Eða var það jafna x=y+z. Allavega er reglan sú að ef manni gengur ekki vel við það sem er verið að gera og einhver sýnir manni framm á það þá á að gefa út veiðileyfi á viðkomandi.
Í mínu tilfelli er sett inn í jöfnuna, (lærði ekki nóg fyrir próf + var sýnt fram á það í prófinu = veiðileyfi á prófsemjandann)
Þessi regla er hundgömul eignlega frá þvi löngu fyrir mitt minni, kannski er hún jafngömul mannkyninu þó að setningin um ,,að drepa sendiboðann" sé tilvísun í atburði í einhverju landi við Miðjarðarhafið fyrir meir en tvö þúsund árum. Annars er minni mínu í svona hlutum viðbrugðið fyrir lélegheit og ég man ekki þennan kafla úr mannskynssögunni frekar en aðra kafla úr henni. Þykist góð ef ég man fyrsta kaflann í æfisögu minni.
Er ekki búin að finna út hvar er helst að rekast á ,,kennarann" til að veiða hann enda þýðir ekkert að fara af stað nema hafa nógu stórann flugnaspaða í verkið. Flugnaspaði er eina leyfilega verkfærið í þá veiðiferð.
Og að öðrum óskyldum málum. Ég átti frí í kvöld! Vissi ekki hvað eða hvernig ég átti að vera. Þurfti ekki að læra og ekki að vera með samviskubit yfir því að vera ekki að læra. Sýndi þess vegna mína skárri hlið og eldaði saltfisk upp á gamla mátann. Soðinn með hamsatólg og kartöflum. Á helling af saltfiski sem bíður eftir að ég fái dugnaðarkast og steiki hann handa gestum sem ég þarf eiginlega að fara að bjóða í mat. Eftir að semja gestalistann en er farið að dauðlanga í steiktan saltfisk... og að gefa einhverjum með mér af honum!
Eftir fiskiátið hringdi ég í vinkonu mína sem ég vissi að átti EKKI (aldrei þessu vant) að vera að vinna í kvöld. Hún svaraði mér ekki í heimasímann og hún svaraði mér ekki í gsmið sitt og hún hefur ekki hringt. Annaðhvort hefur hún ekki séð að það er misstur kall á símanum hennar eða hún vill ekkert við mig tala.
Djöf. held ég hún sé illa upp alin þó ég sé búin að gera mitt besta í áratugi.
Skólafrí á morgun líka en brjáluð vinna frammundan það eru að koma MÁNAÐAMÓT. Hjálp! Vinnan á ,,smávinnustöðunum" hefur mætt afgangi þessar síðustu vikur og nú má ég bretta upp ermar til að vinna upp. Ætlaði reyndar að gera það í morgun. Byrjaði daginn með stæl, fór á fætur 5:15 og var mætt í spinning einum og hálfum tíma seinna.
Beint úr ræktini í vinnu bara til að lúskrast heim hálftíma seinna í svo svæsnu höfuðverkjakasti að ég var við að æla.
Vinnan bíður enn og nú man ég hverju ég ætlaði að redda fyrir þá í dag!!!!!!!!!
Verður mitt fyrsta verk í fyrramálið!
34
Afhvarf mikð
er til ills vinar
þótt á brautu búi.
En til góðs vinar
liggja gangvegir
þótthann sé firr farinn.
35
Ganga skal,
skala gestur vera
ey í einum stað.
Ljúfur verður leiður
ef lengi situr
annars fletjum á.
28. september 2004
27. september 2004
Veiðileyfi á
Gef hér með út veiðiðleyfi á endurskoðanda að nafni Agnar. Kvikindislegur prófsemjandi sem má alveg veiða með flugnaspaða.
Er að renna mesta reiðin eftir prófið en það er svona á mörkunum. Ekki reyna að halda því fram að ég hefði getað meira ef ég hefði haft meiri tíma til að læra ég hefði örugglega ekki látið mér detta í hug þessar áherslur sem þarna voru.
Eitthvað hefði nú sjálfsagt gengið betur með betri skilningi á viðfangsefninu en ekki allt.
Farin að horfa á CSI.
Djöfuls andsk. helv, ég þarf ábyggilega að ná 8 og 9 á prófunum sem eftir eru til að ná meðaltalinu.

26. september 2004
Mér LEIÐIST
Búin að vera ofurdugleg í dag og læra fyrir próf. Kannksi vandað mig of mikið við að leysa gömlu prófin. Setti þau upp eins og ég ætti að skila lausnunum. Er nebbilega líka að læra að skila handuppsettum uppgjörum, eins og það noti nokkur maður rúðustrikað blað og blíant til að setja upp og reikna fyrningarskýrslur. For Helvede! En það þýðir ekki að deila við kennarann og ég er að venja mig við. Þetta tekur bara alltof langan tíma og mér HUNDLEIÐIST að hanga hér heima yfir þessu.
Fæ pizzu á eftir í sárabætur.
Eins gott að krakkarnir gefi mér eitthvað að éta svo ég standi upprétt á morgun.

25. september 2004
Skápar
Skápar eru til margra hluta nytsamlegir. Maður geymir í þeim föt, skó, búsáhöld og ýmislegt dót. Svo má nota þá í líkingamáli.
Ég fór einusinni sem oftar á námskeið fyrir forvitnisakir, þetta var einhverskonar hugleiðslunámskeið eða hugræktarnámskeið stutt og laggott en það eina sem ég man eftir þvi var að leiðbeinendurnir voru að láta okkur taka til í fataskápunum okkar. Og ræða um hvað við geymdum í fataskápunum okkar. Ég sofnaði út frá hugsunum um hvort það væri ekki einhverjar flíkur í skápunum heima sem mætti henda. Leiðbeinendurnir komu því að að ég væri ekki tilbúin til að meðtaka efni námskeiðsins og ég var ekki alveg að átta mig á því hvað fólkið var að tala um . Efnið var bara eitthvað tal um föt úr náttúruefnum eða gerfiefnum og það var frekar svæfandi. Mér var bent á það eftir á að þarna hefði verið talað líkingamál um okkar andlegu skápa og tiltekt í þeim. Mér fannst þá og finnst ennþá að þetta hafi verið heldur langsóttar pælingar hjá þessu annars mæta fólki. Hef fundið miklu betri lausnir á andlegri tiltekt en að hugsa mig inn í fataskáp.
Svo keypti ég mér skáp þegar ég flutti inn hjá kerfisfræðingnum, ég og menntaskólaneminn. Þessi fataskápur sem er uppspretta ótal brandara eða öllu heldur sama brandarans frá flestum sem koma hér inn og eiga erindi í kjallarann.
Fasteignasalinn sem kom hér í dag til að meta íbúðina vegnar endurfjármögnunarhugleiðinga kerfisfræðingsins skoðaði svefnherbergin og baðið og stofu og eldhús en þegar hún opnaði stóra skápinn við hliðina á svefnherbergisdyrunum og bauð manninum að ganga þar nn og niður í kjallara sat ég í stúkusæti og fylgdist með svipnum á honum.
Þessi skápur er sko búinn að margborga sig.

Þoli ekki ..
Þoli ekki þegar allt hverfur sem ég er búin að setja hérna inn bara af því að ég smellit á more>> og svo virkaði bakk takkinn ekki til að fara í Post aftur. Svei því.
Ég þoli heldur ekki heilsuleysi og aumingjaskap. Er búin að fá kappnóg af sjálfri mér og vælinu í mér út af heilsuleysi og þreytu. Hætt þessu og ákveðin í að snúa vörn í sókn og hressast. Er ekki heilsufarið að stórumhluta hugarfarið? Fer á eftir og helli mér upp á rótsterkt kaffi (það er svo hollt) helli í það Amarula eða einhverju almennilegu og fer að skoða kostnaðarverð birgða, ef það dugir ekki fæ ég mér Amarula og helli í það kaffi! Það er nóg til af tollinum frá síðustu og næstsíðustu utanlandsferð. Gengur ekkert á þetta.
Las íslenska þýðingu á kínversku spakmæli í gær. Dettur alltaf í hug lítil vinkona mín þegar ég sé eða heyri eitthvað ,,kínalegt" , þó hún sé rammíslensk var hún nú einusinni kínverskur ríkisborgari. Hún og þett spakmæli eiga ekki annað sameiginlegt en að vera upprunni i sama heimshluta.
,,Hann gekk út á veginn eins og slys sem er ákveðið í að verða til"
Ég er að hugsa um að gera þetta að mottói hjá mér en í örlítð breyttri mynd, það ganga nefnilega svo fáir í dag.
,,Hún opnaði munninn eins og slys sem er ákveðið í að segjast."
Ekki eins flott og frumútgáfan en passar betur hér.

Rausnarskapur sjúkraliðans
Sjúkraliðinn lofaði mér í einhverju augnabliksbrjálæði að spyrja mig út úr námsefninu. Er að velta því fyrir mér hvernig ég eigi að láta hana standa við það.
Er svo sem ekki að skilja hvernig hún ætlar að finna tíma til þess en ég er klár á sunnudaginn og á mánudaginn. Skora á þig að standa við þetta.
Annars byggist námið mest á útreikningum!

Gömul ljóðabók
Rakst á gamla ljóðabók í hillinni fyrir aftan mig.
Skrifborðið er svo vel staðsett í stofunni að ég þarf bara að snúa stólnum í hálfhring til að ná í bókahillurnarer ekki frá því að blaðrið hérna hafi borið þess merki undanfarið.
Bað til að ná úr sér seteymslunum er bráðnauðsynlegur hlutur og í bað er gott að fara með bók. Fer yfirleitt í sturt og hef ekki náð neinni tækni við að lesa þar er að vísu eftir að prófa regnhlíf en það mælir ýmislegt á móti því til dæmis finnst mér ekki gott að lesa standandi en nú var alvöru afslöppunarbað og það þýðir bók að lesa.
Eftir nokkurt rót í bókahillunni við að leita að bók sem virðist hafa gufað upp nýlega gafst ég upp og tók eina sem ég lét gefa mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum. Hún er ekkert voðalega gömul en ég mátti til með að ýkja svolítið.
Ég lét gefa mér þessa bók eftir að hafa lesið eitt ljóðið úr henni í blöðunum. Sumum fanst bókin dýr, ætli blaðsíðan hafi ekki kostað um 30 kr. Mér fannst hún of stutt þá, finnst það ekki lengur. Efnið í henni er ekki fyrir langtímalestur þó það sé gott.
Enginn það svæfir
Ljósrauðu
pillurnar
í litlu boxunum
gleyp og gleypa
frysta óttan
en barnið grætur
við fótskör hjartans
grætur og grætur
og enginn það svæfir.
Í Vísnabókinn minni er vögguvísa og eitt erindið í henni er eitthvað á þessa leið:
-------
Sofa urtu börn
á útskerjum
veltur sjór yfir
og enginn þau svæfir.

24. september 2004
Heima að læra ???
Á allavega að vera heima að læra. Verð að fara að byrja á því. Búin að lesa Moggann, búin að lesa Fréttablaðið, hleypa kettinum inn og öðrum út, ætlaði að tala við mömmu í svona hálftíma en hún var á leiðinni út úr dyrunum og mátti ekki vera að því að lofa mér að láta sig tefja mig.
Komin með heddsettið og músíkina á en vantar einbeitingu. Held ég sé með athyglisbrest!
Notaði gærkveldið til að setja inn teljara, annan teljara og eitthvað drasl á síðuna mína svo ekki get ég slórað meira við það í bili.
Finn sem sagt engar afsakanir svo það er best að byrja.
,, Ég vakana oftast þreyttur, varla með sjálfum mér,
en ég veit að til er annað líf en það sem ég vaki hér."

23. september 2004
Púff hvað tíminn líður.
Klukkan að verða hálf níu og ég fyrst að byrja að vinna núna. Nú er ég hætt að læra og vinn bara með námsefnið. Er að hugsa um að fá mér stimpilklukku og fá ekki að standa upp nema á matar og kaffi tímum, alvöru vinna. Nei auðvitað nenni ég þvi ekki en er nú samt í fríi framm yfir próf svo ég ætti að geta lært eina átta tíma á dag. Best að skrifa niður hvenær er byrjað og hvenær er hætt.
Gleymdi að láta grænmetisdílerinn fá pöntunarlistann áðan. Sjúkraðliðinn verðu þá bara grænmetislaus fram yfir helgina.
Og speki dagsins.
Falla lauf
fjúka blöð
af feysknum trjám
Skrælnar börkur
skjálfa greinar
í haustvindum
Kvíði sár
um kalda nótt
nakins trés
nístir hjarta
slegið harmi
í hretveðrum
Drúpir þögn
dökkna ský
um dimman skóg
fara veður-
fara stormar
og frostnætur
Að haustnóttum
Sigr. Einars.

22. september 2004
,,Það var eitt kvöld"
Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálvegis barið,
ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið,
ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það farið.
Sagði Jón Helgason hérna um árið.
En Hafrún segir takk fyrir mig GVÓ. Létti af mér þungu fargi í kvöld og ef ég stíg á vigtina í fyrramálið er ég viss um að það sést á henni.
Er búin að komast að þvi að vinir eru til þess gerðir að misnota þá. Geri það líka óspart!
En svona er að eiga fáa vini og vanda valið, þeir taka af manni bágtið stundum.
Annars er heilsan að lagast hægt og bítandi, vonandi. Eftir þvi sem lengra líður frá maraþon skólasetunni rétti ég úr kútnum. Síðasti dagurinn í ,,allan daginn" vinnunni á morgun og ég er ákveðin í að taka frí á föstudag. Held meira að segja að ég sé búin að sanna það fyrir sjálfri mér að ég geti lært hérna heima. Tókst að leggja undir mig eldhúsið í kvöld við það. Er samt að velta mér upp úr helginni. Á ég að vera eða ekki vera hérna eða fara í vinnuna með námsefnið og breiða úr mér þar. Ótímabærar vangaveltur en prófaði reyndar að sitja eftir í vinnunni í dag og draga bara skólabækur upp á skrifborð þegar ég var búin að stimpla mig út. Það kom í ljós að það þurfti að tala við mig um vinnutengd málefni af þvi ég sat þarna og auðvitað svara ég í símann úr þvi ég sit við hann. Hélt kannski að mér hentaði að sitja í vinnuumhverfinu og láta eins og námið væri bara vinnan og jú að sumu leyti virkar það.
----------------------------------------------------------
Einu sinni ætlaði ég að læra Áfanga. Það gengur hægt, kann samt tvö erindi
Rifja þetta upp þegar ég keyri ,,heim"
Vötnin byltast að Brunasandi,
bólgnar þar kvikan gljúp;
landið ber sér á breiðum herðum
bjartan og svalan hjúp;
jötuninn stendur með járnstaf í hendi
jafnan við Lómagnúp,
kallar hann mig, og kallar hann þig...
kuldaleg rödd og djúp.
Bætti svo öðru erindi við í vor eftir að við röltum í rigningu og roki um Snæfellsnesið. Rok og rigning í fjöruferðum er frábært. Var ég kannski einhverntíma búin að minnast á það?
Nú er í Dritvík daufleg vist,
drungalegt nesið kalda;
Sjást ekki lengur seglin hvít
sjóndeildarhringinn tjalda;
Tröllakirkjunnar tíða söng
tóna þau Hlér og Alda;
Fullsterk mun þungt að færa á stall,
fáir sem honum valda.
Þarf þá að bæta einu við í vetur, kannski bara því um Kjöl. Ég er jú búin að koma þar líka.
Maður verður að fá eitthvað mótvægi við reikningsskilin.

Skólaveiki
Hvernig er hægt að verða veikur af því að vera í skóla. Segi mér sá sem það veit.
Undanfarna daga hefur skólaveikin mín sótt í sig veðrið og heilsan hrapar lengra og lengra niður með hverjum deginum. Heilsulínuritið er að verða eins og gengisskráningin hjá frægu íslensku fyrirtæki fyrir nokkrum árum. Langsótt samlíking en maður hugsar ekki í öðru en kennitölum og sjóðsstreymi þessa dagana. En hvað um það, vöðvabólgan hríðversnar, augun sjást ekki á morgnana fyrir bjúg og stressið magnast upp eftir því sem nær líður prófum og tímanýtingin lagast ekkert.
Ég þarf að LÆRA. Þarf að hafa uppflettialfræðiorðabók sem svarar öllum mínum spurningum á augabragði. Ekki lög og reglugerðir, handbækur og glærur sem ég þarf að fletta fram og til bara í til að finna svörin sem mig vantar.
Svo vantar mig tíma til að fara yfir og finna villu í síðasta ársverkefninu mínu.
Ég á bágt, mörg kíló af því. Tonn! Hverjum á ég að gefa af því. Á maður ekki alltaf að deila með öðrum.
Verst hvað mér gengur vel að telja mér trú um að ég lagist alveg helling við að fara yfir í búð og kaupa mér bland í poka og 1 ltr. af Orku.

20. september 2004
Lélegur sjálfsþurftarbúskapur
Þoli ekki að finna ekki verkfæri til að framkvæma það sem þarf að gera. Uppþvottavélinni á bænum var troðið á sinn stað og átti að tengja. Gekk ágætlega þar til kom að því að tengja vatnið inn á vélina. 3/4" ró gengur ekki upp á 1" krana það bara er nokkuð augljós mál. Eftir dúk og disk og nauðungar handuppþvott gafst ég upp og ákvað að redda málum úr því enginn annar gerði það.
Heimsótti píparann sem á hauga af fittings og krönum og tengikrönum og tengiróm og minnkunum og stækkunum í hillunum hjá sér og fór fyrir rest heim með formúffu sem búið var að pakka á einvherju sem myndi örugglega passa við slönguna að uppþvottavélinni. Sem það gerði, ekki við öðru að búast þegar ég og píparinn leggjum okkur fram við að leysa málin. Vandamálið er bara frágangur fyrri ,,pípara". Minnkunin okkar er of löng í skápinn, hún rekst í rörin og það vandamál væri hægt að leysa með því að snúa krananum fyrir uppþvottavélina en til þess vantar VERKFÆRI. Það er ekki einu sinni til skiptilykill á þessum bæ.
Borvélin sem ég fékk lánaða og átti að skrúfa upp festingar fyrir gardínunum í kjallaranum gerði ekkert af sjálfsdáðum svo ég gafst upp á endanum og ætlaði að hjálpa henni við það. Hún reyndist nota aðra gerð af borum en eru til á þessum bæ og það fylgdi henni ekki 5 mm. steinbor.
Mig langar í borvél í jólagjöf. Almennilega borvél með höggi. Ekki hobbýborvél sem er ekki hægt að nota nema til að skrúfa saman módel. Skiptilykil og borasett, skrúfbúta væri fínt að fá í jólakortunum.
Það átti að læra helling í kvöld. Það var svo miklu minna en til stóð. Lærði samt hvernig formúffa lítur út. Kannski ég verði bara pípari þegar ég verð stór.

18. september 2004
Reglurnar hans Bills
Þessar voru í fréttablaðinu i morgun og reyndar einhverstaðar að þvælast um í pósti áður.
Stalst til að kópera þær af netinu af því ég nennti ekki að pikka þær inn.
Er að spá í að prenta einhverjar út og hengja þær upp niðri í skóla hjá mér. Finnst þær alveg geta átt við þó samnemendur mínir séu löngu komnir yfir unglingsárin.
Jæja, kannski ekki nema sú fyrsta í aðeins breyttri útgáfu. Ummm og kannski önnur en ég nenni ekki að aðlaga fleiri í kvöld.
1a) Lífið er ekki réttlátt, það ættir þú að vera búin/n að uppgötva. Prófið verður það ekki heldur.
Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.
Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til aðþú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.
2a) Öllum er sama hvernig þú hefur haft hlutina, ef reiknigsskilareglurnar segja að þetta eigi að vera svona þá á þetta að vera svona.
Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú hefur unnið fyrir því.
Regla 4: Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu þangað til að þú færð yfirmann.
4a) Ef þér finnst kennarinn strangur og erfiður hefurðu haft lélegan endurskoðanda.
Regla 5: Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum. Þau kölluðu það TÆKIFÆRI.
Regla 6: Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo hættu að væla og lærðu af mistökunum.
6a) Ef þú klúðrar er það ekki kennaranum að kenna, farðu og lærðu betur heima.
Regla 7: Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærisleg. Svo áður en þú og vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.
Regla 8: Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama prófið aftur og aftur.Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.
Regla 9: Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma
Regla 10: Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna
Regla 11: Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra.
Bill Gates, nörd í skóla.

17. september 2004
Somewhere over the rainbow ......
... blue birds.. og svo framvegis. Sungið af Isreal Kamakawiwo´ole. Þekki engan sem treystir sér til að bera það fram enda er það aukaatriði. Mér finnst þetta yndisleg útsetning og söngur á þessu lagi og texta og er búin að spila það í vinnunni í allan dag og er svo með það á heilanum í kvöld. Það er náttúrulega hægt að fá ýmislegt verra á heilan en þetta lag t.d. kennitölur og greiningu ársreikninga og svo framvegis. Amk er skárra að hafa söng Isreal Kamakawiwo´ole á heilanum svona meðan maður sofnar.
Var ég búin að minnast á hvað ég er ánægð með ólöglega tónlistarmiðlun eins og DCC og Kazaa. Ég meina, ég hefði misst af þessu lagi í þessari útgáfu ef allt væri löglegt og fínt í netbransanum. Hefði sennilega seint farið að kaupa mér plötu frá Hawai en væri alveg til í að gera það núna ef það eru fleiri lög á plötunum hans jafn áheyrileg og þetta.

16. september 2004
Skóladagur
Þessi dagur í skólanum búinn og ég búin að fá nóg. Eiginlega bara alveg nóg.
Er að vísu miklu fróðari um sjóðsstreymi en ég var áður og ýmislegt fleira. Veit tildæmis að þó fólk falli á eins og einu prófi eða nái ekki meðaleinkunninni sem þarf til að ná, er hægt að kaupa staka áfanga á næsta ári og borga bara helling en fólk er þá allavega ekki búið að henda þessum hundraðþúsundköllum sínum alveg í vaskinn.
Veit ekki hvort einhverjir eru að taka upp núna en búin að heyra umræður um að sjá hvernig helgin gengur og hætta þá áður en eindagi á greiðsluseðlinum rennur upp. Svo fór fólk að átta sig á þvi að þá verður seðillinn bara sendur í innheimtufyrrtæki og engin miskun með það. Ef maður byrjar að nota vöruna er ekki hægt að hætta við í miðju kafi. Ekki með þessa vöru. Það þarf nú ekkert diplómanám til að átta sig á því.
Langur morgundagur frammundan og óhætt að fara að safna kröftum fyrir hann.
Heilsan er annars að lagast. Kannski ég hafi bara verði með óútskýrða umgangspest en ekki elli og gigt.
;)

Mismæli á prenti
Mér urðu á all svakaleg mismæli einhverstaðar í öllu þessu blogg bulli mínu.
Ég kallaði töluvunarfræðinginn minn kerfisfræðing og það gerir maður náttúrlega ekki. Þetta er eins og að kalla hjúkrunarfræðing sjúkraliða og sjúkraliðann ræstitækni.
Þetta leiðréttist hér með. Tölvunarfræðingurinn er tölvunarfræðingur og ekkert annað.
Var að skoða dóttir fyrrverandi tilvonandi tengdasonar á Barnalandi og verð að viðurkenna að það er svooolítið skrítið að hann skuli eiga þetta myndarlega barn. Ekki það að hann sé svo ómyndarlegur, finnst bara hann ennþá vera 17. Reyndar held ég að honum hafi alltaf fundist hann vera á aldrinum 15-17 sjálfum en kannski breytist það þegar dóttirin fer að ala hann upp.

15. september 2004
Leiðréttur misskilningur
Það er misskilningur að ég sé í þessu námi til að standa mig betur í vinnunni. En förum ekki nánar út í þá sálma opinberlega. Svo var samkomulag fyrir rúmum fimm árum að ég yrði allan daginn þegar þau væru í fríi hjónin. Núna var ég spurð hvort ég ,,gæti, amk. eitthvað" og ég sagði já. Það kemur sér vel að eiga frídaga inni.
OG
að lokum: önnur lopapeysuermin búin hin rúmlega hálfnuð og bara farin ein plata af lopa. Sé framm á að þessar 3 plötur sem ég keypti fari bara nokkuð langt í peysuna.

14. september 2004
Geðheilsan í dag
Jæja búin að fara og reyna að lappa upp á geðheilsuna. Tókst að halda í eitthvað af glórunni og vonandi kemur það mér til að sofa í nótt. Er annars illa haldin af stressi, svo illa að það er að fara með líkamlega heilsu líka.
Merkilegt annars hvað maður getur orðið slæmur í fótunum af þvi að sitja í stól allan daginn. Og bakinu líka.
Ég hélt einusinni fyrir langa löngu að það væri allra meina bót að komast í vinnu þar sem ég þyrfti ekki að standa upp á endan í átta tíma. Var á þeim tíma svo slæm í fótunum að ég var í vandræðum með að standa út vaktina. Er að komast að því að ég þarf að finna einhvern gullin meðalveg og held að hann sé vandfundinn.
Annars á ég eftir að gera þetta og gera hitt og læra þetta og læra hitt og og og svei því. Verð að vinna allan daginn í eh. vinnunni (eh lesist eftir hádegi en ekki efnahags) frá fimmtudegi til fimmtudags. Það væri svo sem í góðu lagi ef hinir vinnuveitendurnir væru ekki að fara fram á að það væri eitthvað gert þar líka. Svo ég var að til sjö í dag til að sýna lit.
Ætla að taka aukavinnuna út í fríi prófdagana svo þessi tímabundna heilsdagsvinna kemur sér ágættlega að því leyti og ef ég sit og anda að mér lyktinni af skólabókunum meðan ég pikka á lyklaborðið ætli ég kunni þá ekki námsefnið.
Annars er varla að ég valdi lyklaborðið orðið, veit ekki hvort þetta hefur eitthvað með vöðvabólgu að gera eða stressið eða hvorutveggja, annað er sjálfsagt afleiðing af hinu en fékk þá hugljómun í dag að ég þyrfti að fara að drífa mig í leikfimtímana hjá Birgittu í Baðhúsinu á laugardagsmorgna, hún er með svo svakalega góðar teygjur fyrir vöðvabólgusjúklinga en mundi þá eftir þvi að ég er í skóla á laugardag svo þar fór það. Nú þá er náttúrulega gott að fara í yoga og ná einhverri hugarró og andlegu jafnvægi (eða þannig) en æjá, yogað er á fimmtudagskvöld og ég í skóla.
Held að body pump eða einhvert hörkupúl í ræktinni henti mér ekki eins og er svo það er spurning um að líma sig saman fram yfir helgina og kannski kanna sundlaugina.
Ella LOFAÐI heilsugöngu á sunnudag. Kraftgöngu!
Og talandi um Ellu. Hún tók upp á þvi að sinna sjálfri sér án þess að ég skammaði hana til þess.
Var satt að segja búin að steingleyma að hún væri til (nei, að ég þyrfti að ala hana upp) og þá tekur hún upp á þvi að taka ábyrgð á sér sjálf.
Er alltaf að sjá að ég er EKKI ómissandi en er voðafljót að komast í afneitun aftur.
Ég viðurkenni vanmátt minn og ætla að reyna að stjórna eigin lífi.
:-p

13. september 2004
Þurkur
Það er fínn þurkur í dag, amk. undir eldhúsinnréttingunni á þessum bæ. Hárblásari kerfisfræðingsins á hálfum styrk, blæs upp pollinum eftir uppþvottavélina sálugu. Vona að hann bærði ekki úr sér áður en ég næ að þurka þetta. Það mátti ekki byrja á þessu í gær af því sumir þola ekki að hlusta á hárblásara í gangi. Kommon.
Dreymdi í nótt að ég var orðin amma. Og náttúrlega að alfallegasta barni sem nokkurntíma hefur fæðst í draumi. Stelpu. Fæddist heima, þ.e. fyrir austan heima.
Er að velta fyrir mér merkingunni.
Býði ég í ofvæni eftir barnabörnunum? Það er þá MJÖG djúpt í undirmeðvitundinni!
Er þetta merki um eitthvað í farveginum hjá þeim nöfnum eða tengt þeim.
Eða er þetta bara af því fyrrverandi tilvonandi tengdasonurinn var að verða pabbi um daginn. Eignaðist bráðmyndarlega stelpu sem er víst lík pabbanum í sér þar sem hún hvorki vildi snúa rétt né tekur því þeygjandi og hljóðalaust ef henni er misboðið.

12. september 2004
Lítil þúfa rústar þungu hlassi.
Var að byggja mér stórt hlass í dag. Í óðaönn í vinnunni að klára það sem ég ætlaði að klára fyrir kvöldið svo ég gæti lært í kvöl.
Síminn hringdi. ,,Er búið að aftengja uppþvottavélina" Og ég neyddist til að segja nei. Rjúka heim og aftengja vélina og draga hana út á gólf, sem var ekki neitt smá verk þar sem frágangurinn á innréttingunni kringum uppþvottavélina er meir en lítið öfugsnúinn. Vélinni hent út í bíl eftir nokkra bið og farið til að ná í aðra. Ekki verðum við uppþvottavélalaus svo það var eins gott að ég tróð gömlu vélinni minni í geymslu og þrjóskaðist við að fjarlægja hana þaðan þrátt fyrir óbeinar ábendingar þar að lútandi.
Gamla vélin mín semsagt komin heim á gólf en fer ekki inn í innréttingu fyrr en bleytan eftir þá sem var fyrir er þornuð. Ég ætla ekki að vaska upp. Búin að gera skyldu mína í dag.
Upphaflega hugmyndin hjá mér var að fá bróðir minn til að keyra þvottavélunum á milli í kvöld, soninn til að aftengja þá gömulu og ná henni úr innréttinguni og koma annari fyrir. En þar sem bróðirinn ákvað að drífa í þessu meðan sonurinn var að vinna og dóttirin ekki heima varð ég að henda frá mér því sem ég var að gera og hlaupa heim. Eftir þvottavélastússið kann maður ekki við annað en gefa fólki kaffi fyrir fyrirhöfnina, ekki fær hann neitt annað fyrir þetta og þá er kominn matur og þar sem kennarinn kom með kjúklingabita og færði okkur í kvöldmatinn sat ég náttúrulega yfir kaffi með honum eftir matinn og vinnan... umm hún fór víst ekkert. Verkefnin.... þau fóru víst ekkert heldur.
Þá er það vinna framm eftir kvöldi. Yndislegt. Og ekkert nám.
Guð gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt.
Kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Eins gott að það er hægt að grípa í prjóna þó maður sitji og spjalli við gesti.
Það bjargaði líka heilmiklu að fá þó að borða í kvöld.

Laugardagur til lukku
eða þannig.
Vonandi verður þessi dagur til lukku einhverstaðar. Ekki það aðhann hafi svo sem orðið mér til neinnar ólukku en það hefur lítið þokast með verkefnin og lesefnið í dag. Engin hreyfing á vinnuni sem átti að klára í dag.
Það er þó allra meina bót að það var mikið talað við blómin í morgun, þau klippt og strokin og þrifið í kringum þau. Enda ekki annað hægt, þau og kettirnir eru þær lífverur sem eru mest á heimilinu og þýðir ekki að bjóða þeim upp á að lifa í kafi á ryki og kattarhári. Þe. blómunum í kattarhári og köttunum í ryki. Ekkert mál með heimilisfólkið, gerir því ekkert til að vaða í gegnum ryk og hára haugana þessa einn til tvo tíma sem það er heima á dag. Nú auðvitað fyrir utan þann tíma sem viðkomandi sofa.
Fyrir utan heimilissnyrtinguna sinnti ég minni eigin hársnyrtingu með því að fara í klippingu. Sinnti svo aðeins mannlegum samskiptum og þörfum mínum og Kerfisfræðingsins fyrir búðaráp var fullnægt að hluta.
Helv. skólaverkefnin liggja svo enn á borðinu óunnin. Mér hefði fundist lágmark að kettirnir leystu þau fyrir mig úr því ég tók til fyrir þá í dag.

10. september 2004
Geisp
Pása í vinnu þangað til í fyrramálið en þarf að kíkja á skólavekefnin. Sofna örugglega ofan í þau nema ég fá sjokk við að líta á blöðin og sofni ekki í marga daga. Horfði aðeins á sjónvarpið eftir að ég kom heim úr vinnunni og prjónaði helling af lopapeysuerminni sem ég byrjaði á í gær. Vildi miklu heldur halda áfram að prjóna en það gefur víst engin réttindi.
Svo upp með námsefnið og húmorinn.
Svo upp með námsefnið og húmorinn.
8. september 2004
Tíminn líður
Bara nítján dagar í próf. Í gær voru þeir heilir tuttugu. Svei hvað tíminn líður og vitneskjan síast ekki inn í minnistöðvarnar hjá mér meðan ég sef. Alveg sama hvort ég sef vel eða illa. En þó ég sé litlu fróðari um reikningsskil en ég var á sunnudagskvöld veit ég að sítróna í kjúklingasúpuna mína er VONT krydd. Borða hana nú samt. Er nefnilega í átaki fyrir sjúkraliðann og nú er bara borðað lífræntræktað grænmeti, kjöt, fiskur og skyr. Aðalllega skyr. Kemur reyndar ekki til af góðu, það er svo stuttur hádegismatartíminn þessa dagana að það er bara tími til að kaupa sér skyrdós og borða svo í felum á bak við tölvuskjáinn í vinnunni. Bætti sviðasultu á hádegismatseðilinn og var hæstánægð með hann, rammíslenskur hádegismatur samanstóð af skyri og sviðasultu. Mjög gott, eignlega miklubetra en kjúklingagrænmetissúpan í kvöldmatnum.
Búin að taka til í herbergnu hjá menntaskólanemanum og námsbækurnar mínar komnar á skrifborðið hans. Er komið samkomulag að ég hef herbergið hans á kvöldin til að læra og á nóttunni ef ég vil en hann kemur stundum heim á daginn og notar það þá sem æfingarherbergi og ég fæ að hlusta á hann æfa sig á gítarinn. Sem betur fer tekur hann oftast magnarann úr sambandi og æfir sig þannig. Og yfirleitt er hann að þessu áður en ég kem heim úr vinnunni. Þannig að samkomulagið á heimilinu er til fyrirmyndar en það ræðst auðvitað af þvi að við erum sjaldnast heima á sama tíma öll þrjú.
Og þá er tími fyrir nám.

7. september 2004
Fór í heilsuhúsið. Skólinn að byrja og ég sá fram á að þurf sárlega á einhverju kraftaverkabætiefni að halda. Stillti mér þolinmóði í biðstöðu og beið eftir afgreiðslu. Þegar að þvi kom sagðist ég vera að hugsa um að kaupa mér gingseng. Afgreiðslustúlkan horfði á mig með einhverjum svip sem ég náði ekki alveg að túlka og sagði svo ,,Fyrir þig" ,,Já" sagði ég sakleysið uppmálað. ,,Varstu að hugsa um eitthvað sérstakt gingseng" spurði hún enn og í þetta skiptið sagði ég ,,Nei" en var nú farin að átta mig á hvað þessi svipbrigði á manneskjunni táknuðu svo ég bætti við ,,Er ekki til eitthvað sem gerir konur ekki manískar og ruglaðar"
Jú það var til og henni virtist létta aðeins þegar það kom í ljós að ég gerði mér grein fyrir verkunum gingsengs á ákveðið kyn og aldur. Svo við ræddum aðeins um gingseng og Síberíugingseng og rautt og hvítt gingseng og í raun væri gingseng ekki rautt eða hvítt en af hverju annað er kallað rautt og hitt hvítt fékk ég nú samt ekki að vita þó það kæmi fram að það væri jafnvel notaði í svefnlyf. Hefur nefnilega svo góð áhrif á heilastarfsemina að heilinn sefur betur sko.
Eftir að ákvörðun um gingsengkaupin voru tekin mundi ég eftir þvi að mér er víst ráðlegast að taka kalk. Afgreiðslustúlkan teygið sig í hilluna og dró fram glas með kalki og magnesíum. Mjög hentugt að taka það saman og benti mér svo sérstaklega á að í þessu væri líka boron sem væri efni MJÖG gott fyrir heilann.
Ég þurfti ekki frekar vitnanna við, ég virðist bera það utan á mér að ég þurfi að styrkja heilastarfsemina svo ég þurkaði slefuna úr munnvikjunum, kippti pilsinu upp úr sokkabuxunum og keypti kalk með boron auk gingsengsins.

3. september 2004
Nokkrar staðreyndir
Lærði nokkrar staðreyndir í gær.
A) Þótt nýju gallabuxurnar séu góðar þrengja þær að blóðrásinni niður í fætur þegar ég sit mikið.
B) Ég sit mikið þessa dagana. Ca. 10 tíma á dag.
C) Það er betra að slökkva á símanum þegar farið er að sofa.
D) Að fara að sofa þreyttur og vakna við símann 10 mín seinna veldur geðvonsku sem yrði ekki ef maður væri ekki alveg svona þreyttur.
E) Ef ég er rétt að sofna aftur eftir að síminn vakti mig og ég að jafna mig af pirringunm við það þegar kötturinn vekur mig, verð ég MJÖG pirruð.
F) Ef ég sofna geðvond dreymir mig eitthvað sem ég get geðvonskast yfir í draumi. Og vakna oft á nóttinni.
G) Að vakna geðvondur og þreyttur á morgnana er ekki byrjun á góðum degi.
H) Það er þá best að hætta við að fara í vinnuna, fara heim og leggja sig, vakna í betra skapi og aðeins úthvíldari.
I) Það geta verið kostir við það að hafa minn vinnutíma. Ég get hætt við að mæta á morgnana.
J) Um næstu helgi verð ég búin að vinna og skólast án frídags 16 daga samfleitt. Þökk sé veikindadögunum að það verða ekki 20 dagar og þar sem ég þarf að öllum líkindum að vinna næstu helgi líka og svo skóli og nám allar helgar til 22. nóv. er ég EKKI með samviskubit yfir að vera heima fyrir hádegi í dag.
K) Þarf að sætta mig við líkamlegt ástand og taka tillit til þess ef ég vil ekki enda með því að vera sí étandi bólgueyðandi verkjalyf og kannski gigtarlyf.
L) OG hana nú.

1. september 2004
Fyrsti skóladagurinn búinn
Jæja skólinn byrjaður og stressið ekkert að lagast. Og þó. Náði ákveðnu æðruleysi í dag. Það sem ekki klárast fyrir helgina bara klárast ekki og ekki orð um það meira.
Skólinn byrjaður en námið ekki, fyrsti dagurinn fór nefnilega í að kenna okkur að læra. ;) Ekki veitir víst af. Er búin að sjá að ég hefði átt að fara á svona fyrirlestur eða námskeið fyrir löngu og nýta mér það á álagspunktum í vinnunni.
Stundskráin sagði, kennsla frá þrjú til sjö en það var misritun og ég var laus fyrir sex. Sem þýddi að ég græddi klukkutíma sem var hægt að nota til að fara með dóttirinni í Bónus og gera mánaðamótainnkaupin eins og hún var að tala um. Dreif mig heim og til að nýta tímann vel henti ég karföflunum í pott og grænmetinu í ofninn svo við þyrftum ekki að gera annað en sjóða fiskinn þegar við kæmum heim. Millifærði verslunarpeninginn, greip tossalistann og hljóp út. Var búin að vera í Bónus í góðann háftíma þegar einhver hringdi í mig og talið barst að kvöldmatnum. Mundi þá að ég lækkaði ekki undir kartöflunum. MUNDI það þó. Rauk heim og lét afkvæmið um restina af verslunarleiðangrinum.
Þurfti að sjóða aðrar kartöflur, þau vilja ekki svona vel grillaðar kartöflur. Skil það ekki.
Á fyrirlestrinum í dag var talað um aðferðir við að leggja hluti á minnið. Gerðum æfingu. Talin upp 20 orð og við áttum að finna okkar aðferð við að ,,muna”. Náði 18 af 20 og þóttist góð. Meira að segja í réttri röð!
Er alveg viss um að þessi minnisæfing bjargaði okkur frá eldsvoða í dag. Eða þannig. Á maður ekki að trúa á mátt námsins.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)