Ó, já. Vorið er komið og ég er að átta mig á hvað ég potaði miklu af haustlaukum miður í garðbleðilinn hér bak við húsið í haust. Það var sko hellingur og svo þarf ég að kíkja í fósturgarðinn og sjá hvað ég potaði miklu niður þar.
Ég verð alltaf manísk á þessum tíma, langar út að grafa í garðinum fram eftir öllu kvöldum og fara út að hlaupa og hjóla og .... Þetta er snertur af geðhvarfasýki og ég er að hugsa um að vera með hana áfram, ómeðhöndlaða. Mér finnst nefnilega svooo gaman að fá svona köst.
Það ringdi eldi og brennisteini í morgun og ég ákvað að það væri ekki göngutúraveður þó ég væri búin að lofa mér og Sjúkraliðanum að fara út að labba. Nú skýn sólin og fuglarnri syngja en neita mér um að syngja með, laukarnir spretta og ég náði í hjólið í geymslu. Best að drífa sig og láta reyna á hvort ég verði nokkuð haltari þó ég hreyfi mig.
29. apríl 2006
27. apríl 2006
Start
Jæja páskarnir búnir, páskafríið í roki, rigningu, snjókomu, frosti, blindbyl og reyndar votti af sól og logni er búið. Brjálað að gera eins og venjulega þarf að vinna upp fríin og svo hringir einhver og það vantar einhvern í þetta og hitt og ég get ómögulega sagt annað en já. Auvitað segi ég já af því mig langar til þess á því augnabliki en svei mér þá ef það væri ekki gott að eiga laugardaginn fríann.

Ég fékk svona dag í fríinu

og um kvöldið leit það svona út

Ég fékk svona dag í fríinu

og um kvöldið leit það svona út
11. apríl 2006
Ættingjasamkomur

Ég mætti á undirbúiningsfund ættingjasamkomu sem er verið að plana 2007.
Hitti eitthvað af fólki sem ég vissi ekki að væri til og las langan bálk niðja og niðjaniðja til að finna út svo litið bæri á hvaða fók væri þarna og hvernig það er skylt mér.
Ég held að ég hafi komist klakklaust frá þessu. Fann út hver var hvað og hvernig þeir tengdust mér. Gælunöfn geta verið til leiðinda þegar svona stendur á, ég þurfti að hlera nokkuð mikið til að átta mig á nöfnunum á bak við gælunöfnin.
Var skipuð í nefnd og ótrúlegt en satt á sú nefnd að halda utan um kostnað, greiðslur og skráningu ætmennana. Ó mig auma. Svo þarf að skipuleggja Parísardvöl og ég sem var búin að finna tvær íbúðir við sömu götu í besta hverfi Parísar klikkaði á að senda staðfestingu á míni íbúðinni fyrir soninn og tengdadóttirina. Þau geta að vísu fengið svipaða íbúð en við aðra götu. Götu sem er svo lítil að ég finn hana ekki á kortinu sem ég gróf upp á netinu. Ég er að hugsa um að bóka þá íbúð þó þau séu ekki búin að ákveða sig gríslingarnir.
Svo þarf að borga og svo þarf að senda meil á eiganda og svo þarf að .....
Ég er eitthvað rög við að klára málin, ef þetta eru nú ruslarahús með fótósjoppuðum myndum af íbúðunum og ég búin að planta vinum og vandamönnum niður sitt í hverri íbúðinni.... Hvað þá?
6. apríl 2006
Pestardagar
Svei mér þá ef ónæmiskerfið í mér hefur ekki hrunið í vetur. Ég er komin með hálsbólgu, aftur og nýbúin.
Ég ætla að vera í fríi 13. til 23. apríl og vonandi tekst mér að koma ónæmiskerfinu í lag.
Það er bara vika eftir fram að fríi!
Ég ætla að vera í fríi 13. til 23. apríl og vonandi tekst mér að koma ónæmiskerfinu í lag.
Það er bara vika eftir fram að fríi!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)