30. janúar 2006

Líf mitt í hnotskurn.

Ég er að átta mig á því hvað vinkona mín, fyrrverandi tilvonandi endurskoðandinn er farinn að fjarlægjast þessi mikilvægu viðmið bókarans. Hún er ekki lengur meðvituð um að skiladagur VSK og launamiða er þann 6.febrúar. Dagurinn sem allt mitt líf snýst um þessa dagana.
Svei því! Og svei því að þegar maður er með sín verkefni á hreinu og allt í orden skal einhver aulinn þurfa að losna við verkefni sem hann sér ekki fram að að klára í tíma. Ég nenni ekki að vinna til kl. 10 í kvöld og næstu kvöld :(


og uppþvottavélin ,,nýja" tekur ekki fimm potta plús helling af öðru :(

29. janúar 2006

Ég mátti til .

Rakst á þetta og auðVITAÐ þar ég að prófa allt svona.
Finnst þetta ekki vitund ég en ef maður prófar þarf að klára dæmið.

Your Birthdate:

You are a virtual roller coaster of emotions, and most people enjoy the ride.
Your mood tends to set the tone of the room, and when you're happy, this is a good thing.
When you get in a dark mood, watch out - it's very hard to get you out of it.
It's sometimes hard for you to cheer up, and your gloom can be contagious.

Your strength: Your warm heart

Your weakness: Trouble controlling your emotions

Your power color: Black

Your power symbol: Musical note

Your power month: February

29. janúar

Næsta peysa og næsta peysa sagði konan og vissulega hefur hún nokkuð til síns máls. Næsta peysa er nærri búin og ég datt í prjónafíkna í dag.

6. febrúar nálgast óðfluga en allt það sem ég þarf að vera búin að gera fyrir þann dag minnkar ekkert. Það bætist við frekar en hitt! Ég er farin að vakna upp með andköfum á nóttinni þegar öll ókláruðu verkefnin mín grípa mig kverkataki og sparka í þindina í mér!

Ný vinnu- og heilsuræktarvika frammundan og þar sem ég er búin að jafna mig á mestu reiðinni eftir uppvaskið ætla ég að safna kröftum til að geta vaknað í leikfimi í fyrramálið.

Hér verður engum gestakokkum framar hleypt í eldhúsin nema til að sjóða pulsur. Ætli það sé annars hægt að óhreinka fimm potta við það?

26. janúar 2006

Undur og stórmerki

Mér tókst að klára lopapeysuna á Tölvunarfræðinginn. Með rennilás og öllu.

Ælti það sé teiknikvöld í kvöld?

25. janúar 2006

Myndakvöld á miðvikudegi

Fór á myndkvöld hjá FÍ ásamt hinum tvöhundruð og eitthvað sem fengu sömu hugmynd. Sat í stúkusæti uppi á borði upp við vegg og í kaffihléi var hægrifótur lamaður og ég sá ekki fram á að labba eitt eða neitt framar, hvorki á þeim slóðum sem Ómar var að sýna okkur frá né annarstaðar. En eftir kaffi rölt og snittuát var farið að færast líf í löppina og ég er ákveðin í að labba helling i sumar.
Sá fullt af fólki sem ég þurfti að heilsa upp á og örfáa sem ég náði að heilsa upp á. Hinir vita ábyggilega hvers þeir fóru á mis.
Hitti meðal annars ferðafélaga af Ströndunum sem er að kortleggja og GPS leggja gamlar slóðir á Mosfellsheiðinni. Ég kunni ekki við að biðja hana að taka mig með næst þegar hún færi.
Hitti ferðafélaga úr Hlöðuvíkinni frá því í sumar, sú verður með ferð í sumar sjálf og það kemur sterklega til greina að fara með henni ef ég verð ekki utan við landssteinana þá. Mig klæjar í fæturnar að komast á Langakamb og ég er viss um að ég gæti bundið fyrir augun á Sjúkraliðanum og leitt hana með mér þangað.
GPS námskeið í FÍ fljótlega og ætli ég verði ekki að kosta því til. Ég sé ekki fram á að ég gefi mér tíma til að læra á græjuna mína á eigin spýtur.
Frönskunámskeiðið féll niður af tæknilegum ástæðum, ég var ein skráð þar! En skrautsaumurinn er á áætlun, þar eru 6 skráðir enn sem komið er.
Leikfimi í hádeginu á morgun og á föstudagsmorgun svo ég geti haltrað um í sumar án þess að þurfa með mér súrefni og hjólastól ég vil frekar ganga en bródera ef ég þarf að velja.

22. janúar 2006

Sunnudagur

Æjá enn einusinni kominn sunnudagur og helgin of stutt eins og venjulega. Ég átti eftir að gera svo margt.
Eftir þjóðbúningaskoðunina á laugardag fór ég beint í búð og keypti mér eingirni og prjóna til að byrja á skotthúfunni við þjóðbúninginn en þegar til kom langaði mig svo miklu meira til að prjóna mér tösku og þæfa hana. Þófataska með orkeringu eða steinbítsroði er efst á óskalistanum núna en það liggur hálfkláruð lopapeysa í sófanum (sem hefur samt bætst við í dag) og önnur með hálfum rennilás liggur á borðinu en kollurinn á mér er fullur að myndum af þæfðum veskjum og töskum. Kollurinn á mér er stundum of stór!
Ég er löngu búin að sjá að það eru of margir vinnudagar í hverri viku og helgarnar of stuttar. Mér finnst það ætti að vera baraáttumál í næstu kjarasamningum að snúa þessu við.

21. janúar 2006

Laugardagur

Laugardagur til lukku eða hvað.
Ég er að fara að skoða þjóðbúininga í Heimilisiðnaðarfélaginu og kannski á ég fyrir einum kaffibolla og einum miða á einhverja sýningu í bænum líka. Ég var með útsölufiðring en við athugun á efnahagsmálum komst ég að því að minn æðri máttur hefur lokað fyrir afleiðingar þess fiðrings. Sennilega er ég stikkfrí þangað til ættingjarnir eru búinir að gera upp við mig jólaverslunina og þá verður ekki lengur tilefni til að fara og kaupa sér ódýran útivistarfatnað eða stígvél á skóútsölu.
Alltaf heppinn! Enda vantar mig ekkert og á einhverstaðar eins og eina inneignarnótu til að nota á útsölu ef fíknin heltekur mig!

14. janúar 2006

Sko

Ég hef bara ekki tíma til að skrifa á mörgum stöðum svo ég segi ekki meira hér í dag.
Annar langar mig mest til þess í augnablikinu að læra á gönguskíði!

12. janúar 2006

12. janúar

Ætli ég verði ekki að flytja símaviðskipti mín til Símans.

11. janúar 2006

11. janúar

10. janúar 2006

10. janúar

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu af lestri ýmissa kommenta og færslna að ég eigi vinkonu sem ekki les póstinn sinn!
Ætti ég að senda henni sms um helstu fréttir sem við fáum frá sameiginlegum félagsskap og hvaða viðburðir eru í gangi. Kannski er hún ekki á sama póstlista og ég. Þetta þarfnast athugunar.


Viðburðir dagsins hafa styrkt þá skoðun mína að lestur og kaup á ákveðnum ,,fjölmiðli" séu til þess eins að skemmta skrattanum og nú sé kominn tími til að fólk líti í eigin barm og íhugi hvers vegna þessi útgáfa hafi gengið svo lengi sem raun ber vitni. Ef óhroðinn selst er hann gefinn út, svo einfalt er það.

9. janúar 2006

9. jan

Ég hafði 8. janúar tvo daga í röð en núna er örugglega kominn níundi. Lengsta vika ársins búin og ég byrjuði í leikfimi aftur! Fyrsti leikfimitíminn í heilt ár í morgun og rosalega væri gott að fara heim og leggja sig núna!

7. janúar 2006

8. janúar?

Ég er ekki viss en ég held að það sé kominn áttundi janúar 2006. Auðvitað get ég séð þetta með að fara inn á mbl.is nú eða bara dagsetninguna í tölvunni en þegar allt kemur til alls þá skiptir það svo sem ekki öllu máli. Ég veit að það er laugardagur og ég er mætt í vinnuna en ætla mér ekki að halda því fram að ég nenni að gera neitt. Auðvitað ætti ég að fara og hella mér upp á kaffi aftur, það sem ég bjó til áðan er svo þunt að ég get lesið tölvuskjáinn í gegnum það, bretta svo upp ermum og drífa í því sem þarf að gera. En, við sjáum nú til.
Það er gönguveður og allirs sem mér dettur í hug að draga með mér í göngutúr eftir vinnu eru sofandi og sumir á leið í vinnu um leið og þeir vakna. Allt stefnir í að ég rölti eitthvað ein og yfirgefin á eftir og ekki einu sinni með batterí í GPSinu svo ég geti klárað að læra á það.
Talandi um að læra- ég fór á síðuna hjá Endurmenntun HÍ áðan og sá ekkert sem mig langar á þar. Aldrei þessu vant!
Annars má ég ekki skoða of mikið af námskeiðsframboðinu, ég ætla á frönskunámskeið og verð að passa mig á að halda mig bara við það. Bannað að skipta um skoðun núna og það er líka bannað að skrá sig á fleiri en eitt á þessari önn. Ég ætti að vita af reynslunni að það verður bara til vandræða.

5. janúar 2006

5. jan.

Það snjóaði jólasnjónum áðan svo þétt að það rétt sást yfir Grafarvoginn. Ég er á leið í skírn og skírnarveislu.

Sendi bréf á vinkonurnar í gær til að athuga áhuga á handavinnukvöldi og mér hefur ekki verið svarað ennþá. Ætti ég að upplifa höfnun?

1. janúar 2006

Nú árið er liðið

í aldana skaut og aldrei það kemur til baka.


Það væri synd að segja að éghefði kvatt gamla árið hressilega. Vaknaði í morgun eins og undanfarna morgna undirlögð af vöðvabólgu, höfuðverk, svima og ógleði. Dreif mig samt í göngutúr í dag þegar ég var búin að keyra Tölvunarfræðingnum á vaktina í flugeldasölunni. Það var ein og ein hræða að viðra sig eða hundinn við Nauthólsvíkina í dag en að mestu leiti hafði i ég regnvotar klappir og stíga fyrir mig. Æðarfuglinn í fjörunni söng ótruflaður sitt vanalega ,,úúúúú" og ég velti því fyrir mér að finna mér útivinnu.

Heilsan lagaðist ekki þó liði á daginn en þessi atvinnusjúkdómur minn hefur verið frekar þrálátur undanfarið og olli því að í dag að ég hrindi í soninn og pabba hans og tilkynnti þeim að þar sem ég væri óvinnufær og héldi ekki lengur höfði yrðu þeir að koma og taka skurk í eldhúsinu og sópa mesta draslinu út svo við gætum borðað hér í kvöld eins og til stóð. Þeir brugðust við og mættu í eldhúsið til að bjarga því sem bjargað varð meðan ég lá rænulítil og uppdópuð undir teppi í stofusófanum fram undir kvöld. Heilsan var skárri þegar komið var undir kvöld og með ósamstilltu átaki hafðist að koma matnum á borð ekki meira en klukkutíma á eftir áætlun. Sjúkraliðinn kom með Sponsið í mat, Pictonary, Skaup og flugeldaskothríð og eins og vanalega fannst mér yndislegt þetta skotbrjálaða fólk sem lýsir upp himininn af flugeldaskothríð fyrir mig á gamlárskvöld.

Gleðiðlegt ár.