkunni og almennum, s.s. ,,Þegar rignir.... nota ég regnhlíf" ,,Þegar ég fer í heimsókn til ömmu.... fæ ég köku sem amma bakar" ,,Þegar mér er illt í rassinum.... (óprenthæfur seinnihluti)"
Fyrri hlutinn er á einu spjaldi seinni hlutinn á öðru og svo dregur þú spjald með fyrri hluta og annað með seinni hluta. Út úr þvi getur komið setning eins og ,,Þegar mér leiðist..... blotna ég " í staðin fyrir að upphaflegu setningarnar voru ,,Þegar mér leiðist teikna ég Bubba" og ,,Þegar ég fer í sturtu blotna ég"
Ég verð bara að búa til svona spil handa þér. Það er nefnilega skemmtilegast við að búa til svona spil að maður notar lókal brandara sem enginn skilur nema sá sem fær spilið.
Hugsaðu þér alla Klepparabrandarana sem væri hægt að setja á svona.
Góða nótt.

Hvítvín og afmæli.

Mér finnst hvítvín gott, kannski hef ég drukkið full mikið af því í kvöld. Of mikið til að sofa vel og lengi í nótt! Það þarf reyndar furðu lítið til þess.
Ef Tölvunarfræðingurinn hefði ekki boðið mér með á Leggjarbrjót á morgun og ef veður spáin væri ekki sæmileg og ef mig langaði ekki til að fara í GÓÐA gönguferð á morgun hefði ég hangið á því niðri í bæ fram undir morgun. Það er eiginlega kominn tími á almennilegt djamm. Sjúkraliði hvar ertu?
Kommon! hvað á það að þýða að vera að hanga þarna í Feneyjum norðursins núna.
En í trúnaði sagt, þá er hundleiðinlegt á Rex.Hundleiðinleg tónlist, og ef ekki hefðu verið svona frábærir vinnufélagar (ég hlýt að hafa drukkið töluvert) hefði ég sko ekki hangið þarna!
Tonlistargreind mín hlýtur að hafa þroskast undanfarin ár. Ég þoli varla að heyra Abba og BeGees sem var það eina sem staffinu á Rex datt í hug að hentaði fyrir gamlingjana sem voru óvart þarna í kvöld Mig dauðlangaði á Dubliners því þó staðurinn sé sjúskaður, tættur, og að hruni kominn eins og fólkið sem sækir hann er þó almennileg músík þar flestar nætur.
Ég er fjandinn hafi það farin að hallast að tónlistarsmekki yngra afkvæmisins og farin að kunna að meta djass líka. Svei mér þá!

15. júlí 2006

Ammæli

Ég er að fara í afmæli á morgun, vinnufélaga afmæli, konuboð.
Ég slysaðist til að segja þeim frá ,,Þegar spilinu" og hugmyndin þótti auðvitað svo góð að nú sit ég uppi með að þurfa að útbúa eitt fyrir afmælið á morgun og afkvæmið sem ég treysti á að hjálpaði mér á stað með að skipta út textanum í kvöld svarað ekki í símann sinn í allan dag og fram á kvöld.
Ég er ekki viss um að ég svari honum næst þegar hann vantar eitthvað. :(

Leiðrétt lagað og ritskoðað

Þurfti auðvitað að laga, leiðrétta og ritskoða og skipta svo færslunni í tvennt eins og vanalega. Óþolandi kerfi að verða en ég hef ekkki frétt af neinu skárra ennþá.

Leggjarbrjótur og snúinn fótur

Tölvunarfræðingurinn og vinkona hennar ætla að labba Leggjarbrjót um helgina, mér tókst að fá hana til að bjóða mér með. Mér tókst líka að fá leyfi fyrir kátan blending sem heldur að hann geti gengið með okkur. Nú ef hann er orðinn of gamall og lúinn og verður haltur og skakkur í ferðinni verðum við bara í stíl hann og ég.
Ég rak mig á það um daginn þegar ég lá fyrirvaralaust á grúfu með snúinn fót að það er betra að hafa einhvern með sér í gönguferðir, meira að segja hundkjáni sem gerði ekki annað en liggja manni til samlætis væri ágætis félagsskapur.

14. júlí 2006

Þar hvílast þeir ...I

Í Hólavallakrikjugarði er grafið skáldaúrval, þverskurður íslenskra ljóðskálda (látinna). Í þessum kirkjugaðir tíndi ég fyrir áratugum síðan blóm í vendi og færði mömmu. Það var stutt að fara á þeim árum og hæfilegt bil undir hliðgrindina. Ekki náði ég upp í slána til að opna.
Nú læt ég mér nægja að hlusta á ljóðaupplestur við leiði löngu grafinna höfunda, á rigningarkvöldi á köldu sumri.
Gjóaði augunum samt annað slagið á girnilegar plöntur sem vaxa þarna á víð og dreif nokkuð sjálfráða um sinn vaxtarstað.

Ég kann vel við mig í kirkjugörðum og eftir kvöldið i kvöld er ég komin á þá skoðun að það sé kannski best að setjast að í einum slíkum að ferðalokum. Annars var ég að hugsa um að láta blása mér út í veður og vind.
Ekki það að það komi til með að skipta mig miklu máli svona eftir á en það gætu aðrir átt hlut að máli líka og af þvi ég er stjórnsöm með endæmum vil ég endilega að þau eigi erindi í friðsælan og gróðursælan kirkjugarð. Helst með mosavöxnum legsteinum og trjám. Þau þurfa að læra að meta það.

Þar hvílast þeir ... II

Annars hafa allir kirkjugarðar eitthvað mikið við sig, hver á sinn hátt. Gamlir og grónir kirkjugarðarnir næst mér, með mosavöxnum legsteinum, steyptum veggjum utan um grafirnar, gömlum þéttum trjágróðri og gömlum sögum. Nýir, rennisléttir, velskipulagðir kirkjugarðar, með nýjum sögum. Kirkjugarðar við sjóinn umvafðir sjávar- og þaralykt, þar sem enginn gróður þrífst fyrir sjóroki og tjaldar og mávar spígspora um ósnortnir af öllum sögum þeirra sem þar hvíla. Kirkjugarður í París með framandlegum grafhýsum og leiðisskreytingum og allstaðar segja ártölin sína sögu. 1918-1919 á Íslandi 1941-1945 í Frakklandi.
Kannski safna ég kirkjugörðum eins og sögupersónan sem safnaði jarðaförum.

Hér hvílast þeir sem þreyttir göngu luku
í þagnarbrag
Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku
einn horfinn dag.

Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið
svo undarleg.
Það misstu allir allt, sem þeim var gefið
og einnnig ég.

Og ég sem drykklangt drúpi höfði yfir,
dauðans ró,
hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir,
eða hinn sem dó?



Steinn Steinar.
Ég veit ekki hvort ég man þetta rétt en... það er nokkuð nærri lagi.
Jamm ég þurfti að laga það. Minnið er svo hægvirkt orðið.
¨°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°

13. júlí 2006

Mr. Skallagrímsson

Frábær sýning í Borgarnesi, ég mæli með ferð á Landnámssetrið að skoða landnámssýninguna þar í kjallaranum, fara svo á veitingastaðinn í hinu húsinu sem er samt undir sama þaki og enda á að hlusta á söguna af Mr. Skallagrímssyni. Ég er að hugsa um að fara einhverntíma aftur og taka allan pakkann.

7. júlí 2006

Smitsjúkdómar og miðakaup

Veira sem ég smitaðist af einhverntíma, kannski fyrir fæðingu, en hefur legið í dvala nokkuð lengi er að herja á mig núna. Ég veit ekki hvað veldur þvi, kannski þessi gífurlegi teikniáhugi Sjúkraliðans sem loksins tók sig saman í andlitinu og fór að vinna með þá hæfileika sína sem ég er búin að hamra á í mörg ár að hún eigi að sinna.
Það er merkilegt með þetta fólk sem hefur ,,talent", eins og einhver myndlistarkennarinn minn kallaði það, það lítilsvirðir þá hæfileika sem því voru gefnir með genunum, berst um í einhverju drulludíki sem þeir eiga ekkert erindi í og skilar þeim litlu og sóa svo kröftum sínum í að hringla fram og til baka í baráttu við vindmyllur.
Þeir taka til sín sem eiga.
Allavega er einhver fiðringur í fingrunum á mér og ekki vegna þess að mig klæi í fingurnr eftir að skrifa skammarpistla til vina og vandamanna, heldur langar mig fj. mikið til að finna teikniblokkina og blíant.
Ég á svo sem einhvern slatta af hálfkláruðum myndum en ég hef ekki nokkra trú á að ég nái að gera neitt af viti við þær og sjálfsagt langbest að skríða undir sæng og sjá hvort ég teikna ekki bara í svefni.
Svo keypti ég mér miða á sýningu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Mætin þar á sunnudagskvöld og það er eins gott að hún verði eins góð og af er látið.

Helgin framundan

Aldrei þessu vant spáir heiðskýru og þurru veðri um helgina. Kannski það þaggi niður í nöldurliðinu í nokkra daga. Ég er orðin frekar þreytt á þessari síbylju um kuldan og rigninguna og ,,ekki nema fimm þurrir dagar í júní" er sagt á innsoginu. Kommon það var sól og blíða hér í dag en þetta taldist ekki ,,þurr" dagur á veðurstofunni, það voru nefnilega skúrir í nótt.
Ég er farin að dásama veðrið hástöfum þegar ég heyri þennan gamalkunna söng í vinnuni. ,,Hvað eruðið að segja, mér finnst svo frábært veður í dag, það er svo gaman að fara út að labba í rigningu" Þetta dugir til að eyðileggja móralinn og samstöðuna um veðurvælið þann daginn.
Já, eftir nokkra daga í 35 stiga hita finnst mér íslensk rigning og rok notalegt. Í gær var lágskýjað, þægilegir sumarskúrir hreinsuðu loftir og Gravarvogurinn var spegilsléttur í logninu. Það VAR gott veður! Svo er líka sumar og það felst ekki í því að sólin steiki mann í bak og fyrir, það felst í gróðirinum, birtunni, fuglalífinu og því að hiti fer upp fyrir frostmark.
En eins og ég sagði er spáð ferðaveðri um helgina en ég er ekki að finna neinn sem má vera að eða vill koma með mér í ökuferð upp um fjöll og firnindi. Kannski ég bjóði Kennaranum með mér að skoða landnámssetrið i Borgarnesi og fari lengri leiðina. Um Uxahrygg eða Kaldadal, ég þarf ekkert að segja honum frá því fyrr en það er of seint að snúa við.
Sá reyndar einhvern dásama leiksýningu sem er í landnámssetrinu í Borgarnesi og mig auðvitað dauðlangar til að sjá hana. Það er kominn tími til að vera svolitið menningar og þjóðlegur.
Ég athuga á morgun hvort ég fæ miða.

1. júlí 2006

Meira hitt og kannski þetta.

Í dag er veðrið hagstætt fyrir fjallgöngur, Leggjabrjótur, Móskarshnjúkar, Vífilsfell, Ármannsfell, Botnssúlur, Vörðu-Skeggi, Grindarskörð. Allt á sínum stað en ekki beint það sem maður labbar einn á með litlum fyrirvara.
Mig langar líka í styttru göngutúr en finn engan til að labba með, Kennarinn nennir ekki, Sjúkraliðinn gerðist liðhlaupi og flúði í dreyfbýlið, Blómakonan hefur mikið að gera, afkvæmin ýmist erlendis eða hafa ekki áhuga á að fara út fyrir malbikið og svo framvegis. Ég verð að finna aftur þann hæfileika að njóta þess að fara ein.
Ég treysti mér ekki í vígsluferðina á Kvíindisfellið. Ætla að fara í tiltektarferð á sunnudaginn í Hvítárnes og Hagavatn og get ekki verið alla helgina á þvælingi þar að auki virðist þessi hjólatúr minn á Smáratorgið og aftur heim hafa verið of mikið fyrir ákveðnar vöðvafestur. Reyndar fara seturnar í vinnunni verst með mig og ég bara veit ekki hvernig á að höndla það dæmi.

Bíllinn minn er seldur, held ég, það kemur í ljós um helgina hvort þau standa við tilboðið. Ef það gengur upp hef ég um tvo kosti að velja og valið er erfitt. Ég get valið um að keyra á ´87 módelinu af Bens disel eða ´97 módelinu af Suzuki Vitara líka disel. Mig langar í báða, finnst ljúft að keyra Bensinn sem ég er búin að vera á undanfarið en jeppakrílið er ágætt í akstri líka og þar að auki kemst það ýmislegt sem Bensinn kemst ekki. Til dæmis gæti ég alveg farið á honum inn í Hvítárnes.





Hitt og þetta

Ég prófaði að hjóla á tilvonandi vinnusvæðið mitt í fyrrakvöld til að sjá hvað ég verð lengi á staðin. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið! Miðað við óbreyttar forsendur, þe. að ég verði ennþá á sama stað á þessu nesi sem ég bý á og forsvarsmenn vinnustaðarins verði ekki búnir að skipta um skoðun, verð ég reyndar rúmar 10 mín að hjóla í vinnuna. Það er drjúg leið frá Hafnarfjarðarveginum inn að Smáratorgi.
Af vinnustaðarkaffistofuumræðum má draga þá ályktun að ég komi ekki til með að geta þegið hádegisverðarheimboðið sem ég sá hérna neðar á síðunni. Það er ekki reiknað með að við förum úr húsi frá mánudegi til föstudags en þá megum við væntanlega fara heim. Þarna á nefnilega að vera matsala, stærri og meiri en sú sem við höfum, líkamsrækt og allt sem þarf til að halda starfólki við efnið frá morgni til kvölds. og þar sem við förum úr 44o m2 í 880m2 verður ábyggilega pláss fyrir dínur og svefnpoka eða gestarúm úr Rúmfatalagernum við skrifborðin. En ef ég sé mér nokkuð færi á læðist ég út í dulargervi og kíki í hádegiskaffi. Alltaf gott að hafa plan fyrir áramótin 2007-2008. ;)