30. maí 2005

Djöf

Djöfull er ég orðin sifjuð og leið á vökum og næturófrið. Skil ekkert í konunni sem öfundar mig svo af því að fara í sauðburð að koma ekki bara og vaka nokkrar nætur fyrir mig. ´
Tíu ára Skríkjurnar sem mættu strax eftir skóla á föstudag eru eiturhressar úti núna klukkan að ganga eitt og eru búnar að baka drullugraskökur, franska og pizzur síðustu 4 klukkutímana. Ég stóði í þeirri sælu trú að þær ættu að mæta í skóla á morgun og yrðu þess vegna heima hjá sér í nótt en það er starfsdagur eða e. svo þær eiga frí á morgun.
Foreldrar þeirra hafa ekki minnst á afleysingu í uppeldismálum eða góðan nætursvefn svo ég er að hugsa um að sjá hvað þær hafa mikið úthald í drullueldamennsku. Vornóttin björt og frostlaust svo þær mega mín vegna upplifa eina vökunótt úti á túni. Verst að geta ekki treyst þeim fyrir fjárhúsunum.

29. maí 2005

Netráp og prjónales.

Búin að finna ágætis nýtinug á tímanum sem fer í að bíða eftir að síður á netinu hlaðist inn. Hef prjónana við hendina og prjóna nokkrar lykkjur eða umferðir á meðan ég bíð.
Sauðburðurinn að verða búinn með þessu áframhaldi klárast þetta, nema fáeinar eftirlegukindur, í dag og á morgn og þá er bara eftir að merkja, marka og það sem því fylgir. Gömlu hjónin eru svo samviskusöm að þau snyrta hverja klauf sem hefur hlaupið ofvöxtur í hjá því fé sem hefur staðið á of mjúku undirlagi í vetur. Þau hafa aldrei skilið hugtakið ,,að hlífa sér" og heilsan orðin eftir því.
Skrapp í Egilstaði í gær og keypti mér ís, skutlaði syninum og vinkonunni í flug í leiðinni. Alltaf svolítið sein að kveikja þegar ég sé hvaða breytingar hafa orðið á mannlífsflórunni á staðnum. Hugsa alltaf ,,bíddu nú við, hvað í ósköp....! Átta mig svo á að allt er breytingum háð bæði tímabundnum og varanlegum og spilakassar geta verið góðir til síns brúks en það er önnur saga.
Klukkan er 7:30 á sunnudagsmorgni, ekki nema þriggja stiga hiti en blankalogn og fjörðurinn spegilsléttur í sólskininu,
Ég slapp við næturvaktina í nótt og ætti auðvitað að vera úti, hvorki hanga inni í tölvunni eða í myrkrinu í fjárhúsunum nema ég nauðsynlega þyrfti....

--------------------
Ég er eins og svo margur annar ,,meiri í orði en á borði" og þegar tövan frýs áður enég get smellt á Publish hleypur í mig þrjóska og ég skrifa allt upp aftur en í þetta skipi fyrst í WordPad.
Svoer komin hafgola og mig farið að sifja, búin að taka á móti ungviðinu sem var að koma í heiminn síðustu þrjá klukkutímana og ekkert meira væntanlegt í bili svo ég ætla bara að leggja mig aftur. Sumarfrí eru til þess að slappa af ekki satt?

28. maí 2005

Á næturvaktinni.

Er búin að taka næturvaktina í fjárhúsunum flestar nætur síðan ég mætti í sauðburðinn. Búskapurinn ekki lengur svipur hjá sjón og flestar nætur hefur verið nóg að fara á tveggja tíma fresti út og stía frá eða kom fyrir til bráðabirgða þeim fáu ám sem hafa borið. Að fyrstu nóttinni untantekinni hefur hálfur til einn klukkutími dugað í hverri ferð. Fékk frí síðustu nótt og svaf varla væran dúr af því ég var alltaf að hlusta eftir því hvort sonurinn færi nú örugglega ekki út og hvort hann væri nú ekki að koma með klukkuna sem hann ætlaði að láta inn til mín þegar hann færi að sofa.
Núna er klukkan rétt yfir miðnætti og í fjárhúsunum tvær 10 ára stelpur á þessum skelfilega skríkjualdri og standa í þeirri sælu trú að þær séu á næturvaktinni. Þær eru svo heppnar að það eru til einhverskonar handtalstöðvar á staðnum. Önnur er staðsett í fjárhúsunum og á hinni kveiktu þær og stilltu upp á eldhúsborðinu til að geta kallað í mig ef á þyrfti að halda.
Þær hafa kallað til að segja mér hitt og þetta og ekki allt komið sauðburði við. Í augnablikinu þegja þær og ef þær þegja mikið lengur fer ég að fara út til að athuga hvað þær séu að gera af sér.
Annars er allt að verða borið en eftir að setja lambamerki í helling af lömbum og ormalyf í allar ær í leiðinni. Við tókum smá rispu í dag og merktum. Sonurinn og vinkonan tóku til hendinn með okkur, hann sveiflaði kútnum með ormalyfinu á bakið í þartilgerðum ólum og sprautaði ofan í hverja ána á fætur annari. ,,Opna munninn og kyngja, viltu kannski fá orma" messaði hann yfir þeim. Eftir fyrstu tilraun neitað hann samt að setja lambamerki í lömbin, rétti mér græjurnar og sagði að það færi mér best að vera ljóti kallinn. Ég tók hann á orðinu og gataði og hengdi merki í helling af eyrum, markaði svo nokkur svo ég kom heim úr fjárhúsunum í dag með blóðsletturnar um allt andlit og hendur. Tilbúin í aðalhlutverk í einhverri hryllingsmynd.

-------------------------------------------------------------
Það var eins og mig grunaði, skríkjurnar voru að dunda sér við sitthvað í fjárhúsunum sem þær hefðu ekki fengið að gera ef ég hefði verð nálægt þeim, eins og að hjálpa ám sem ekki voru hjálpar þurfi. Önnur þeirra var að snerta nýfætt og karblautt lamb í fyrsta skipti á ævinni og fékk svo að hjálpa kind líka og í hennar huga og reyndr þeirra beggja var þetta svo stórkostlegt afrek að ég hafði ekki brjóst í mér til að gera meira en halda fyrirlestur um náttúrlega fæðingu og burð. Talaði ekki bara fyrir daufum eyrum heldur held ég alveg eyrnalausum börnum.
__________________________________
Svo held ég að það séu einhver samantekin ráð í fjárhúsunm núna að hafa af mér miðnæturblundinn. Ég ætla að horfa á hálfann þátt af Lost áður en ég fer út aftur. Þe. ef ég kem þessari færslu úr WordPad og yfir á blogspot án þess að þurfa að slökkva og kveikja á tölvunni nokkrum sinnum í viðbót. Hún á það til að frjósa á netinu. Á það til segi ég, ætli það sé ekki í um það bil 2 skipti af hverjum þremur sem ég reyni að komast á netið.
---------------------------------------------------------
Og, nei ég ætlaði ekki í tölvu- bókhaldsvinnu heldur í tölvu- vefsíðu- uppkastsvinnu fyrir eina vinnuna ef ég hefði tíma til. En til að afþjappa forritin sem ég er með á disk þarf ég winzip og það er held ég ekki að gera sig að ná í það á netið.
----------

27. maí 2005

Tenging eða ekki

Með þessa nettengingu sem virkar bara með höppum og glöppum nenni ég ekki að blogga.

26. maí 2005

Nettengingin

Nettengingin komin á og tekur bara 20 mín að keyra upp eina svona síðu.
Nei þetta eru ýkjur 2 mín eru nærri lagi. Var svo að átta mig á að ég kann ekki slóðirnar inn á uppáhaldssíðurnar, þær eru allstaðar í Favorites og þegar ég fæ ,,nýja" tölvu verð ég bara að fara í leit og leita.
Allavega búin að koma upp nettengingunni en er ekki viss um að ég nenni að downloda þeim forritum sem mig vantar með þennan hraða.

23. maí 2005

Farin

Þá LOKSINS er ég að leggja af stað úr bænum á leið austur í kulda og rafmagnsleysi.
Gaman það.

Ég fer í fríið...

Vann í gær og hreinsaði til á skrifborðinu mínu. Fór í kaffi í Gróðurhúsið í Grasagaðinum, sat þar vafin í flísteppi og drakk heitt súkkulaði og talaði við gamlar skólasystur.
Tvær af þeim eru enn að fjölga mannkyninu og eins og gengur og gerist þegar konur á þeim aldri hittast var talað um fæðingar, væntanlegar og nýafstaðnar. Snyrtifræðineminn á fyrsta ári fræddi okkur um braselískt vax frá sjónarhorni þess sem veitir þjónustuna. Athyglsiverðar upplýsingar sem við fengum og ef ykkur leikur hugur á að vita meira get ég tildæmis sagt ykkur að á stofunni sem hún hefur verið í hlutastarfi á eru karlmenn ekki teknir í braselískt vax. Kynjamisrétti það.
Ég gerðist svo frek að heimta umræður um eitthvað fyrir ofan mitti. Unglingarnir á næstu borðum voru orðin eitthvað svo kindarleg að ég hélt jafnvel að ég væri komin í sveitina strax.

Svo, mér til mikillar ánægju er strikað út af verkefnalistanum mínum í gríð og erg.
Afkvæmi eitt er búið að skila ársreikningum starfsmannafélagsins og á þá bara eftir húsfélagsreikningana sem þurfa að klárast núna. Hún benti mér á hvað ég væri heppin að geta klárað þetta frá áður en ég færi í sumarfrí. Gott að þessi kvartmiljón sem ég lagð í námið í haust gagnast einhverjum.
Það er best að taka það fram að á næsta ári verður hún sjálfbjarga með frágang á þessu, ég er nefnilega svo góður kennari líka!
Kláraði svo eitt uppgjör í launaðiri vinnu og á þá bara eitt eftir þar og eitt í sjálfboðaliðavinnu. Ætla að koma mér upp extra skamti af kæruleysi og hugsa ekki meira um uppgjör fyrr en í ágúst.
Jæja, það er eftir að skipta um olíu á gírkassanum, tæma skottið og fylla það af farangri.
Hvað liggur á ég er í SUMARFRÍI!

22. maí 2005

Nöldur

Ég er nöldrari og læt hitt og þetta fara í taugarnar á mér. Allra mest fer í taugarnar á mér þessa dagana, mánuðina og árin léleg íslenskukunnátta fólks sem vinnur við fjölmiðla og vefsíðugerð.
Verð í fleirtölu er ekki til í íslensku!
En ég verð að hlusta á fólk tala um ,,verðin" í tíma og ótíma í vinnunni hjá mér sem og annarstaðar. Ég gerði eina heiðarlega tilraun til að kenna vinnufélögunum íslensku en þau eru svo föst í enskunni að þau geta ekki lengur hugsað á íslensku heldur þýða enskar hugsanir sínar orðrétt.
Tungumál breytast jú og þróast en má ekki lengur gera þær kröfur á fólk að það beiti örlítilli sjálfstæðri hugsun og ,,íslenski" enskuna í staðin fyrir að lepja upp enskuna og þýða hana orðrétt.
Á vefsíðum ýmissa fyrirtækja rekst ég svo á setningar eins og þessa ,,Öll verð eru með virðisaukaskatti". Ég bara get ekki að því gert að ég læt þetta fara óstjórnlega í taugarnar á mér og eyðileggja fyrir mér ferðalag um þessa annars ágætu síðu.
Í flestum tilvikum er langskólagengið fólk að ,,klæmast" svona á íslenskunni og mér finnst lágmark að fjölmiðlafólk kunni íslenskuna sína betur en ég ómenntaður og fáfróður sveitalubbinn.
Fréttamenn á Fréttablaðinu eru svo illa smitaðir af þágufallssýki að það hálfa væri nóg og ég held að bóluefni við þeirri sýki væri þörf uppfinning. Mér finnst sjáfsagt meiri kröfur á blaðamenn og prófarkalesara en á bloggara á gelgjuskeiði.
Sjálfsagt er ég að mála mig upp í horn og fæ að heyra það hjá vinunum framvegis ef ég geri einhver ,,íslensku mistök" hér eða annarstaðar en ég er alls ekki að halda því fram að ég tali og skrifi allta rétta íslensku. Setningafræði og greinamerki er eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á enda ekki kennt í gaggó þegar ég var þar. En ef ég geri mistök finns mér sjálfsagt að bæta úr þeim og er til dæmis alveg hætt að skrifa ,,fluttningur" og skrifa nú bara um flutning.

Að svo mæltu ætlar Hafrún að bretta upp ermar og fara að vinna til að komast í frí.

Leti og ómennska.

Ég sá fram á það eins og svo oft áður að þurfa að taka hraustlega vinnutörn í eins og einni vinnu til að komast í frí. Það átti að vinna allan laugardaginn og allan sunnudaginn en svo frétti ég af Papaballi á Players og kolféll í leti, drykkju og kæruleysi.
Dansaði meira föstudagskvöld til laugardagsmorguns en ég hef gert lengi, lengi. Bara held ég ekki síðan ég fór á eitthvað Húsó skrall og endaði í Þjóðleikhúskjallaranum. Ferlega langt síðan það var.
Hitti reyndar gamla vinnufélaga á Players og fékk að heyra frá fyrrum yfirmanni hvað hann hefði kviðið fyrir að fá mig í deildina fyrir langa löngu þegar ég færði mig með mitt starf milli deilda í ,,den". Hann lét það svo fylgja með (sem betur fer) að það hefði verið fínt að vinna með mér og ég ALDREI verið til vandræða og okkur hefði samið vel. Lofaði mér meira að segja meðmælum ef ég þyrfti á að halda.
Skyldi hann vera samsinnis þegar hann er edrú? Það væri réttast að láta reyna á það.
Heilsan var í þokkalegu lagi í dag, þökk sé áfyllingarþjónustu á Gvendarbrunnsvatni á salernisaðstöðu Players. Ég forðaðist að ónáða starfsfólkið á staðnum með beiðnum um vatnsglös, það var svo pirrað að ég læddist á tánum ef ég sá starfsmann tilsýndar.
Ég tók eftir því að hroki og pirringur einkenndi starfsfólkið á staðnum og fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri svona allstaðar á sambærilegum stöðum.
Þó heilsan væri ekkert voðalega slæm í dag var ég frekar þreytt og mætti bara ekkert í vinnuna. Skilaði samt af mér gögnum sem ég var búin að lofa að koma inn fyrir sunnudag. Kíkti svo í bæinn en í þetta skiptið bara í kaffi og ætla að taka svo hraustlega á í vinnnuni á morgun að ég komist austur á land til að sinna sauðburði á mánudaginn.
Fyrst er nú samt MK hittingur.

19. maí 2005

Viðtal

Ætla að fara að hitta fólk og spjalla við það á eftir. Hef ekki neitt sérstaklega mikinn áhuga á því og veit ekki hvernig mér gengur að fela það. Ætla samt að fara það er aldrei að vita nema mér lítist betur á þegar ég er mætt á staðinn.

Hvítasunnan

Ég ólst upp í sveit og þar var einvher slatti af kindum. Ein hét Sunna og gimbur undan henni fékk nafnið Hvítasunna.
Datt það bara svona í hug.
Annars fór ég í ferðalag um hvítasunnuna.

*Sat í bíl langa leið og helling af henni á slæmum vegum.
*Sat í bíl með bílstjóra sem var hvað eftir annað við það að bremsa bílnum út af veginum.
*Tók við að keyra seinnihlutann af heimleiðinni.
*Farþegarnir ríghéldu sér og dottuðu ekkert eftir að ég tók við akstrinum, ekki heldur sá sem var nýbúinn að sofna undir stýri.
*Hitti helling af skemmtilegu fólki.
*Tókst að láta það sem ekki var skemmtilegt fara inn um annað og út um hitt.
*Var svo heppinn að sumir ferðafélagar fundu sér áhugamál og ég þurfti ekki að rífa kjaft við þá.
*Rifjaðu upp Áfanga og smávegis í öðrum ljóðum.
*Eldað plokkfisk.
*Skúraði, skrúbbaði, bónaði og vaskaði upp.
*Málaði grindverk og glugga.
*Prílaði upp á þak og negldi hænsnanet yfir torfið á því.
*Skipaði fólki fyrir hægri vinstri og sumir hlýddu mér en bara þegar þeim hentaði.
*Fór í sund í sundlaug sem var eins og slýpollur í fjöruborði.
*Lagaðist og versnaði af vöðvabógunni á víxl. Það er ekki gott að sitja svona lengi í bíl.
*Drakk slatta af bjór, rauðvíni og hvítvíni en átti samt fyrningar.
*Kóaði engann alvarlega.
*Varð mér úti um boð í jeppaferð seinna í sumar.


Ég held ábyggilega áfram að pota mér í allar þær vinnuferðir sem ég mögulega kemst í þó ég þurfi að vaska upp og elda í þeim.

18. maí 2005

Eins dauði er ekki ofan á brauð

Gullfiskurinn minn er dáinn og ég veitti honum nábjargirnar. Hann var eineygður svo það var ekki lengi gert. Var að spá í að nota hann í kattamat en hafði svo veglega útför í ruslafötunni.
Hefði kannski átt að grafa hann innan um páskaliljurnar í garðinu?

16. maí 2005

Komin heim

og gullfiskurinn minn er að deyja.
Ég veit ekki hvað er að verða honum að aldurtila en ég sé ekki að neitt annað sé við dauðans dyr á heimilinu. Kettirnir eru bráðhressir og blómin virðast standa þokkalega upprétt. Afkvæmi 2 svarar mér ekki svo ég get ekki skammað hann fyrir vanhirðu á gullfisknum.
Tók fiskinn minn úr búrinu og setti hann í græna vatnskönnu því þegar ég var að vinna á heilbrigiðsstofnunum þar sem fólk lést annað slagið var það alltaf tekið út af stofunum og sett í sérherbergi.
Þokkalega öfugsnúið að það skyldi vera hjá svo mörgum fyrsta sérbýlið sem þeir fengu á viðkomandi stofnun.

Ég ætla að fá mér kaffi og skola af mér ferðarykið. Það er eiginlega svo mikið tilhlökkunarefni að ég ætla að treina mér það svolítið lengur!

12. maí 2005

próf

Enn eitt prófið, þetta er svolítið sniðugt. Ég náði 5.


http://www.bbc.co.uk/science/humanbody/mind/surveys/smiles/index.shtml

11. maí 2005

Frí

Komin í frí og er í svo miklu fríi að ég nenni ekki einusinni að pakka því sem ég þarf með mér norður.
Mér var sagt áðan að það væri leiðindaspá fyrir helgina svo það er betra að taka með sér föðurlandið og regnstakkinn og kannski kraftgallann. Nema ég bara bjóðist til að sjá alfarið um uppvaski í ferðinni ef það verður mjög kalt. Ég er aldrei með múður yfir þvi að sjá um inniverkin þegar er kuldi og leiðinda veður í vinnuferðum. Sígirni ég veit.
Fór og kíkti á gamla vini í kvöld, þeim leið betur en ég átti von á. Það gleður mig.
Þarf að sinna fáeinum atriðum áður en ég fer á morgun, öðrum en að pakka, má td. ekki gleyma að fara og kaupa bjórinn. Stórt atriði það.

Mér finnst bara annars frábært að vera í fríi og er að hugsa um að gera bara ekkert annað næstu daga. Tek með mér haug af bókum og svíkst svo um vinnuframlagið. Eða þannig.

Vinna

Ég er ákveðin í að sækja um nýja vinnu, er bara ekki búin að finna út hvar eða hver hún er.
Frí í 100% starfi.
Veit einhver um svoleiðis vinnu handa mér?

8. maí 2005

Toyotan

Ég keypti mér bíl um daginn. Ég sá ekki fram á að ég nennti að þrifa þann gamla (sem er reyndar yngri en sá nýi) og Kennarinn hefur haft svo mikið að gera að ég gat ómögulega verið að rella í honum að gera við og bíllinn orðinn nærri ókeyrandi!
Svo ég á kvað að selja hann bara og kaupa mér rauða Toyotu sem ég frétti að væri til sölu. Reyndar var hún til sölu af sömu ástæðum og minn bíll nema þrifin voru í góðu lagi.
Gamli bíllinn er óseldur enn en ég er búin að láta gera við hann í hólf og gólf og skola af honum mesta skítinn, saltið var reyndar svo fast á hliðunum að ég náði því ekki öllu af.
(þessi málsgrein átti að vera svona.)
Gamli bíllinn er óseldur enn en Kennarinn er búinn að gera við hann í hólf og gólf og Hafrún er búin að skola af honum mesta skítinn, ....
(Leyfum Kennaranum að eiga það sem Kennarans er)

Toyotan var meira biluð en ég gerði mér grein fyrir þegar ég keypti hana en nú er hún líka komin með flest alla hluti í lag, eftir að setja rofa í kæliviftuna svo það er eins gott að gleyma henn ekki í hæga gangi lengi og ein öxulhosa liggur í aftursætinu og bíður eftir að vera sett í.
Svo vantar mig tvö sumardekk og umfelgun áður en ég verð sektuð fyrir að keyra um á nagladekkjunum. Ef ég verð stoppuð ætla ég bara að segjast vera á leið austur á land og vitna í að í enduðum maí í fyrra hafi kafsnjóað á Öxinni. Þó syni mínum hafi ekki takist að sleppa við sekt í fyrra á þeim forsendum gæti verið að mér tækist það.
Næsta mál er svo að fá sér vinnu nógu langt að heiman svo ég geti hlustað á heilt lag í nýju græjunum sem ég er búin að leggja ofuráherslu á að fá í bílinn. Það er svo stutt í allar vinnur hjá mér að ég næ ekki að hlusta á nema hálft lag áður en ég fer út úr bílnum og til hvers eru þá nýju græjurnar. Spyr sá sem ekki veit! Reyndar klikkað ég á því að halda að hátalararnir og magnarinn sem stóðu við hliðina á græjunum niðri í hillu hjá syninum fylgdu með í kaupunum en það var ekki svo gott og ég tími ekki að kaupa það af honum lika. Geislaspilari er samt bráðnauðsynlegur. Ég verð bara að fara að fara á rúntinn til að hlusta á diskana sem ég keypti í London.



*******
Eftir að hafa rifið stólpakjaft út af vankunnáttu frændfólksins í íslensku þori ég ekki annað en fara hér inn og laga hverja einustu smávægilega innsláttarvillu sem ég sé!
Ég þarf reyndar að laga alveg helling af innsláttarvillum eftir hverja færslu, puttarnir á mér vinna stundum aðeins of sjálfstætt. Einhver sagði að þetta væri vegna þess að hægri og vinstri hendi hefðu ekki sama hraða. Ég hallast að því að það sé rétt.

Hálsrígur og hænsnadráp

Í staðin fyrir að vera skynsöm og skríða undir sæng fór ég í tölvu og fór að skjóta hænur. Tókst að koma sjálfir mér í öll sæti á topp 5 listanum og á ekki von á mikilli samkeppni um sæti þar. Held að hálsrígurinn hafi komið af þvi að halda svona fast um skotmúsina.

Búin að vinna í allan dag og vann í allan gærdag. Það þýðir víst lítið annað en hreinsa upp það sem þarf að gera fyrir mánaðamótin ef ég ætla að vera að slæpast og leika mér tvo virka daga í þessari viku og alla síðustu vikuna í mánuðnum. Uss.
Stefnan sett norður á Strandi á fimmtudag og kem ekki heim fyrr en á mánudag aftur. Engin vinna (bara puð og púl í sjálboðvinnu), ekkert malbik, ekkert sjónvarp, ég hlakka til!

Skoðaði bloggsíður hjá frændfólkinu og get eiginlega ekki orða bundist. Er ekki hægt að ætlast til þess að krakkar í 10. bekki séu skrifandi á íslensku, skást er íslenskan hjá frænda sem er að fara að fermast en síðurnar hjá þeim eldri eru ólæsilegar. ,,vælugjói" var orð sem ég rak augun í þarna og það hjá þeirri sem ekki telst lesblind, sú lesblinda notaði orðið ,,vælukujói". Auðvitað veit ég að það er stór hluti af þessu innsláttarvillur sem fólk nennir ekki að lagfæra en annað skrifast á svo lélegan orðaforða að börnin eru næstum því ótalandi. Ég verð sjálfsagt að taka þau í gegn og hóta þeim þvi að leiðrétta allar stafsetningar villur í gestabækurnar hjá þeim ef þau taka sig ekki á, nú eða endurkrifa allt saman fyrir þau á forníslensku!

Svo held ég að það gæti farið mér vel að vera ríkisstarfsmaður.

6. maí 2005

Ókindarkvæði uppfært 26.11


Það var barn í dalnum
sem datt ,,onum" gat
og fyrir neðan þar ókindin sat
og fyrir neðan sat ókindin ljót
naumlega náði hún neðan í fót.
Naumlega náði hún neðan í barn,
hún dró það út úr dalnum og dustaði við hjarn
hún dró það út úr dalnum og dustaði við fönn.
Ætlaði ég að úr þvi hrykki ein lítil tönn
ætlaði ég að úr því hrykki augað blátt
Hún kvað við í kæti og kallaði hátt
hún kvað við í kæti ,,kindin mín góð,
þetta hefur þú fyrir þín miklu hljóð"
,,Þetta hefur þú fyrir þitt brekastand,
mátulegast væri ég minnkaði þitt dramb,
mátulegast væri ég minnkaði þinn þrótt"
og ókindin barði það allt fram á nótt.
Ókindin barði það á þeim stað
þar til um síðir að þar kom maður að.
Þar til um síðir að þar kom maður einn
upp tók hann barnið og ekki var hann seinn.
Upp tók hann barnið og inn í bæinn veik
Og ókindin hafði sig aftur á kreik.
Ókindarkvæðið á enda nú er
Sigrún mín litla sjá þú að þér.
............
Mamma lærði þessa þulu svona þegar hún var krakki nema tvær síðustu línurnar sagðist hún hafa lært á fullorðinsárum.





Ég á skáfrænda sem var einu sinni lítill og sætur og sofnaði aldrei á kvöldin fyrr en hann var búin að hlusta amk. einusinni á Ókindarkvæðið, þe þegar hann gisti hjá stjúpömmu sinni.
Ég er viss um að þessar gömlu góðu íslensku barnagælur hafa ómetanlegt uppeldisgildi. Ég tildæmis fékk oft að heyra þessa þegar ég var lítil.

_________________________
Það á að strýkja stelpuna
stinga henni ofan í forina
loka hana úti og lemjana
og láta hann bola étana.
_________________________
Það á að strýkja strákaling
stinga honum ofan í forarbing
loka hann úti í landsinning
og láta hann hlaupa allt um kring.
____________________________

Reyndar fannst mér vera töluvert kynjamisrétti í þessum vísum þegar ég var krakki.
Hvers vegna að láta bola éta stelpuna en strákurinn bara látinn hlaupa úti í rigningu og roki.
En ég hef nú kannski verið búin að minnast á það hér. Man það ekki.

Það er allavega engin Disney velgja í þessu.

5. maí 2005

Þvottur og bón

Ég kom við hjá vinkonu minni um daginn. Sem er ekki í frásögur færandi, ég geri það alltaf annað slagið en í þetta skiptið stóð tengdasonur hennar úti og þvoði bílinn hennar.
Ég var einmitt að hugsa um það í dag að ég ætti nú eitt stk. tengdabarn og það mætti alveg þvo og bóna bílinn minn. Og sjá- þegar ég kom heim stóðu sonurinn og ,,tengdadóttirin" úti og bónuðu.
Ég lagði bílnum mínum við hliðina á Audinum í bílastæðið en mér sýnist Toyotan vera jafn rykug og hún var þegar ég fór inn.
Ég þarf eitthvað að athuga betur uppeldið á þessu fólki.
Ætli það þýði eitthvað að leggja fram formlega kvörtun við foreldra dömunnar?

Veðrið og glugginn

Út um mína glugga séð er frábært veður. Held að það sé kominn tími til að hætta að slugsast inni og drífa sig í að bóna smávegis og labba svo eitthvað út í móa.

4. maí 2005

Púff ...

.. mér létti! Ég var farin að hafa alvarlegar áhyggjur og upplifa höfnun. Sendi vinkonu minni sms og spurði hvort við værum ekki á leiðinni í bæinn, hún sagði ókey en þegar ég sendi næst sms og sagði að nú værum við klárar til að fara ansaði hún ekki. Mér fannst það ansi alvarlegt þangað til ég tók í mig kjark til að fá þessa höfnun staðfesta og komst að því að hún, aldrei þessu vant, hafði ekki verið með símann við hendina.
Það var það sem hún sagði mér allavega og lofaði að koma og fá sér bjór með mér.
Eins gott ég lýsti því nefnilega yfir fyrr í kvöld að hún gerði allt sem ég segði henni og kæmi þess vegna með mér bæði til London og til Reykjvaíkur. (Við náttlega búum úti á landi)
Eins gott líka að það segi henni enginn að ég hafi sagt það. Hún gæti komist á mótþróaskeiðið ef hún fréttir þetta.

**********************
Svo versnaði í því þegar bílstjórinn sem ég var búin að semja við um að skutla okkur í bæinn ákvað að fara heim í sturtu og bjór og koma svo með okkur. Ætli ég þori að segja henni að hún eigi að keyra amk aðra leiðina.

Hjartasár

Ég kom við á apótekinu í hádeginu.
Ætlaði að fá eitthvað við hjartasári en var sagt að Prozac væri lyfseðilsskylt og að mestu andans jöfrar og skáld hefðu þjáðst af ólæknandi hjartasárum og heimshryggð svo ég skyldi snúa mér að skáldskap. Er búin að reyna þetta í allan dag en finnst eiginlega allt hafa verið sagt og ort sem hægt er að yrkja en Zovirið virkaði ágættlega á frunsuna.

3. maí 2005

Hvers vegna ekki?

Mér finnst að það ætti að vera hægt, bæði að borða kökuna og eiga hana, sleppa og halda, súpa kálið áður en í ausuna er komið og hafa bæði einn fugl í hendi og tvo í skógi.
Þoli ekki málshætti sem höfða til skynseminnar.

2. maí 2005

Sunnudagur til sigurs

Fór í göngu á sunnudagsmorguninn. Labbaði yfir eitthvað skarð milli Sauðdalshnjúka eins og þeir heita á kortinu en einn göngufélaginn kallaði þá Sauðafellshnjúka. Gengum yfir að Syðri-Eldborg og ofan í gíginn, þaðan yfir Leitarhraunið aftur og yfir Ólafsskarð í Jósepsdalinn og fram eftir honum að bílunum. Ég giska á 12 km. leið en gaf mér ekki tíma til að bíða eftir niðurstöðum úr GPS mælingu.
Fann að mér veitir ekki af að taka nokkra svona göngutúra í viku til að ná upp þreki fyrir sumarið.
Fór svo í ræstingarverkefnið okkar vinkvennana fljótlega eftir að ég kom heim og djöflaðist við að reyna að leysa upp áratuga gamalt bón sem gaf ekkert eftir. Var satt best að segja alveg búin á þvi þegar ég kom heim rétt fyrr kl. 11 á sunnudagskvöldið.
Næst þegar ég tek að mér eitthvað svona verkefni ætla ég að finna eitthvað sem ég fæ borgað fyrir en þarf ekki að vinna.
Annars er ég þokkalega ánægð með afköst sunnudagsins, svona miðað við aldur og fyrri störf.