Ekki dugði gönguferðin til að koma mér út úr sælgætisþráhyggjunni. Ég bjó mér til kornflexkökur frekar en ekkert en þær voru bara því miður ekkert góðar.
Það er fúlt að hafa borðað nammi sem var svo ekkert gott. Ég meina ef maður er í óhollustunni á annað borð þarf hún að vera almennileg.
Ætla að muna það næst þegar mig langar í sukk og svínarí að kaupa eða láta kaupa fyrir mig almennilegan ost og vínber. Umm.
Núna langar mig hrikalega í Pepsi Max en á bara vatn og læt það duga mér í kvöld og í nótt.
Það var lítið um upprifjun á námsefni dagsins eins og til stóð. Fann mér afsökun til að horfa á sjónvarp og svo aðeins meira á sjónvarp og prjónaði reyndar alveg heilan helling með því. Lopinn búinn eina ferðina enn og ég þarf að kaupa mér eina plötu í viðbót til að klára.
Ætla núna að sefa samviskuna og lesa yfir nokkrar glærur og kannski prenta út eina eða tvær reglugerðir, svo er ég með helling af númeruðum úrskurðum yfirskattanefndar sem var mætlt með að skoða.
Skrítið að þetta skuli mest vera vinnufélagar og fyrrverandi vinnufélagar þínir GVÓ, sem eru að kenna þarna.
Ég vil taka það fram út af eldra bloggi hérna að ég tel konur vera skipulagðari í kennsku en karlarnir og að það komi menntun þeirra ekkert við. Kvennkyns endurskoðandi er ábyggilega skipulagðari kennari en karlandaskoðandinn.
Þarna er ég að alhæfa og ætla mér að alhæfa með þetta. Kannski eru undantekningar en þær sanna þá bara regluna.
Þeir gusa mest sem grynnst vaða
Ísl. málshættir.
30. október 2004
Laaangur dagur
Komin heim eftir langan skóladag uppfull af þvi að ég þurfi að borða súkkulaði ( það er til konfektkassi) eða kornflexkökur. Ákvað að vera skynsöm næsta klukkutímann, hringdi í Sjúkraliðann til að athuga hvort hennar gönguþörf væri ennþá mikil. Hún var farin að minnka en við ætlum nú samt að labba í klukkutíma eða svo og frestum nammiáti og virðisaukaskatts upprifjunum á meðan.
Sé á borðinu hjá mér að Tölvunarfræðingurinn er farinn að æfa jólalögin.
Go, tell it on the moun-tain over the hills and eve-ry wher.
Go, tell it on the mountain that Jesus Christ is born. While shepherds kept their
watching o´er si-lent flocks by night be-hold throughout the heavens, there
watch-ing flocks by night- be - hold hea-vens
shone a ho-ly light. - that Je-sus Christ is- born.
Get ekki sett nóturnar hérna inn en þeir sem vilja heyra verða bara að fara á jólatónkleika Gospelsystra.
Sem eru ekki virðisaukaskattskyldur félagsskapur skv. því sem ég lærði í dag.

28. október 2004
Skóli og skattalögin
Fór í skólann í dag. Er búin að vera að velta því fyrir mér að fá að fresta þessum síðasta hluta námsins um eitt ár en ákvað svo að það borgaði sig að klára núna og fór með fýlusvip.
Það var prófsýning í dag. Það lág stöðugur straumur nemenda þangað í dag og gott ef ég sá ekki marga með flugnaspaðann meðferðis.
Held samt að enginn hafi verið með nógu öflugann spaða til að vinna á skrápnum á kennaranum. Hann hlýtur að vera með hákarlsskráp að geta setið undir þeim skömmum og gagnrýni sem ég veit að dundi á honum þarna í amk. fjóra tíma.
Ég ákvað að fara ekki enda ekki búin að finna mér flugnaspaða sem dygði á hann. Veiðileyfið er þó ennþá í fullu gildi fyrir þá sem finna spaða í réttri stærð.
Ég taldi mig ekki þurfa að fara á neina prófsýningu. Eyddi nefnilega síðustu 20 mínútunum á prófinu í að fara yfir hvert dæmi og hvað það gilti mörg % og hvað ég fengi í einkun. Reiknaði út að ég fengi 5 til 5,5 og það stóðst. Fékk 5,5 og heyrði það í dag að ég hefði verið yfir meðaleinkunn sem var ekki nema 5,19 frekar en 5,17. Nákvæmar tölur skulu gilda í reikningshaldinu sko.
Og það var 40% fall í áfanganum.
Skýringin á þvi er eitthvað sem ég hef ekki á reiðum höndum. Eitthvað spilar þó inn í að þar sem hætt var við námið fyrir uppgjörsbókara var hluta af þeirra námsefni dembt þarna inn til að koma til móts við þann hóp sem ætlaði í uppgjörshlutann og helmingi fleiri teknir inn en undanfarin ár.
Sá hluti sem féll voru svo vesalings bókararnir sem ætluðu að verða viðurkenndir bókarar en ekki uppgjörsbókarar. Mikið OFSALEGA lyktar þetta fyrirkomulag á náminu af peningaplokki. Verð nú bara að segja það.
Svo voru það skattalögin eftir óbjörgulega byrjun á tíma þegar nemendur töldu sig ekki hafa fengið allt námsefnið sem lá frammi og kennarinn komst ekki inn á tölvukerfið til að sýna glærurnar sínar kom í ljós að skattalögin eru mjög áhugaverð lesning. Hvort þau verða það áfram þegar verður farið dýpra í efnið en var gert í kvöld kemur í ljós. Held þó að þessi áfangi verið skemmtilegri en hinir. Það er nefnilega svo að efni sem er áhugavert er skemmtilegt og þó lagabálkarnir séu ekki beint skemmtilesning er gaman að læra/skilja/kunna/ þetta efni.
Mér sýnist kennarinn ætla að koma einna best út af þeim kennurum sem ég hef séð þarna ennþá. Skipulögð og fer yfir efnið án mikilla útúrdúra. Virðist ekki ætla að fara Krísuvíkurleiðina með viðkomu á Eyrarbakka þegar hún þarf til Hafnarfjarðar eins og tíðkaðist í reikningshaldinu.
Þetta er auðvitað fyrsti kvennkennarinn sem við höfum verið með þarna og það er náttúrulega ekki spurning að þær mæta ekki í tíma óundirbúnar með verkefni sem gleymdist að reikna út og athuga hvort stemmdu eins og ónefndir endurskoðendur gerðu.
Hugsa sér að menntaðir endurskoðendur skuli leggja fyrir dæmi um afstemmingu sem ekki gengur upp af þvi þeir gleymdu leggja saman tölurnar.
Ég vil fá fleiri konur í kennslu þarna.
Einu áhyggjurnar sem ég hef að þessum þætti námsins (fyrir utan að þurfa að sitja svona marga klukkutíma marga daga í röð) er að efnið sé svo viðamikið að ég nái ekki að læra það almennilega. Annars er þetta allt á jákvæðu nótunum í bili.

Að láta ljós sitt skína
Ég velti því fyrir mér í fullri alvöru að láta ljós mitt skína hérna en uppgötvaði þá að ég er orðin alltof sifjuð til þess.
Löng og ströng vikulok og helgi framundan og ég þarf bara að rifja upp æðruleysisbænina í tilefni af því.
Lítil vinkona átti afmæli í dag. Hún var tveggja ára. Afi minn hefði orðið hundrað ára og lítill bróðursonur minn verður held ég 6 ára á morgun.

25. október 2004
Prófið búið
Prófið búið og ég fer í ferlega fýlu ef ég fæ ekki allavega 9. Helst 10. Veitir víst ekki af heldur eftir síðasta próf.
Nú krosslegg ég fingur og vona að ég hafi örugglega sent excelskjalið með prófsvörunum en ekki myndir af Tölvunarfræðingnum sofandi með köttinn sinn.
Frí í skólamálum fram á fimmtudag, ég fer í Rúmfatalegerinn að sinna málum fyrir ættingja og svo finnst mér að einhver ætti að fá sér kaffi með mér. !!!!!
Lærði þessa fyrir löngu síðan og af einhverjum ástæðum datt mér hún í hug núna.
Hófdrykkjan er heldur flá
henni er valt að þjóna.
Hún er bara byrjun á
að breyta manni í róna.

Home sweet home
Komin heim og á að fara að læra. Reyndi að lesa SVÓT í ferðinni, renndi einu sinni í gegnum glærurnar sem ég var með og lýg engu þegar ég segi að þær hafi verið bull. Voru minnst um það sem við áttum að læra.
Svo skítt með það, prófið er heima og ég með glærurnar og fletti upp í þeim ef þarf. Skiptir víst meira máli að fara í gegnum Excelverkefnin aftur.
Þórsmörkin var frábær eins og alltaf, sólskin, logn og lítið frost. Skoðaði nýjan hluta af henni núna en á samt ótal gönguleiðir eftir, langar og stuttar.
Kosturinn við að vera á ferð með fólki sem þekkir svæðið er að það sýnir manni oft leiðir og staði sem maður færi á mis við annars.
Heilsan var ekkert afspyrnuslæm á sunnudagsmorgun sem betur fer, reyndar er það allt minni heilbrigðu skynsemi að þakka. Hleypi henni svo sem ekkert oft að en... Það getur verið ágætt.
En Excel og kaffi er á dagskránni fram að hádegi.

22. október 2004
Burt úr bænum
Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Suðurland:
Norðaustan 3-8 m/s og bjartviðri, en líkur á skúrum austast. Hiti 0 til 7 stig að deginum, en víða vægt frost í nótt.
Búin að pakka og lesa veðurspána, ekki útlit fyrir að ég fái snjókomu i Mörkinni þessa helgi en það lítur út fyrir að það verði heiðskýrt og þá stjörnubjart og vaxandi tunglið er orðið rúmlega hálft. Sem sagt, allt mjög jákvætt og ég á leið út úr borgarljósunum og finnst það ljúft.
Ætla að fara að sofa og sofa vel og vaka framm á nótt á morgun.

20. október 2004
Það verður og fer sem fer
Búin í stresskastinu í bili. Alveg þangað til ég hrekk upp í nótt, sýp hveljur og æpi ,,próf" ,,einkunnir" En skítt með það þangað til.
Ég fór og skoðaði myndir af svæðinu norðan Vatnajökuls. Frá vatnasvæði Jökulsár á fjöllum frá upptökum fram að ósi og spurði sjálfa mig hvers vegna í ósköpunum ég hefði aldrei komið í Jökulsárgljúfrin og skoðað hljóðaklettana.
Ég gat ekki svarað því en það líður að þvi að ég gerið það. Styttist óðfluga í að ég komist á eftirlaun og þá hef ég nógan tíma til að skoða allt sem ég kem ekki í verk fram að þeim tíma vegna öfugrar forgansröðunar gegnum árin. (ef það verðu ekki allt horfið undir miðlunarlaón)
Verð nú reyndar að virða mér það til vorkunnar að ég hef lítið val átt um tómstundir síðustu árin en það er sem betur fer að breytast núna.
Rifjaði upp að ég hefði þurft að afþakka vinnu við skálavörslu í sumar og ég sé eftir því enn.
Ákvað að rétti tíminn til að spá og spekulera í gönguferðum sumarsins væri í vetur og nauðsynlegt að hafa eitthvað til að hlakka til í sumar. Veit að það er ekki alveg að ,,vera í deginum" en samt svooo gaman.
Þarf eiginlega að finna leið fyrir Sjúkraliðann að kaupa sér fjórhjóladrifsbíl svo ég geti allavega látið hana skreppa með mér í Hvítárnes og Húsavík.
Sunnudagsgöngur í vetur og fullt hægt að gera. Hvað er ég eiginlega að þvælast í skóla?
UNIVERSITAS ISLANDIAE
Ég minnist þess,
að fyrir átján árum
stóð opinn lítill gluggi
á þriðju hæð.
Og fókið tók sér hvíld
eitt andartak
og horfði dreymnum augum
út um gluggann.
Þá brá ég við
og réði til mín mann
sem múraði upp í gluggann
Steinn Steinar

Einkunn
Þá er ekki lengur hægt að neita að horfast í augu við veruleika náms og prófa.
Fyrsta einkun komin og ég ,,náði" eins og ég bjóst við en þarf að bæta mér þetta ,,náði" upp í næsta fagi.
Meðaleinkun þarf sem sagt að vera sjö til að ná náminu þó svo það dugi að ná fimm til að ná í hverju fagi fyrir sig.
Óneitanlega eru þetta svolítið miklar kröfur.
En þó ég hafi vitað nokkurnveginn þegar ég fór út úr prófinu hver einkuninn yrði og það hafi staðist hjá mér er ég með óþægindahnút yfir þvi að þurfa að ná yfir sjö á næstu tveimur prófum.

Miðvikudagur
og ...
Það var einhvað sem byrjar á þessu en framhaldið vill bara ekki koma fram úr minninu. Rígheldur sér einhverstaðar þar og þrjóskast við. Enda nóg annað að gera en að velta sér upp úr gömlum texta eða ljóðabrotum illa vöknuð á morgnana.
Svaf of lengi í morgun, hef greinilega verið þreytt eftir dugnaðinn síðustu tvo daga. Dreif mig á fætur bæði mánudag og þriðjudag klukkan sex og fór í ræktina. Fann þegar ég fór í leikfimi á mánudagsmorguninn að það væri ekki orðin vanþörf á að fara að hreyfa sig aftur.
Þarf að taka skurk í vinnunni en er ekki lögð á stað. Þarf að læra eftir vinnu og sjá hvort ég hætti ekki að hrökkva upp á nóttinni með andfælum og hugsa ,,prófið!" ,,ég verð að læra fyrir þetta próf" Held að ég væri sáttari ef ég rifjaði upp þó ekki væri nema eins og eitt verkefni á dag.
Eitt fall á dag kæmi skapinu í lag. (excelfall, ekki próffall)
Ætla samt ekki að sleppa myndkvöldi i kvöld og saumaklúbb á morgun. Verð í fríi fyrir hádegi á föstudag og fer yfir málin þá og svo get ég líka verið í fríi á mánudagsmorgun ef ég þarf svo þetta stress er óþarfi en það bara neitar að yfirgefa mig. Það er annað en minnið sem neitar að koma til mín.
Annars var þetta víst ,,mánudagur og lifið gengur sinn gang" en úr hverju er þetta aftur.
Síðan mín er eitthvað einkennileg, linkar og annað byrtist ekki fyrr en fyrir neðan allan texta og ég kannast ekki við að hafa verið að fikta neitt í Template núna. Kannski það sé bara tölvan hérna.
Farin í vinnu þar sem kaffið er þunnt.

18. október 2004
Nístir merg og bein
Súlan á hitamælinum stóð í 22°C í vinnunni í dag. Ég neita að trúa að hann sé réttur, það voru sko engar 22° við skrifborðið hjá mér og þegar vindhviðurnar skullu á glugganum bak við mig fann ég kuldablástur á bakinu. Endað með þvi að fara í vetlingana til að koma í veg fyrir kal. Það er margt þægilegra en fletta pappírum með vettlingum. Mesta furða þó hvað er hægt að slá á lyklaborðið vettlingaklæddur.
Kom við í garnbúð á heimleiðinni og keypt mér garn í grifflur.

Brrrrrrrr
Kalt, kalt, kalt.
Kunni ekki við að vera í ullarsokkum í vinnunni en hefði ekki veitt af. Ætlaði að taka með mér þykka peysu til vara en GLEYMDI henni.
Kalt.

17. október 2004
Deginum illa varið
Ætlaði að læra í dag, læra, taka til, læra, vinna.
Þetta var dagskráin. Hún riðlaðist áður en ég komst í inniskóna í morgun. Eyddi klukkutima í að dorma undir sæng dotta og nenna ekki á fætur. Næstu klukkutími fór í að dekra við sjálfa mig. Svo reyndi ég að læra. Það er svo svæfandi að læra að ég þurfti að leggja mig og svo lærði ég svolítið og nú er dagurinn að verða búinn.
Eins gott að prófið er ekki fyrr en eftir viku.

16. október 2004
Home alone
Skutlaði Tölvunarfræðingnum í farið sitt austur fyrir fjall í morgun. Hún er á leið i æfingarbúiðir í þetta skipt kóræfingarbúðir og verður til morguns. Hef ekki séð á eftir henni í æfingarbúðir síðan hún var að fara með skátunum hérna í denn. Það voru auðvitað ekki kallaðar æfingarbúðir heldur skátamót.
Man ekki hvað hún var gömul í fyrra skiptið sem hún fór í viku á skátamót þá á Úlfljótsvatni en man að þegar ég bakkað bílnum mínum frá húsinu til að keyra henni í veg fyrir rútuna varð ég vör við einhverja ójöfnu undir bílnum og þegar ég leit framm fyrir bílinn aftur sá ég köttinn minn sitja mjálmandi og horfa á 3 mánaða kettlinginn sinn engjast á bílastæðinu.
Ég forðaði mér í burtu og kom skátanum í rútuna. Kettlingurinn hreyfðist ekki lengur þegar ég kom heim aftur en kisa mín sat yfir pollinum á bílastæðinu lengi eftir að ég fjarlægði líkamsleifar afkvæmis hennar. Á endanum tók ég hana og hélt á henni inn og lokaði á eftir okkur.
Skátinn minn kom svo heim viku seinna kolbrún upp á miðja handleggi og leggi með brunahrúður á nefbroddinum og hárið á henni sem náði niður í mitti hafði ekki orðið vart við hárbursta frá þvi hún fór!!!
Næsta ferð í ,,æfingarbúðir" var nokkrum árum seinna og þá norður í Kjarnaskóg. Hún var ekki sólbrennd og lítil flækja í hárinu eftir þá ferð en með tvöfaldan ökkla og hölt lengi á eftir.
......................................................................................................................................................
Bækurnar mínar eiga það til að tínast. Tínast og finnast.
Var farin að hafa áhyggjur af annari bókinni sem ég keypti á bókaútsölu um daginn. Var hætt að leita þegar ég fann hana.
Og af því sumir sem ég þekki kunna ekki að meta sögurnar hennar Steinunnar en kunna að meta ljóðin hennar og ég vona að það hafi ekki breyst eftir að það kom í ljós hvaða Steinunn það var sem orti.
Ljósmynd handa syni
Rétt austan við skarðið þar sem burknarnir vaxa, í mjög þéttum og
stórum breiðum, kemur gömul kirkja í ljós, milli trjánna með
rauðgulum berjum.
Hennar er hvergi getið í bókinni.
Þó skaltu koma nær, sonur minn, ef þú ferðast um þessar slóðir.
Þú leggur bílnum við hliðið og gengur spölinn niður að kirkju, gegnum
garðinn með mörgum krossum úr steini.
Handan við kirkjuna opnast útsýn yfir vatnið, the loch, og fjöll með
blómstrandi tindum. Þeir eru bleikfjólubláir.
Við kirkjugarðsvegg er einn hestur ljós og annar dökkur nær vatninu, á
beit undir trjám með síðar krónur.
Hér eru grafir mjög ungra hermanna, Duncan Frost, sonur, særðist til bana i Hollandi, nítján ára, 1944.
Ég sagði bílstjóraanum að í mínu landi hefðu engir synir dáið á
vígvellinum. En hungrið hefði sorfið að, öldum saman, og næstum
grandað þeirri litlu þjóð.
Svo sá ég legstein annars Duncans. Hann var ekkjumaður í hálfa öld. Á
sama steininn er letrað nafn sonar hans, Roberts, sem varð áttatíu og fimm ára.
Bílstjórinn tók mynd af mér á rauða kjólnum, með hestana tvo og
vatnið í baksýn, og einn hinna skæru tinda sem ég vissi ekki að væru til.
Hér hefurðu myndina, svo þú sért viss um að rata.
Og meðan ég man, þetta er líka myndin af ömmu í útlöndum sem
börnin þín skoða, þegar þar að kemur.
Steinunn Sigurðardóttir
Það var svo skrýtið að við hliðina á Hugástum Steinunnar var önnur bók sem ég vissi ekki að væri til hérna. Ég hlýt að eiga hana, ég veit ekki til þess að nokkur annar hér kaupi sér ljóðabækur. Þessi heitir Alla leið hingað og ég var að hugsa um að kaupa hana á bókaútsölunni en gerði það ekki sem betur fer úr því ég átti hana. Eða hvað?
Júní
Sólin
í borginni
Hafð
blárra en blátt
hvislar að borginni;
Mundu mig alltaf
svona...
Þegar þú ert hjá mér (brot)
En á stundum í ísbláma morgunsins
klæðist þú nóttinni
og dansar í næturgleði;
ég stend hjá,
horfi á þig dansa
svona næturglaðan,
stend hjá
og er bara opið sár
í ísbláma morgunsins.
Nína Björk
Í bókunum hennarþessum sem ég á sveiflast maður frá hugljúfum ástarjátningum til nístandi örvæntingar geðsýkinnar.
Ekkert þarna sem lætur mann ósnortinn.

Skóli og gönguferðir
Skólinn byrjar eftir 10 mín og mig langar meira til að fara í sund og liggja svo í heitapottinum í hálftíma en það er verið í tölvustofu og aldrei þessu vant var gaman í gærkv. svo ég ætla aftur í dag þó kennarinn tæki það fram í gær að ef við værum búin með eða að verða búin með verkefnið sem á að skila ættum við svo sem ekkert erindi í skólann.
Ég kíki.
Langar í haustlitaferð um Elliðaárdalinn eða upp frá Kaldaseli. Ætli Sjúkraliðinn sé tilbúinn að labba smá þegar hún verður búin að sofa eða ætli það bíði skúringar og tiltekt eftir henni.
Er annars ekki eitthvað af laufi eftir á trjánum?

15. október 2004
Sjónvarpsgláp
Snemma búin í skólanum í kvöld, kom heim uppfull af Excelandgift og ætlaði að halda áfram að mennta mig í fræðunum. En.. þar sem er bara ein tölva orðið til á heimilinu og hún var ekki laus settist ég í sófann og fór að horfa á sjónvarp. Law and Order og þegar það var búið var tölvan enn ekki laus og ég fór að stara á Midnight Run og stóð svo ekki upp fyrr en hún var búin. Maður fer ekki frá hálfri mynd loksins þegar tölvan losnar, enda orðin hundlöt þá.
Midnight Run, létt spennumynd frá 1988 eins og stendur í dagskránni og það var fyrir tima GSM. Finnst alltaf menn svolítið heftir í gömlum bíómyndum þegar þeir hafa ekki gemsana til að bjarga sér með. Er það ekki merkilegt hvað maður er fljótur að venjast svona hlutum og finnast þeir ómissandi hluti af lífinu, hasarmyndum og menningunni allri?
Lesefni
Haustmorgun
Uppistaða hrím,
ívafið dögg- það endist
ekki langa stund,
glitofin silki-sólhlíf
skógarins mun senn bresta
Einsemd
Hjá heiðar-býli
sem löngu lagðist i auðn,
getur jafnvel skin
mánans á haustnótt skolfið
af geig einmannaleikans
Laufvindar
Á hausti sveipar
svöl þokan hlíðar fjallsins
í hvítavoðir;
hreinn ljómar hátindurinn
svífandi frjáls í bláin.
Japönsk ljóð
Þýð. Helgi Hálfdanarson

14. október 2004
Excel og ávöxtunarkrafa
Búin að skoða Excel í bak og fyrir í kvöld. Verst að vera með gullfiskaminni og vera búin að gleyma öllum þessum föllum þegar ég kem heim. Búin að sjá að það er hægt að nota þetta forrit miklu meira en ég geri. Er samt engu nær um ávöxtunarkröfu útreikninginn í Excel og er alvarlega að spá í að læra ekki staf meira um það.
Hætti snarlega við að æfa mig í kvöld og ætla að horfa í CSI í staðinn.

Lesskilningur
Er búin að sjá að lesskilningurinn minn er ekki upp á marga fiska. Er margbúin að sjá í póstinum mínum ,,miðvikudaginn 20.okt" en ákvað samt að það sem ég ætlaði að fara að gera væri miðvikudaginn í gær. Það var bara 13. en hvað með það. Mér hentaði að lesa það en ekki að ég væri að lesa um eitthvað sem ætti að vera eftir viku. Þannig er nú það. Bull.
Svo ég átti óráðstafaða kvöldstund í gær svo ég fór í heimsókn og horfði á Bráðavaktina og fór svo að leika tölvukunnáttumann. Gaman að koma svona þar sem fólk kann lítið meira á tölvu en að kveikja á henni og ræsa ritvinnsluforrit og skoða vefsíður. Þá virka ég eins og tölvugúrú þegar ég downloda forritum til að eyða spyforritum og læt þau skanna tölvuna hjá viðkomandi. Það versnar i hlutunum þegar ég ræð ekki við vandamálið og þarf að fara með tölvuna undir handleggnum til Tölvunarfræðingsins og biðja hana að skoða þetta aðeins fyrir hann móðurbróðir sinn sem er handviss um að gestir og gangandi séu búinir að eyðileggja græjuna fyrir honum og hann var bara að ,,borga síðustu afborgun og tölvan bara ónýt"
Enn versnaði í málum þegar aðgerðir Töluvnarfræðingsins og vinnufélaga duga ekki til og netið frýs jafn mikið og áður. Af því ég þoli ekki spyforrit sem fara svona með tölvur hjá blásaklausum notendum Internetsins sat ég lengi yfir veikri tölvunni í gærkvöldi og þrjóskaðist við að henda út einhverju sem kom jafnóðum aftur. Fiktið í mér skilar svo sem engum árangri öðrum en þvi að ég læri pínulítið í hverri svona syrpu.
Og talandi um að læra þá er skóli í kvöld og ég hlakka ekkert smá til. Nei annars ég hlakka ekki til að sitja þarna þó námsefnið sé bara þokkalega skemmtilegt.
Og ÉG kvíð ekki fyrir Londonferðinni. Ekki strax allavega við hljótum að bjarga okkur á milli, er reyndar strax farin að skoða hvort við eigum ekki bara að taka rútu frá Stansted eitthvað annað en til London. Finnum okkur einhverja rútu og hoppum upp í og sjáum hvar við lendum. Það hlýtur að vera hægt að finna gistingu allstaðar. Og tvær miðaldra (ein allavega, Ella er svo ung ennþá) konur talandi lélega ensku á flakki um Bretland þvert og endilangt um hávetur! Hljómar það ekki spennandi. Getum svo auðvitað tekið lestina til Parísar. Verst með bókabúðirnar þar, ég sá ekkert í þeim sem ég gat lesið hérna um árið. Endaði með þvi að kaupa barnabók með fallegum myndum og ítölskum texta í fornbókabúð til að eiga mynjagrip.
Jæja best að koma sér í vinnuna. Hef um tvo vinnustaði að velja til að dunda mér á á morgnana og oft stendur valið aðalega um það á hvorum staðnum er betra kaffi. Verst að ég verð víst að fara þangað sem er alltaf búið að hella upp á lapþunnt hálfvolgt kaffi sem ég þarf að setja instantkaffi saman við til að það sé drekkandi. Hef ekki kunnað við að hella niður þessum tveimur lítrum af kaffi sem eru til þegar ég kem til að hella upp á nýtt. Þeim gæti sárnað og þurft að fara að hella vatni í kaffið sem ég bý til, til að þynna það út.

12. október 2004
Kvíði
Finn fyrir kvíða ekki nógu alvarlegum til að ég geti kallað það kvíðanút, kvíðaslaufa væri nærri lagi. Veit ekki hvers vegna, kannski er engin ástæða kannski er einhver vel falin ástæða fyrir þvi.
Skólinn byrjar aftur á fimmtudagskvöld. Get ekki sagt að ég hlakki til að sitja þar fimmtudags. og föstudagskvöld og 5 eða 6 tíma á laugardag. Finn að bakið fer að kveinka sér bara við tilhugsunina en hlakkar í vöðvabólgunni og þó er frí á sunnudaginn. Hvernig verð ég í nóvember þegar sunnudagar bætast við. Hugga mig við að þá á ekki að keyra þetta tvær helgar í röð eins og núna.
Kannski má rekja kvíðann í það. Kannski verð ég svona fram yfir áramót. Og kannski alla ævi. Ágætt að búa sig undir það.
Langar til að fara annaðkvöld og sjá myndir úr Vatnajökulsþjóðgarði en tilhugsunin um að sitja á hörðum stól í tvo tíma... æi mig eiginlega hryllir við því. Sé til hvað ég geri.
Engin leikfimitími á morgun sem ég get hugsað mér að fara í svo ég ætti kannski að draga upp strigaskóna og fá mér göngutúr og hætta þessu helv. væli.
Geri það á morgun, sef á því í nótt.
Reimleikar
Einhver vaknar og hvíslar
hásri röddu
krafsar líka í vegginn
í myrkri hjartans
hvíslar og krafsar
í myrkri hjartans
einhver annar.
Nína Björk Árnadóttir

Skrítið
Ég er komin með blogg skyldurækni. Finnst endilega að ég þurfi að setja eitthvað hérna inn áður en ég fer að sofa. Kannski er þetta orðin hjátrú hjá mér. Sef ekki ef ég blogga ekki! Sef ég þá vel ef ég blogga? Held nú reyndar að það breyti engu.
Hlakka til að skríða undir sæng og sofna. Annars eru það alltaf þessi andartök milli svefns og vöku sem eru þægilegust. Það sem tekur við af þeim er bara svefn og meðan á honum stendur veit maður ekkert af sér. Vaknar bara vonandi úthvíldur á morgnana. En þessi andartök þegar vakan breytist í svefn sem maður er búinn að bíða lengi eftir eru svo þægileg að stundum á ég það til að bíða með að fara að sofa bara til að geta hlakkað til þeirra aðeins lengur. En bara þau kvöld sem ég veit af löngum svefnfrið framundan.
Á morgun ætla ég ekki að vakna við vekjaraklukku, ekki að rífa mig á fætur og fara í spinning heldur fara í vinnu þegar mér hentar.
Veit auðvitað að ég sef aldrei lengur en til átta en núna finnst mér það vera langt fram á morgun.
Morgunvers
Úr djúpum geimsins
er dagurinn risinn og slær
dýrlegum roða
á óttuhiminninn bláan,
- og lof sé þér, blessaða líf,
og þér, himneska sól,
og lof sé þér, elskaða jörð,
að ég fékk að sjá hann.
Guðmundur Böðvarsson

10. október 2004
Helgin liðin og lítið gert
Flóttamaðurinn komin heim aftur.
Hafði ofan af fyrir vinkonu í gærkvöld og fram á nótt. Passaði að hún færi ekki of snemma að sofa, af því hún eyddi laugardagsnóttinni í skemtanir og laugardeginum í vinnu gat ég ekki látið hana komast upp með að fara snemma að sofa.
Hún slapp svo þegar dóttirin hringdi í mig um tvö leytið og bað mig að skutla sér í bæinn. Skutlaði henni og einum partýgesti en sonurinn og kærastan tóku bara til eftir parýið og fóru hvergi. Það var líka í lagi að koma fram í morgun.
Bókaði og borgaði ferð til London í dag.
Förum reyndar ekki fyrr en í febrúar en það er í góðu lagi. Gott að hafa eitthvað til að hlakka til í skammdeginu, og bæta svolítið við peningaáhyggjurnar. Þrífst ekki án þeirra!
Tómleikur
Þeir dagar koma,
að þagnar jafnvel sorgin,
og sálin situr
mitt í auðninni
ein
sem köngurló við spuna
og spinnur - tómleik.
Hermann Bang.
Þýð Magnús Ásgeirsson

9. október 2004
Af flóttamönnum og ,,fallegum" börnum.
Annað kvöld þarf ég að flýja hús. Hér verður haldin afmælisveisla sem mér er ekki boðið í og nærveru minnar ekki óskað. Þar sem unglingurinn minn er að halda upp á 21 árs afmælið sitt held ég að það hljóti að vera óhætt að leyfa foreldralaust partý.
Í morgun voru sem sagt 21 ár liðin síðan mér var réttur langur og mjór drengur á fæðingardeild Landspítalans.
Nýbúið að losa hann úr hengingartaki vel vafins naflastrengs um hálsinn og hann leit ekki út fyrir að hafa fengið mikla næringu í móðurkviði.
Næturvaktir, kaffi og níkótín er víst ekki heilsusamleg blanda á meðgöngu. Eyrun stóðu eins og trektir út frá höfðinu og nefið var það sem mest bar á í kinnfiskasognu andlitinu.
Ég féll auðvitað strax fyrir drengnum en tjáði nú samt pabba hans að hann væri ljótur litla greyið.
Litarhátturinn lagaðist fljótlega þrátt fyrir illa meðferð, fyrst á vökudeild þegar hann fór í blóðskipti og sýndi þar ,,góð lífsmörk" en það þýðir grátur eins og lungun leyfa og sem betur fer heyrði ég þau merki ekki og seinna á barnadeild þar sem hann sýndi svo góð ,,lífsmörk" þegar var verið að setja upp nál til að dæla í hann meira blóði að hann naflaslitnaði við grátinn.
Stráksi var ekkert sérstaklega vær en dafnaði þó það vel á móðurmjólkinni að hann var kominn með 2 undirhökur eftir nokkrar vikur og smá saman fóru eyrun að færast nær og nær höfðinu og liggja þétt upp við það núna eins og vera ber.
Þar sem pabba hans hefur aldrei verið lagið að þegja þegar þegja þarf hefur hann þó nokkrum sinnum tjáð syninum hvaða orð það voru sem mamma hans hafði um hann þarna á fæðingardeildinni um árið.
Ég vil meina að hann hafi þau nú ekki orðrétt upp eftir mér og það sé mikill munur á að segja ,,ósköp er hann ljótur" eða að segja ,,hann er ljótur" það er áherslumunur á þessu.
Hvaða ástæða er svo sem til að vera að ljúga upp á nýfædd börn. Þau eru flest ljót, krumpin, hrukkótt, rauð og grett og foreldrunum þykir vænt um þau þrátt fyrir það. Það hljóta að vera bestu meðmæli sem börnin geta fengið með foreldrunum amk. er ekki hægt að segja að þeir falli fyrir útlitinu.
En í nýlegum umræðum um þessa skoðun mína á útliti sonarins strax eftir fæðingu tjáði ég honum að honum hefði farið mikið fram útlitslega síðan og með þessu áframhaldi yrði hann mjög fallegur gamall maður.
Og svo við höfum þetta nú allt á hreinu tek ég fram að þessi langi, mjói, ljóti ungi minn er orðinn að löngum, mjóum, huggulegum ungum manni í dag.
Svo er hann auðvitað svo fjand.. vel upp alinn líka!
Sýnishorn af hugmyndfræðinni sem höfð hefur verið til hliðsjónar við uppeldi afkomenda minna.
Vögguvísur sem Hafrún lærði í uppvextinum.
Það á að strýkja stelpuna
stinga henni ofan í forina.
Loka hana úti og lemja´na
og láta hann Bola éta´na.
Það á að strýkja strákaling,
stinga honum ofan í forarbing.
Loka hann úti í landsynning
og láta hann hlaupa allt um kring.
Þetta er birt með fyrirvara um ritun og greinamerki. Hef aldrei séð þetta á prenti þó ótrúlegt megi viðrast.

8. október 2004
Og skólinn byrjaður
Mætti í skólann í kvöld í fyrsta skipti í tvær vikur eða frá því í prófinu sem best er að tala sem minnst um, líka niðri í skóla. Þetta var með leiðinlegri skólasetum sem ég hef lent í. Nám í upplýsingatækni þetta kvöldið gekk út á að rúlla gegnum power point á öðru hundraðinu og stoppa á 20 hverri síðu og tala eitthvað örlítið um það sem á þeim var. Minnst á skiljanlegu máli eða þá að maður var orðinn svo sljór af þvi að horfa á rúllið á veggnum fyrir framan sig að samhengi náðist ekki.
Frétti það þegar ég mætti að námsefnið hefði verið sent út í pósti í gær. Ég tékkaði á póstinum mínum í dag og átti ekkert bréf frá skólanum. Kannski var þetta of stórt fyrir pósthólfið mitt. Bara 283 síður af power point glærum. (óþjöppuðum) Kræst.
Æ ég er að verða fyrir svolitlum vonbrigðum með þetta blessaða nám og ekki bætti úr skák að frétta það í dag að ég hefði getað skipt þessu niður á fleiri ár eða annir, þarna vara að byrja kona sem tók reiknignsskilin í fyrra og ætlar að taka upplýsingatæknina núna.
Já og að ógleymdi því að síðasta einn og hálfan tíman í kvöld sat ég undir útlistun á því hverng er best að skipuleggja desktoppinn hjá sér copera milli drifa og mappna stilla screen saver og nota disk cleanup, winzip og eitthvað svona dóterý sem allir ættu náttúrulega að vita. Nei auðvitað var fullt af fólki þarna amk einhverjir sem ekki vissu hvað winzip er og svona ýmislegt en æi hvað það er ,,boring" að sitja undir þessu.
Ég er að hugsa um að kvarta við þá aðila sem hafa umsjón með þessu námi, mér finnst kennararnir gefa sér ákveðnar forsendur um hópinn sem þeir eru að kenna og þær eru held ég nokkuð fjarri raunveruleikanum.
Var að finna upp nýja kennitölu, held að hún passi ekki í reikningshaldið en kannski í upplýsingatæknina.
Starfandi bókarar vs. bókarar sem vinna í litlum fyrirtækjum.
Þetta er kennitala sem ég held að kennarnrnir þarna séu að vanmeta. Við þurfum náttúrlega aðra kennitölu til samanburðar en ég er ekki alveg búin að finna hver hún er.
Þetta bull skilur náttúrlega enginn nema kannski Endurskoðandinn tilvonandi sem situr með sveittan nebbann við að læra allt um skattskil og ætlar svo að taka að sér að kenna á svona námskeiðum þegar hún verður stór. Hefur það fram yfir margann kennarann þarna að þekkja af eigin raun hvað það er sem nemendurnir eru að vinna við.
KENNITÖLUFRAMHALD
Starfandi bókarar vs bókarar á bókhaldsstofum.
Starfandi bókarar vs. bókarar hjá fyrirtækjum á markaði.
Þessar kennitölur auk þessarar fyrstu er eitthvað sem ég held að mætti skoða í sambandi við námsefni og áherslur í náminu.

7. október 2004
7. október
Sjöundi október er afmælisdagur.
Afmælisdagur sem við munum alltaf eftir þó það hafi ekki verið haldið upp á hann i 26 ár.
Haustin geta verið svo grá, köld og grimm.
En á morgun er afmælisdagur sonar míns.
Bæði börnin mín eru fædd að hausti.
Var haustið að gefa mér mótvægi við missinn.
----------------------------------------------
ÞEGAR GRÖS ÉG SÉ
Þegar hneigðu höfði í skuggann svarta
hverfa sé ég lítinn blómaálf,
þegar grös ég sé í víðum velli
visnuð meira en hálf,-
mjúkum skrefum inn í hús míns hjarta
gengur sorgin sjálf.
Og á altar dauðans dúk hún breiðir,
drifhvítt aldagamalt kirkjulín,
og hún leggur ljósar hendur yfir
lítið helgiskrín-
Þar var lögð til sinnar hinst hvíldar
áður, æskan mín.
Og hún krýpr, bænir sinnar biður,
brosir eins og móðir gegnum tár,
Þar sem djúpum, sælum dauðasvefni
sofa mínar þrár.
-Friður, drottins friður sé með yður,
löngu liðnu ár.

5. október 2004
Djöfull er kalt
Kalt úti kalt inni og mokkajakkinn sem mér var sendur í gær passar ekki á mig, er alltof stór. Verð að endursenda hann með tárin í augunum. Kannski ég sitji í honum við töluvna meðan mér er að hlýna.
Umm. Rosalega væri gott að eiga svona hlýja flík á köldum kvöldum og dögum. ER nokkur þarna úti sem vill gefa mér mokkajakka eða pels í jólagjöf?
Allt kemur í hviðum eins og Steinunn Sigurðar segir og nú er ein vinnuhviðan búin og smá hlé fram á fimmtudagskvöld. Ætla þess vegna að fara á SÁÁ skemmtun á morgun með vinkonu. Hún ætlar að heyra og sjá Bubba ég er að spá í að sjá og heyra Bubba og öll hin líka.
Saknaði þess að sjá ekki vinkonu mína þar sem ég vara í kvöld.
Var gefin hvítvínsflaska í kvöld. Verðlaunuðu fyrir vel unnin störf í þágu ónefnds mér náskylds iðnaðarmanns sem ég er búin að stilla mig um að skamma mikið þessa síðustu tvo daga. Ég segi stilla mig um að ,,skamma MIKIÐ" ekki ,,stilla mig um að skamma"
Moselland Ava.. get ekki lesið hvað stendur á flöskunni minni, ekki vegna þess að ég sé búin úr henni heldur vegna þess að þetta er einhver skrautskrift. Allavega á ég þýskt hvítvín sem er í svakalega fallegri blárri flösku og senilega tími ég aldrei að opna hana. Ekki nema ég hafi alveg sérstakt tilefni. Steiktan saltfisk og góða gesti eða ... eitthvað?

4. október 2004
Langur vinnudagur liðinn
og ég búin, nenni sko ekki að fara í spinning í fyrramálið. Var að vinna í kvöld til miðnættis. Er engin Ella og hef ekki úthald í marga svona daga.
Er svo þreytt og pirruð að mig langar til að lesa ærlega yfir hausamótunum á honum litla bróðir mínum en ákvað að stilla mig um það þangað til pirringurinn rénar. Það er svo lítið mark takandi á fólki sem rausar í reiði.
Hefði þurft að ala drenginn aðeins upp og kenna honum að umgangast pappírana sína (sem hann færir mér) með hæfilegri virðingu og aðgát. Ég veit að hann les ekki bloggið og má þess vegna aðeins þusa hérna.
Afmæli á föstudaginn og besta vinkona mín veit ekki hvenær krakkarnir mínir eru fæddir! Manni getur nú sárnað fyrir þeirra hönd. Ekki það að ég mundi nákvæmlega hvenær hennar krakkar eiga afmæli samt nokkurnveginn og sum upp á dag nema það næst yngsta en hún á nú líka helmingi fleiri en ég. (2.8, 24-26.4, ?, 31.3). Ég þekki þrjá einstaklinga sem eru fæddir 24,25 og 26 apríl og gengur illa að muna hver er hvaða dag. Það er mín afsökun en hver er þín Ella! Ellý Rún á afmæli 27 og svo á Gilla bráðum merkisafmæli og ætlar að svíkja okkur um partý! Ja hérna.
Kötturinn vælir við útidyrnar og vill komast út í rokið og kuldann, hann veit ekki um hvað hann er að biðja og ég ætla að vera svo óforskömmuð að loka hann bara inni í nótt.

3. október 2004
október
Fimm dagar í afmæli, 21 í Þórsmörk og 4 í næstu skólamætingu.
Sunnudagur og ég ætlaði að gera eitthvað annað en lesa í kvöld.
En það var gott að lesa.

Suðræn sveifla á laugardagsmorgni
Vaknaði í morgun og mundi ennþá loforðin mín um nýtt og betra líf sem voru gefin eftir mikið sælgætisát yfir videoinu kvöldið áður.
Fór í Baðhúsið og í suðræna sveiflu. Leikfimitíma með dansívafi, það var fátt í morugn amk. miðað við það sem var yfirleitt í tímunum í fyrravetur svo fátt að það stóð enginn fyrir framan mig annar en leikfimi-dans-þjálfarinn með speglavegginn á bak við sig.
Við töldum 1.2.3 1.2.3 tilltum og lyftum í takt við músíkina eða áttum að gera það. Eftir að hafa stundað þessa tíma nokkuð reglulega allan síðasta vetur er ég farin að ná að telja upp í þrjá. Og stundum næ ég þvi lika að það er þarna músík sem á talningin á víst að fylgja, ekki öfugt.
Einhverntima í þessu leikfimi-dansveseni öllu saman áttaði ég mig á því að fótahreyfingunum á líka að fylgja mjaðmasveifla og henni á að fylgja sveifla á höndum líka. Tók eftir því að þetta gerði þjálfarinn, steig sporin, sveiflaði mjöðmum og höndum í takt við músíkina eins og hún væri á kjötkveðjuhátíð í Buenos Aires.
Af einhverjum mér óskiljanlegum ástæðum fór talningin mín út um þúfur um leið og ég reyndi að setja góða mjaðmasveiflu með sporunum og þegar ég gerði örvæntingarfulla tilraun til að sveifla höndunum til viðbótar við allt hitt áttaði ég mig á að allir aðrir í salnum voru búinir að snúa sér í hálfhring og sneru baki í mig. ,,Hverju missti ég af" spurði ég sjálfa mig og reyndi að finna einhvern takt en áttaði mig þá að restin af hópnum var búin að klára snúninginn og enn sneri ég öfugt.
Fæturnir fundu loksins taktinn sem aðrir voru greinilega að fylgja þarna inni og eftir að hafa dregið andann djúpt nokkrum sinnum var ég farin að ná að heyra líka.
Var ég búin að minnast á spegilinn? Staðsettur á heilum vegg beint fyrir framan mig og með þvi að ég þurfti ekki lengur að telja í hverja hreyfingu gat ég litið upp og fylgst með árangri erfiðis míns. Yndisþokki og suðræn sveifla eru ekki orð sem ég myndi nota um árangurinn og eftir nokkrar vangaveltur er ég nokkuð viss um að fæturnir voru í salsa, mjaðmir í tangó og hendurnar í fugladansinum.
Ekki nema von að ég svitni í þessum tímum!

2. október 2004
Búðaráp
Búin að fá nóg af vinnu í dag og farin í búðaráp. Sjúkraliðinn vill fara á skóútsölu og bókaútsölu og ,,TÖLVUNARFRÆÐINGURINN" í Smáralindina ég ætla með þeim báðum. Og af því ég hef ekki fjárráð til að kaupa eitthvað í hverri ferði og öllum þessum búðum ætla ég að fara og skila jakkanum sem ég keypti í H&M í gær og panta mér nýjan.
Það er svo hollt fyrir sálartötrið að kaupa sér eitthvað og það hlýtur að koma að gagni að kaupa sér eitthvað og skila því og kaupa annað og skila því og kaupa...! Aðalatriðið í þessu er að kaupa, kaupa, kaupa, ekki eiga.

Óvænt fríhelgi
Mætti í skólann í dag bara til að frétta að það væri enginn skóli ALLA helgina og ég hefði vitað það ef ég hefði lesið póstinn minn. Ég er ekki ennþá farin að lesa póstinn! Svo ég veit ekkert annað en það að ég á frí þessa helgi og verð i skólanum tvær næstu í staðin. Kemur sér ágættlega, ég þarf að vinna upp smávegis í vinnunum og nota helgina í það.
Hér var verið að gera úttekt á umframmagni niðurhals af netinu, rétthafa símans fanst óþarflega háir reikningarnir fyrir því. Fékk senda útskrift yfir síðustu daga og bara það að kíkja hérna inn og á einhverjar slóðir sem enda á .com mældist 10Mb í gærkv. Finnst það nú svolítið mikið fyrir lítið. En það er búið að fara í saumana á hvað telur og hvað ekki og það að senda fæla með MSN er erlent niðurhal og ætti að vera óþarfi þegar það er hægt að nota póstinn. Er að velta þvi fyrir mér hvort notkun á MSN geti líka haft áhrif. Þekki það ekki en hér skal halda niðri símareikningunum og vita hvað er verið að borga fyrir. Ég er innilega sammála þvi og fer hér eftir ekki lengur á síður sem enda á öðru en .is. Og hana nú.
Nema... og ... og ... og ... fullt af öðrum.

1. október 2004
Prjónakvöld hafrúnar
Frí í skólanum í kvöld, tímanum reyndar frestað fram á sunnudag og ég nennti ekki í jóga eins og hefði verið svooo upplagt að gera en sat og prjónaði í staðin. Er með hálfkaraða lopapeysu á prjónunum en það var eignlega of einfalt að halda áfram með hana heldur byrjaði á einhverju nýju. Litaflipp, gulur, rauður, grænn og ... nei ekki blár heldur appelsínugulur. Stundum er bara þörf fyrir liti í lífinu.Líka á prjónunum.
Fór á bókasafnið eftir vinnu, þorði ekki að taka neitt til að lesa, bara myndabækur svo ég yrði nú ekki húkt á lestri og gerði ekkert annað næstu daga. Tók að vísu Sourcery eftir Terry Pratchett en af því ég er svo lengi að lesa enskuna er ég ekkert hrædd um að ég festist í lestri og vaki í alla nótt. Skoðaði svo prjónamynstur bækur fram og til baka af því að hálft gamanið við að prjóna felst í að gera tilraunir með ný munstur, stolin og stæld og skrumskæld.
er hálfnuð með símunstraðann sokk og hvort þeir verða nokkurntíma tveir er aukaatrið. Er líka ekki óþarfi að vera í samstæðum sokkun!
Og ein Tómas í lokin.
Engum er ljóst, hvaðan lagt var af stað
né hver lestinni miklu ræður.
við sláumst í förina fyrir það,
jafnt fúsir sem nauðugir, bræður.
Og hægt hun fer, en hún færist um set,
þessi fylgd yfir veginn auðan,
kynslóð af kynsóð og fet fyrir fet.
Og ferðinni er heitið í dauðann.

Silent All These Years
Silent All These Years
Little Earthquakes
http://www.hereinmyhead.com/videos/saty.html
Excuse me but can I be you for a while
My DOG won't bite if you sit real still
I got the anti-Christ in the kitchen yellin' at me again
Yeah I can hear that
Been saved again by the garbage truck
I got something to say you know but NOTHING comes
Yes I know what you think of me you never shut up
Yeah I can hear that
But what if I'm a mermaid
In these jeans of his with her name still on it
Hey but I don't care
Cause sometimes I said sometimes I hear my voice and it's been
HERE silent all these years
So you found a girl who thinks really Deep Thoughts
What's so amazing about really Deep Thoughts
Boy you best pray that I bleed real soon
How's that thought for you
My scream got lost in a paper cup
You think there's a heaven where some screams have gone
I got 25 bucks and a cracker do you think it's enough
To get us there

HERE silent all these
Years go by will I still be waiting
For somebody else to understand
Years go by if I'm stripped of my beauty
And the orange clouds raining in my head
Years go by will I choke on my tears
Till finally there is nothing left
One more casualty
You know we're to EASY easy easy
Well I love the way we communicate
Your eyes focus on my funny lip shape
Let's hear what you think of me now but baby don't look up
The sky is falling
Your MOTHER shows up in a nasty dress
It's your turn now to stand where I stand
Everybody lookin' at you here take hold of my hand
Yeah I can hear them

Cause sometimes I said sometimes I hear my voice
I hear my voice
I hear my voice
And it's been HERE silent all these years
I've been here silent all these years
Silent all these
Silent all these years

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)