30. júlí 2004

Í netsambandi í rigningu og þoku

Komin heim og það er ausandi rigning og þoka. Bæjarlækurinn orðinn að stórfljóti og endurnar una glaðar og kátar við sitt í girðingu og tjörn. Nokkrir steggir eru í útlegð því hjá aliöndum gengur ekki að hafa einn stegg á hverja önd svo þeim var hent út úr girðingunni öllum nema einum. Hef verið að horfa á þá undanfarið þessa sem eiga að geta valsað um fríir og frjálsir með allan heiminn sem leikvöll amk. allt túnið og fjöruna líka en þeir kunna ekki að meta frjálsræðið og vappa hring eftir hring kringum girðinguna um andapollinn, þar sem kvenkyns endurnar eru. Hring eftir hring. Rífa kjaft annað slagið og slást.  Vekur hjá manni heimspekilegar hugleiðingar um mannlegt og andlegt eðli. ´
 
Komst að því í dag að tölvutengingin virkar alveg ágætlega hérna. Að vísu kann ég varla lengur að nota gamaldags módemtengingu en læt mig hafa það. Er orðin ansi netháð og háð því að sjá hvað er að gerast í bloggheiminum. Nenni að  vísu ekki að lesa margar síður þar sem ég þarf að bíða í nokkrar mín. eftir hverri. En þetta er samt lúxus sem ég á erfitt með að vera án.
 
Kom austur á þriðjudag í sumri og sólskini, kom vélorfi í gang og fór að slá. Sló líka daginn eftir þangað til orfið var orðið bensínlaust og kominn tími til að raka saman. Úr þvi að maður kemst ekki í heyskap lengur í sveitum landsins verð ég að útbúa mér svona gamaldags hrífuheyskap, rúllubindivélar hafa eyðilagt stemminguna (og puðið) af alvöruheyskapnum. Rakaði saman og setti mitt hey upp í sátur eins og í gamla daga. Veitti ekki af því það er búin að vera húðarrigning í allan dag. Ekki spáð þurki heldur á morgun svo ég næ að jafna mig af strengjunum eftir sláttinn og hangi inni og geyspa ef ekki léttir til. Er reyndar með handavinnu svo það ætti að minnka aðeins garnstaflinn minn ef ekki styttir upp fljótlega.
Annars er spáð ágætis veðri á Norðfirði og ég er alvarlega að hugsa um að kíkja á Neistaflug og ættingjana þar.


 

27. júlí 2004

Nærri því farin

Losksins byrjað sumarfrí og aldrei verið meira að gera. Fékk ekki fararleyfi nema skúra og ryksuga út úr dyrum. Úff púff.
Bíllinn átti að vera kominn í laga á sunnudag en því var frestað fram á mánudag og á mánudag kom í ljós að bíllinn minn hafið verið rangt sjúkdómsgreindur og varahlutir fást ekki fyrr en á þriðjudag og nú er ég búin að fá nóg og fæ lánaða rauða eðal Toyotu og fæ að læðast á henni austur á land. Tek einn farþega og sagði honum að mæta klukkan sjö i fyrramálið og klukkan orðin eitt og ég ekki farin að sofa en búin að pakka. Er hrædd um að einhver verði sifjaður á morgun.

 

22. júlí 2004

Æ,æ betra að spara yfirlýsingarnar

Mér hefndist fyrir stórorða yfirlýsingu í dag. Ég gat náttúrulega ekki neitt neinn til að henda frá sér vel borgaðri aukaivnnu til að standa við það að fara í umbeðinn göngutúr með mér. Og ekki nenntum við mæðgur einar úr því að Bára hætti við.
Einn vinnudagur eftir. Svo er það  SUMARFRÍ!  Mér er sko alveg sama þó að það verði ekki búið að gera við sjálfskiptinguna á bílnum mínum fyrir helgi. Annað hvort fer ég á honum þriggjagíra og keyri á 50 austur eða verð bara í sumarfríi heima hjá mér. Sumarfrí er sko sumarfrí hvar sem maður er. Hægt að lesa og liggja í leti og leika sér.
 
Er svo að reyna að koma myndunum af Ströndunum inn á netið en það er ekki alveg að ganga. Virkar allt eitthvað voða ruglingslegt.
Prófa í sumarfríinu. Svo átti Ella reyndar að koma og hjálpa mér að rifja upp örnefni. En...

Ekkert bull

Sko það er ekkert mál að taka tíma frá vinnu fyrir vini sína, en að koma ekki í verk því sem maður ætlar sér fyrir bulli í samstarfsfólki sem þarf að vera að hlaða niður spy forritum og popp upp forritum og ég veit ekki hverju á tölvurnar í vinnunni, ÞAÐ er óþolandi.
Kom engu í verk í morgun öðru en hlaupa úr einni tölvu í aðra til að reyna að hreinsa út af þeim draslið. Og svo hugsa þessir rollingar ekki út í það að það er hægt að sjá nákvæmlega hvaða ruslasíður þeir voru að heimsækja. SVEI
Og ef Elín Lín eða hvað hún heitir í dag heldur að hún komist upp með að panta mig í fjallgöngu og hætta svo við er það mesti misskilningur. Hún skal sko fá að labba og ég ætla að færa henni vatnsvörn í skóna hennar svo það verði örugglega borið í þá í sumar.
Bauð dótturinni með í fjallgönguna og á einhvern hól verður labbað. Hún veit reyndar ekki að í reyndinni verður þetta hólaganga en ekki fjallganga,
  

21. júlí 2004

Tveir dagar eftir í eftirhádegisvinnunni.

Bara tveir dagar eftir í sumarfrí e.h.
Er ekki alveg farin að sjá að ég nái að klára upp annarstaðar fyrir helgina en stefni að því. Dreymir um að vera laus við allt dótið á föstudagskvöld. Spurning um að vinna þá það kvöld þangað til allt er frá.
Dagurinn í dag er búinn að vera lengi að líða og hvernig  í ósköpunum verða þá næstu tveir!
En stefnan tekinn á pallinn hjá Gillu og Friðjóni í saltfisk á eftir og það kemur ekki til greina að fara að fíflast í að vinna eitthvað eftir það.

19. júlí 2004

Frátekin kvöld fyrir vini!

Veit ekki alveg hvort vinkonur mínar voru að lesa bloggið mitt og tóku það til sín. Amk. bauð ein mér í mat og önnur bað um fjallgöngu! Ég bara tók þær á orðinu og ákvað að eyða tíma með vinunum áður en ég fer úr bænum. Fer í matinn á miðvikudag og á fjallið á fimmtudag. Í kvöld sat ég við yfirlestur á efni sem var verði að þýða og annaðkvöld ætla ég á fund og þar með er farið að fækka lausum kvöldum í vikunni. Það verður að hafa það og ef mér tekst ekki að hreinsa upp af mínum þremur skrifborðum og hnýta alla lausa enda í vinnunum þá verð ég bara að fresta för um einn eða tvo daga.
Hvað gerir það til og hvað stoðar það manninn að klára bunkana af skrifborðunum ef hann glatar því að eiga stund með vinum sínum.  ;-)
Svo borðum saman, göngum á fjöll og njótum augnabliksins.
 
Vonandi er langt í land með að ég taki undir með Bólu-Hjálmari
 
 
Vinir mínir fara fjöld,
feigðin þessa heimtar köld;
ég kem eftir, kannski í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld

18. júlí 2004

Tími fyrir vini?

Hringdi í gamla vinkonu í kvöld. Hitti hana síðast við jarðaför. Þá höfðum við ekki heyrst í rúma fimm mánuði. Hugsaði til hennar oft í vetur og vor, vissi að ástandið var ekki upp á það allra besta hjá hennar fólki en hafði ekki samband. Í og með vegna þess að ég vissi að álagið á þeim hjónunum væri mikið. Meira þó af því að ég gaf mér ekki þann tíma sem þurfti til að kíkja í heimsókn eða taka upp símann og hringja. Og loksins þegar ég hringdi í hana í vor var það til að votta þeim samúð mína.
Hét því í vor  að láta ekki marga mánuði líða án þess að heyra í þessum vinum mínum  af því að ég veit hvað tómleikinn og sorgin verða yfirþyrmandi þegar allt er afstaðið,  gestirnir farnir sinn veg og hversdagsleikinn á að fara að hafa sinn gang. Þess vegna ætla ég að reyna að standa við heitið. Geri mitt besta. Í þeirra tilviki fara síðustu gestir ekki fyrr en í ágúst en ég hringdi samt í kvöld rétt svona til að láta vita af því að ég hugsaði til þeirra.  
En það að heyra í fólki sem þarf að þola hörmungar sem ekki sér fyrir endann á rífur mann líka upp úr værðarmókinu og maður hleypir hluta af þeirra sársauka inn á sig. Þess vegna er oft svo miklu auðveldara að humma það fram af  sér að hringja. Afsaka sig með tímaleysi eða einhverju öðru. 

Ég þykist vera að læra það með aldrinum að ganga ekki að fólkinu mínu og vinum mínum vísum þegar að því kemur að ég hafi tíma.
Eitthvað er ég búin að læra. Fer með mömmu minni í utanlandsferðir af því að hún getur ekki farið ein og af því að mig langar til að eyða tíma með henni. Er að reyna að koma henni af stað í ferðalag með mér innanlands núna og ætla að eyða hluta af sumarfríinu hjá þeim því hún á jú líka mann en honum næ ég ekki í ferðalög. 
Gengur ekki eins vel að taka mér tíma til að sinna öðrum samskiptum við vini og ættingja, mér hættir hugsa ,,æi ég hringi seinna, annað kvöld eða um helgina" og hugsa það sama næsta kvöld ef ég er þá ekki búin að steingleyma öllum góðum ásetningi og því að ég þekki einhverstaðar gott  fólk sem ég vil halda sambandi við.
 


When I think of angel 
  

When I think of angel - I think of you
With your flaming red hair – and the things that you do
I heard you had left, no it could´nt be true
When I think of angel - I think of you 
 
Good speed to you angel wherever you go
Althought you have left - I want you to know
Our heart´s full of sorrow, I won´t let it show
I´ll see you again when it´s my time to go 
  
When I think of angel - I think of you
With your flaming red hair – and the things that you do
I heard you had left, no it could´nt be true
When I think of angel - I think of you

Kristján Kristjánsson(kk)

Brosmild stelpa með ljósrautt sítt hár. Ég hlustaði á þetta í jarðaförinni hennar. Minnist hennar og þeirra sem misstu hana þegar ég heyri þetta lag.

 
 
  

 




15. júlí 2004

Bíllinn minn farinn ...

Góða skapið rokið út í veður og vind. (í logninu) Passatinn minn farinn frá mér fyrir fullt og allt. Fékk í staðinn blikkdós frá Kóreu, lítur að vísu þokkalega út en er enginn passat. Engar centrallæsingar (samlæsingar.  Tölum íslensku!) og það er eins og lykillinn passi ekki í skrána á bílstjóahurðinni. Maður snýr framm og til baka og heyrir járn í járn þegar þarf að opna. Farþegamegin er allt fast, ekki að reyna að opna þeim megin. Svo ég sit í sorgum og finnst lítil huggun í því í augnablikinu að ég á ökutækið skuldlaust.  :-(
En ég hef þó allavega tölvuaðgang ennþá og get fiktað í útlitinu á síðunni minni. Gleymi kannnski sorgum mínum á meðan.
Fann hvar og hvernig átti að setja inn linka. Fikta í litum og letri og veit ekkert hvað ég er að gera. Eyðilegg eitthvað og það lagast þegar ég er að reyna að setja inn eitthvað sem kemur því ekkert við.
Best að halda því bara áfram. Kannski hverfur allt hver veit.

 

41

   Vatn úr fjallalind
í skugga hárrar furu
   Ber ég mér að vör
í lófa mínum.-Ekkert
jafnast á við sumarið!

 

 



 

 


  
 



14. júlí 2004

Það er að styttast í sumarfrí

Það er að styttast í sumarfrí og ég held að ég sér að flippa út af spenningi. Verst að ég á bara þrjár vikur eftir af fríinu. En hugsið ykkur; heilar þrjár vikur út úr bænum, laus við malbikið, skrifborði, umferðarljósin og og og eitthvað var það fleira, jú útsölurnar. ;-) Ekki tölvuna, ég ætla að taka með mér labtop til að geta reddað málum um mánaðamótin fyrir vinnurnar.
Kann enga aðra skýringu á þvi hvað allt er gaman og skemmtilegt þessa dagana og hvað mig langar til að koma miklu í verk en að það er að styttast í frí. Nema ég sé í uppsveiflu í geðhvörfum! En er svo sem sama hvaðan gott kemur.
Er steinhætt að láta uppeldisaðferðir dóttirinnar trufla mig en hún er í sumarfríi þessa dagana og fann þá köllun að kenna mömmu sinni að ganga um. Úps.
Var jafnvel að spá í að forða mér bara í annað húsnæði á timabili og henni finnst það alveg rökrétt því að þegar bíllinn minn sé orðinn svo fullur af drasli að ég er í vandræðum með að komast inn í hann selji ég hann bara og fái annan hreinann með engu drasli. Því ekki að flytja milli húsa líka og skilja draslið eftir. Þetta eru nú verulegar ýkjur hjá henni því þegar ég flutti hingað flutti ég helling af drasli með mér. ALLTOF MIKIÐ.
Annars gegur sambúð okkar mæðgnanna yfirleitt þokkalega fyrir sig, höfum ekkert slegist og ekki mikið rifist en það er nú kannski vegna þess að við erum sjaldan heima á sama tíma.

14
Þagalt og hugalt
skyli þjóðans barn
og vígdjarft ver,
glaður og reifur
skyli gumna hver
uns sinn bíður bana.

13. júlí 2004

Tenglar og ekki tenglar.

Verð víst að viðurkenna vanmátt minn gagnvart því að koma einhverju útliti að mínu skapi á þessa síðu mína. Hélt að ég væri búin að setja inn tengla, meina krækjur en sé ekki glóru af þeim á síðunni.
Þetta er óttalegur leikaraskapur sem ég má eiginlega ekki vera að og gefst hér með upp á því í bili.
Ætlaði að láta ljós mitt skína um menn og málefni hér og þar en nenni ekki að vaka yfir bloggsíðum lengur.

Html fikt og sykurfráhvörf

Fór að fikta, breytti litum. Voða gaman að henda út og inn litum í html kóðann á þessari síðu. verst að ég breytti bara og fiktaði þar sem ég sá litanúmer og veit ekkert hvað ég vara að gera hvar. Gaman samt.
Má svo sem ekki vera að þessu en missti mig í vitleysu enda að berjast við fráhvarfseinkenni kolvetnafíknar (sykur!). var í svo svakalega góðum gír fyrir helgina og hollustufæðið bara orðinn lífstíll en ekki afneitun. Tók meira að segja enga óhollustu með mér í útileguna, ekkert nammi, ekkert gos og ekkert kex. En ég tók með mér vinkonu sem hafði með sér helling af nammmi og ég stóðst ekki freistinguna og raðaði í mig kolvetnunum úr karamellum og súkkulaðirúsínum og súkkulaðikexi og drakk gos með öllu saman. Er að bíta úr nálinni með það núna, dugir sko enginn ávöxtur eftir matinn til að seðja sykurþörfina.
Jæja þá er að sjá hvort ég er búin að fikta svo í kóðanum að textinn sjáist ekki. ! altaf eitthvað spennandi í gangi !! ;)

11. júlí 2004

Ofnæmi og Landmannalaugar

Fékk lyfseðil við malbiksofnæmi. Hann hljóðaði upp á brottför úr bænum í snarhasti svo ég dreif mig í Landmannalaugar á laugardaginn. Bauð mínum Passat og einni vinkonu í bíltúr og brunuðum inneftir.
Lentum í vandræðum með að lesa út úr kortum og ekki ennþá alveg búinar að ná því hvort skálinn snýri í norður suður eða austur vestur. Áttum reyndar engin almennileg kort af svæðinu og gekk illa að átta okkur á hvaða fjöll hétu hvað. Fundum nú samt það sem við héldum að væri Brennisteinsalda og þekktum Bláhnúkinn auðveldlega en treysti mér ekki til að labba upp á hann. Virðist reyndar hver hálfónýt eftir labbið í sumar. Ætla mér auðvitað að vera í afneitun á því að ég þoli ekki langar göngur og ganga samt. Seinna.

Kíkti ofan í Stóra Víti eða Ljótapoll eins og hann heitir víst í dag og einhvern annan poll sem ég veit ekki hvað heitir en er samskonar sprengigígur og Stóra Víti bara minni.
Paufaðist hálfhring um Laugahraunið og dáðist að bíksvörtu líparítinu í því, klöngraðist inn í það til að blöskrast á hvað fólk treður óþarfa slóðir um allt og eyðileggur viðkvæman gróður sem er í áratugi að vaxa í þessu tilfelli nokkur hundruð ár þar sem Laugahraunið rann 1477. ( Þetta man ég frá því í vor! Eitthvað situr þá eftir í kollinum suma daga!) Held auðvitað að mínir gönguskór skilji eftir sig minni eyðileggingu en annara, eða þannig.
Er búin að skoða báða endana á Laugaveginum svokallaða. Skoðaði Landmannalaugaendann af honum núna og Þórsmerkurendann um síðustu helgi. Veit ekki hvort ég skoða nokkurntíma meira en það. Get allavega sagt núna að; jú ég hafi aðeins komið inn á Laugaveginn.
Grandskoðaði gróðurinn á svæðinu og fletti upp jarðfræðilyklinum og plöntuhandbókinni. Notaði mér það að vera á eigin bíl og þurfa ekki að bera farangurinn langt og hafði með mér helling af óþarfa eins og bækur og teikniblokkir sem ég auðvitað tók aldrei upp en það var ekki fyrir neinum heldur.
Gistum í skálanum eina nótt og verð að viðurkenna að ég svaf ekki sérlega vel. Þarf að aðlagast því að sofa í margmenni og það tekur amk. eina nótt. Hefði sem sagt þurft að vera tvær og hefði þá sofið vel seinni nóttina.
Ofnæmið er semsagt í einhverri rénun eftir helgina en óvíst hvað þetta dugir lengi. Er að sjá möguleika í því að fá lánað lítið tjald og fara með minn svefnpoka og dínu og LÍTIÐ nesti af stað út í bláinn og gista þar sem hægt er að koma tjaldi fyrir.
Geta þá labbað það sem ég treysti mér til og kemst án þess að blanda öðrum í málið og farið og komið þegar mér hentar. Miðið er möguleiki eins og einhver auglýsir og kannski kem ég þessu í verk einhverntíma. Kannski ekki á þessu sumri en hver veit.
Stundum er það svo flókið að vilja hafa einhvern með sér. Ég kemst þegar mér dettur í hug. Þarf bara að biðja köttinn um að fara vel með sig og kannski biðja dóttirina um að fóðra hann og svo hleyp ég út en vinkonurnar þurfa að gera þvílíkar ráðstafanir og alltaf verða einhverjir árekstrar við aðrar áætlanir og annað fólk, jafnvel jarðflekaárekstrar og ég kemst að því að allar væntingar um að eyða tíma með öðrum fara í vaskinn og það er auðveldast að komast að málamiðlun við sjálfan sig.
Svo lífið er ljúft og Landmannalaugar litskrúðugar. :-)



http://www.norvol.hi.is/~fredrik/landmannalaugar.htm
http://www1.bos.nl/~dvuijk/lands/landmannalaugar_list.html

7. júlí 2004

Vinnan flutt frá mér....

Jæja þá er vinnan loksins flutt endanlega frá mér. Fór með tölvudrusluna í gær og setti í hendurnar á manni sem ætlar að koma henni í lag og svo fluttu síðustu möppurnar út í dag. Verður reyndar ekkert hægt að vinna á vinnustaðnum strax og ekkert hægt að vinna heima og þetta er svolítið einkennilegt. Hef ekki lent í þvi síðustu 3 árin að það hafi ekki beðið einhver vinna eftir mér inni í herbergi.
Nú á ég bara frí þegar ég kem heim.
Og þá er hægt að fara að gera eitthvað af viti. Setja upp myndirnar sem ég tók á Ströndunum og setja þær svo út á netið. Frábært líf að búa ekki lengur með vinnunni.

5. júlí 2004

Tölvuvandræði

Er í sífelldum tölvuvandræðum, þarf að strauja (láta strauja) vinnutövuna, setja hana upp aftur og fara með á sinn stað í vinnunni. Var nefnilega að koma skrifstofunni í lag til að geta flutt allt dótiði frá mér og í viðkomandi fyrirtæki. Er orðin hundleið á að búa með vinnuna heima hjá mér. En þar sem ég get ekki séð um það sjálf að ,,strauja" tölvuna, sem mér er sagt að þurfi nauðsynlega að gera er ég öðrum háð með það og þarf þar að auki að afrita öll gögn sem ég ætla að eiga af tölvunni og það tekur tíma. Tíma sem ég er eiginlega ekki tilbúin að eyða í það. Gæti komið helling af vinnu í verk á þeim tíma sem fer í svona tölvudútl. Setja svo bókhaldsforitin upp aftur og hitt og þetta. Nenni þessu ekki.
Svo á ég einhverstaðar myndir sem þarf að setja inn á netið og ég bara hef ekki hugmynd um hvar þær eru. Er ekki farin að sjá myndirnar sem dóttirinni tókst eftir mikinn barning að copera af myndavélinni og inn í tölvuna hjá sér.
Kannski hefur það eitthvað að gera með að ég rauk að heiman um helgina og var að leika mér inni í Þórsmörk. Annars hefði ég væntanlega látið hana sýna mér hvar í ósköpunum hún potaði myndunum. En það er svolítið dæmigert að þegar ég er heima er hún að heiman. Aldrei þessu vant birtist sonurinn heima núna og ég ætlaði ekki að þekkja hann. Er svo langt síðan ég hef séð hann að ég þurfti að biðja um skilríki til að vera viss um að hann væri sá sem hann sagðist vera. Honum finnst reyndar flakk á mér en ég er nú ekki að skilja það.
Þvottavélin biluð! Stýrismaskínan í bílnum olíulaus og kannski biluð! Hvað næst?

2. júlí 2004

Þórsmörk

Stefnan tekin á Þórsmörk um helgina. Afmæli og víxla á einhverju fræðisetri. Virðist vera heilmikil dagskrá í gangi á morgun en ég sé nú til með það hvort ég fylgist eitthvað með henni. Ætla að fara og sjá hvernig Mörkin lítur út á sumrin. Seldi mér það að leika mér um helgina af því íslensk sumur eru svooooo stutt. Svo var æðisleg veðurspá en hún er víst eitthvað að breytast. Þannig að það er spurning hvort á að pakka stuttbuxunum eða regnbuxunum eða hvorutveggja. Ég á allavega pantað rúm í skála svo ég þarf ekki að fljóta upp í tjaldi ef það fer að rigna. Tek með teikniblokkina og blíant og heiti á mig að teikna þó ekki verið nema ein hundasúra.