Ætla að vera ógeðslega dugleg í dag og þrífa heima hjá mér, vinna helling í eins og einni vinnu, halda frænku minni sem situr ein heima (heima hjá öðrum) einhverjum félagsskap nema Píparinn taki á sig rögg og sinni henni eitthvað, fara í handavinnubúð og róa niður þessa útsaumsþráhyggju sem er að heltaka mig núna og svo þarf ég að halda áfram með lopapeysu sem ég er byrjuð á.
Ætli ég komi einhverju af þessu í verk.
Fékk humar hjá vinkonu minni í gær og borðaði yfir mig, hvítvínið sem ég ætlaði að fá mér með humrinum var ónýtt og fór í vaskinn svo ég drakk bara Pepsi Max og það úr flottustu glösunum hennar, handskornum kristalsglösum ættuðum frá Póllandi, reyndar eru það koníaksglös en hver segir að Pepsi Max sé ekki eðaldrykkur sem eigi að drekka úr koníaksglösum.
Það væri veður fyrir göngu eða hjólatúr í dag ef verkefnalistinn væri ekki alveg svona langur.
Best að þrífa fiskabúrið þó ekki væri annað!
24. september 2005
23. september 2005
Humar og lasange
Mér er boðið í humar! En ææ ég var búin að fá tilboð um lasangaeldamennsku heima hjá mér í kvöld. Eilífðarneminn minn ætlar að elda handa mér. Ætli ég geti sameinað þetta tvennt og fengið humarhalana líka?
Svo er ég að hugsa um að auglýsa eftir keðju með öklahring á öðrum endanum og stórri kúlu á hinum eða ætli það sé betra að hafa hring á báðum endum.
Ekki láta ykkur detta neitt dónalegt í hug, ég er bara að spá í að taka Vinkonu mína og hlekkja hana við skrifborðið á einum vinnustaðnum mínum. Hafa kaffikönnuna og námsbækurnar hennar á borðinu koma nettengingunni í lag og hafa hana hlekkjaða þarna við þangað til hún er búin að klára öll sín verkefni og líka að skrifa út reikningana sem hún tók að sér að skrifa fyrir mig en kom ekki í verk í vikunni af því hún á fleiri vini en mig og þeir eiga það til að sitja í 6 klukkutíma í kaffi.
Annars eru þeir varla í vandræðum með að smíða fyri mig svona vinnuþrælahlekki þarna í vinnunni, þeir smíða annað eins.
Svo þarf ég að koma frá mér klukki! !!

18. september 2005
Öll lurkum lamin
kem ég aftur heim til mín.
Farin og komin aftur úr austurferðinni, búin að smala upp um öll fjöll og fljúga á hausinn, nei annars flaug á magann og af því þar er stuðpúði til að taka af mesta höggið er ég ekki alvarlega lemstruð bara teigð og toguð eftir að reyna að koma fyrir mig höndunum í fluginu. Með strengi eftir fjallgöngurnar í gær og fjörugöngurnar í morgun og búin að ergja mig á hinu og þessu sem miður fór og því sem betur hefði mátt fara en veðrið var frábært, bæði sólskinið og hitinn í gær og rigningin og slyddan í morgun. Stórskrítið hvað veðrið er alltaf gott á Austurlandi, sama hvernig veðrið er!
Góð ferð og gott að koma heim.

13. september 2005
Þreytusíbylja
Nenni ekki að athuga hvort þetta var rétt skrifað hjá mér. Ég er farin að verða kærulaus með stafsetninguna enda farin að venjast hinu og þessu sem ég hélt að væri ómögulegt að venjast. Hafnarfyrði eða Hafnarfirði hverju breytir það svo sem og ef það er nóg gott í fjölmiðlana hvers vegna má mér þá ekki standa á sama?
Ég er semsagt þreytt eftir vinnubrjálæðið í veikindunum um daginn og vinnuferðin bætti litið úr því og núna stefni ég á að fara austur og smala um helgina og ég þarf að fara út í bílskúr og mála timbur öll kvöld fram að því. Nenni ekki í kvöld.
Píparinn kom og fór slagandi af þreytu eftir mánaðar vinnutörn og flug heim, ég vona að hann hafi rænu á að hvíla sig smávegis áður en hann fer út aftur og takist að sleppa þvi að láta samskipti við misviturt fólk draga sig niður.
Mannlegt eðli er alltaf jafn forvitnilegt og ég er að reyna að skilja hvernig er hægt að veita manni umgengnisrétt að barni sem annar maður er skráður faðir að og borgar meðlag með!

11. september 2005
Komin í siðmenninguna
og umferðarmenninguna og er að farast í bakinu. Lét mig hafa það að hálfdrepa mig í bakinu bara af því ég þoli ekki setninguna ,,eigum við ekki að láta karlmennina um þetta" Get engum nema sjálfri mér um kennt og þetta hlýtur að lagast en fjandi langar mig orðið í jeppa eða ökutæki sem kemst yfir ár og eftir jeppaslóðum. Það mætti alveg eins vera dráttarvél bara að ég kæmist inn í óbyggðir. 

9. september 2005
Farin
í Emstrur í rigningu og rok og ætla að njóta þess að skilja alllllla vinnu eftir í bænum nema náttlega vinnuna sem bíður þar.
Hafið þið það gott, þið sem heima sitjið.

4. september 2005
Kvef
Ég er með kvefpest og hita og finnst það fúlt. Stresshnút í maganum af því ég er aðeins of dugleg að segja ,,Já, en er það nokkuð mál. Ég get ábyggilega séð um það"
Svei því, nú liggur fyrir að ég þurfi að flytja einn Pípara milli sveirfélaga, ganga frá fjárbókaruppgjöri frá þvi í vor, lesa yfir eitthvað illa þýtt efni, fara á frönskunámskeið, langa til að fara og læra baldíringu, prjona eina lopapeysu sem ég er reyndr byrjuð á og svo þarf ég eiginlega að hafa tíma til að vinna líka. Verst að geta ekki sleppt þessari vinnu.
Og áður en ég veit af verður komin fyrsta helgi í október og þá er hægt að undirbúa sig fyrir stresskastið fram að fimmta okt.
Ljósi punkturinn á þessum kvefsunnudagsmorgni er að ég verð það allavega ekki með kvef um næstu helgi og þá ætla ég inn á fjöll. Langar reyndar líka á Strandirnar um mánaðamótin næstu en veit ekki alveg hvort ég hef tíma fyrir það. Ég sé til.
Ég sé líka þegar ég er búin að væla aðeins yfir öllu þessu sem ég þarf að afkasta að þetta er svo sem ekkert mál og best að fara bara að koma sér að verki.

2. september 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)