Ég er hundlöt og nenni ekki að byrja á enn einni brjálaðri vinnuvikunni.
Kennarinn var með sumarbústað á leigu um helgina og bauð mér og Kennaranemanum þangað og auðvitað þáðum við það.
Göngutúrar í vetrarsól, prjónar og lestur, heitur pottur og stjörnuskoðun. Ég hefði alveg þegið nokkra daga í viðbót í afslöppun.
28. nóvember 2005
23. nóvember 2005
Test
Þessi síða hefur ekki alveg verið að samþykkja ,,Publish Post" í dag. Það er orðið frekar pirrandi en eftir langa íhugun og athuganir á hinu og þessu hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það sér búið að setja á mig kvóta. Ég kom síðustu ræðu ekki inn í einu lagi en ef ég skipti í tvennt samþykkti forritið blaðrið.
Ég er lítið fyrir það að láta banna mér að tala og skrifa þess vegna bara framhaldssögur ef þarf.

Samviskubit og réttlætingar
Ég er búin að eyða heilum degi í að réttlæta veikindaleyfið mitt fyrir sjálfri mér. Ég þarf ekki að réttlæta það fyrir vinnuveitandanum, hann lítur á það sem sjálfsagðan hlut að starfsfólk veikist annað slagið. En ekki ég! Mér finnst ég eiga að vera í vinnu ef ég get reist höfðuið frá kodda og það gat ég í gær og get líka í dag. Samt er mér að takast að ýta samviskubitinu út í ystu sálarkima og er þá að takast á við þessa þráhyggju að finnast ég ,,eigi" að gera eitthvað af viti ef ég hangi heima.
Uppfull af þessari þráhyggju ákvað ég að takast á við grængolandi aðsetur fiskanna minna í gær og með herkjum og löngum hléum tókst mér að skrúbba og skúra þörungagróðurinn innan úr heimili þeirra og af húsmununum. Fiskabúrið stendur tandurhreint á baðinu og bíður eftir að ég haldi á því að sinn stað. Þetta hafðist á einum degi og geri aðrir betur.
Þó ég sé byrjuð að æfa mig í æðruleysi gagnvart jólamarkaðsetningargeðbilinni og taki auglýsingabæklinga ýmiskonar sem hrynja í stórum stíl inn um bréfalúguna með töngum og beri þá beint í ruslafötuna er ég ekki í neinni jólaafneitun og er byrjuð að hugsa um að setja jólaskreytingu í fiskabúrið. Ef fiskarnir mínir verða ekki allir dauðir fyrir jól er ég að spá í að setja jólatré upp í hægra horninu baka til hjá þeim og kannski finn ég eitt jólahús til að setja í hitt hornið, hreindýrasleði tæki sig svo vel út í miðju búri. Ég veit ekki alveg hvar ég kæmi jólaseríu fyrir hjá þeim.

22. nóvember 2005
Framhald
Allt er þetta á teikniborðinu en mér finnst ekki tímabært að setja þetta upp strax, ég held þeir verði þá orðinir fjarska leiðir á skrautinu og biðinni eftir jólunum þegar þau loksins koma.
Lítill drengur sagði um daginn svo ég heyrði ,,Hvenær koma jólin" og svarið var ,,Bráðum". Mig langaði til að halda ræðu en stillti mig um það. Fimm vikur í lífi þriggja ára barns er eins og fimm mánuðir í lífi fullorðinna, það er ekki bráðum. Bráðum á þessum aldri er á morgun.
Hvers vegna er fólk að skapa þetta langvarandi spennu og streituástand hjá börnunum með þessum alltof langa undirbúinin og aðdraganda. Viku fyrir jól er hæfilegt að segja börnum að nú líði að jólum. Ok, þrettándögum fyrir jól, alls ekki meira.
Og þá ætla ég að fara að dæmi kattarinns og kanna hvaða sófi er mýkstur á heimliinu, kannski kanna hvort maginn samþykkir kaffibolla.

18. nóvember 2005
18 nóv.
Ég fór og fékk mér hádegismat með vinkonu minni í dag. Vinkonu minni sem bað mig að vera varamaður til Kína.
Mig dreymdi í fyrrinótt að ég stæði yfir skál fullri af tærri austurlenskri súpu með örlitlum lit og lykt af plómum. Mig langaði til að borða þessa súpu og horfði á hana með áfergju þegar vinkona vinkonunnar kom, hvolfdi úr skálinni á borði og súpan breyttist í tært hlaup sem varð rykugt á borðinu. Ég fór nú samt og náði mér í skeið til að borða hlaupið en það hafði umbreyst í enn einn réttinn þegar ég kom og hann var ekki hægt að borða með skeið.
Ætli þau þurfi nokkuð varamanninn í Kínaferðina!
En þar fyrir utan á þessi vinkona mín afmæli í dag.
Til hamingju með það!

6. nóvember 2005
Ljósin mín.
Þrátt fyrir allan óstöðugleikan í lífi mínu hef ég haft í kringum mig vita sem hafa lýst traustir og staðfastir á hverju sem gengur. Til þeirra liggja ræturnar og áhrifin frá þeim hafa mótað mig og gert mig að því sem ég er í dag. Þeim á ég mikið að þakka.
Það slokkanði á einum þessara vita minna í dag og mér finnst haustið dimmt, nakið og kalt. Örlítð svarthol myndaðist í sálinni.
Önnur kona missti bæði eiginmann og systur í dag. Hann fór hratt yfir í fjölskyldunni, maðurinn með ljáinn.

5. nóvember 2005
4. nóvember 2005
Gamalt klukk
Ég var byrjuð að svara þessu klukki 21. sept. Mér snarbrá þegar ég sá á þessu dagsetninguna, tíminn hefur ekki liðið í haust hann hefur beinlínis rokið áfram á fleiri hundruð m/sek.
Ég ætlaði mér víst altaf að klára þetta dæmi og er bara að hugsa um að standa við það þó seint sé.
Ég sé að ég hef verið klukkuð úr tveimur áttum. Ætli mér dugi samt einn pistill?
Ég held að ég sé búin að átta mig á þvi hvað felst í að vera klukkuð og ætla að henda hérna inn fimm staðreyndum. Ættum við annars að breyta leiknum og setja inn fimm staðreyndir og fimm staðreyndavillur og láta gesti og gangandi finna út úr þvi hvað er hvað.
Kannski seinna- ekki núna.
1. Ég las að meðaltali eina bók á dag frá þvi ég lærði að lesa og fram yfir þrítugt. Núna les ég ekkert lengra en fyrirsagnir í dagblöðunum- og fólk sem hefur þekkt mig frá þvi ég var krakki trúir mér ekki þegar ég segist aldrei lesa bók.
2. Ég gaf mér fyrstu utanlandsferðina í fertugsafmælisgjöf (nema Vestmannaeyjar teljist til útlanda, þangað fór ég í skólaferðalag með Gaggó Nesk.)
3. Ég er Hringadróttins fan og var- ef ekki elsta manneskjan á maraþonsýningunni hérna um árið, var ég þó allavega elsta kvenpersónan í bíó þann dag.
4. Ef ég verð einhverntíma ósjálfbjarga og út úr heiminum vil að Hringadróttins hljóðbókin verði spiluð fyrir mig 20 tíma á sólahring, hring eftir hring.
5. Ég veit ekki hvers vegna í ósköpunum ég er að þessu, þett klukk er löngu gengið yfir en af þvi ég var klukkuð og hafði ekki tima til að klára þetta á þeim tíma... ........................ Æi, mér finnst ég bara vera að svíkjast um ef ég sleppi því og ég sem slít altaf keðjubréf.

já há
hér var langur og mikill texti með ljóði og öllu. Afskaplega alvarlegar og íhugular hugleiðingar Hafrúnar.
En hún ýtti á Publish Post og það kom error á skjáinn. Ég er hrædd um að þessar heimspekilegu hugleiðingar verði ekki rifjaðar upp og ritaðar hér meir. Þið verðið bara að gera ykkur þær í hugarlund sem eru auðvitað ekki vandræði fyrir þá sem til þekkja. Nei ég var ekki að prédikka og þó- ok smá prédikkun yfir Hafrúnu sjálfir. Það þarf einhver að gera það líka!

3. nóvember 2005
þar sem fjöllin sökkva sjálfsagt enn.
Þú bíður (allavegana eftir mér)
(Megas)
Ég hef farið víða, ég hef verið hér og þar
og ég veit að við öllum þessum spurningum er til eitt og annað loðið svar.
Og ég hef verið fyrir austan þar sem fjöllin sökkva sjálfsagt enn.
Í sjóinn ég þambaði pilla einmitt þar sem fjallaskáldið skálaði í denn.
Heilsaðu öllum heima,
þeim sem heldurðu að vilji muna eftir mér.
Barnatrúnni er ég vísast búinn að gleyma
en það bíður jú hver loks eftir sjálfum sér.
Ég komi í Hallormsstað þar sem angan engu líka
ég ætlaði mér að þefa upp en ég fann þar ekki nokkra slíka.
Einungis þýskar kengúrur, kynjadýr
já og kjarr, tuttugu metra hátt, dreifbýlissjoppu og gaddavír.
Heilsaður sérhverjum heima
sem þú heldur að vilji gangast við mér.

en það bíður jú allra að þurfa að staldra við eftir sjálfum sér.
Og nú er ég hérna á mölinni í mestri nánd og firð,
jú mér miðar sjálfsagt eitthvað og ég skal svara þér ef þú spyrð.
Og þegar svo allir eru komnir undir sæng og biðja þar bænirnar sínar
þá bíð ég hér í myrkrinu eftir að heyra þínar.
Heilsaðu öllum heima
sem þú heldur að gangist við mér.
Barnatrúnni er ég fyrir löngu búinn að gleyma

Heilsaðu hverjum þeim heima
sem þar harka aleinn af sér.
Barnatrúnni er ég að mestu búinn að gleyma
en þú bíður jú, allavegana eftir mér

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)